Pressan - 08.07.1993, Page 27
T
Fimmtudagurínn 8. júlí 1993
VESTURLAND
PRESSAN 27
Jöklaferðir á Mýrdalsjökli:
Stuttar eða langar ferðir
eftir því sem pyngjan leyfir
Þeir sem einu sinni ánetj-
ast jöklaferðum eygja litla
von um bata. Það er eitt-
hvað ólýsanlegt — svo tært
og magnþrungið við standa
uppi á jökulbungu og horfa
yfir ísbreiðuna sem engan
endi virðist taka. Og það
sem meira er — það er orð-
ið minnsta mál að komast
upp á jökla.
Mýrdalsjökull er ágætt
dæmi, en hann gnæfir allt
upp í 1450 m hæð, svo ekki
þarf að orðlengja um útsýn-
ið. Er ísbreiðan talin um 700
ferkílómetrar. Þar sem víðar
er boðið upp á jöklaferðir.
Búið er að koma upp mynd-
arlegum fjallakofa við jökul-
röndina (sími 985-37757)
og þangað hægt að mæta
allt sumarið og bregða sér á
snjósleða. Vel akfært er
þarna upp eftir, jafnvel á
fólksbílum, en brýnt að
slaka á bensínfætinum og
haga akstri effir aðstæðum.
11 km langur vegur liggur
frá þjóðvegi 1 framhjá bæn-
um Sólheimatungu upp eftir
heiðunum. Uppi á jöklinum
bíður heitt kaffi, bráðhressir
leiðsögumenn, 25 vel út-
búnir snjósleðar, gallar, stíg-
vél og allur búnaður sem til
þarf, svo ekki er þörf á að
klæða sig sérstaklega fyrir
slíka ferð.
Tveggja tíma ferð á sleða
með leiðsögumanni frá
Snjósleðaferðutn hf kostar
um 3.900 krónur fyrir
manninn en hægt er að velja
um stuttar ferðir og langar.
Vinsælt er að fara Kötlu-
hringinn svonefnda og svo
yfir á Eyjafjallajökuk en það
er drjúgur spotti og tekur
ferðin allt upp í 6 tíma. Svo
sértu á svæðinu á góðviðris-
degi, þá er þetta ein af
ógleymanlegum lykkjum
sem leggja má á leið sína.
Eyrarbakki og Stokkseyri
I beinni sundlínu
við suðurskautið
Sagt er að hægt sé að synda beina leið frá suðurströnd íslands á suður-
heimskautið. Það er reyndar ekki svo erfitt að ímynda sér þegar gengið er
eítir strandlengjunni sunnan við Eyrarbakka og Stokkseyri þar sem ekkert
blasir við nema sjórinn, oftast grár og úfinn. Þetta svæði hefúr oft reynst
sjómönnum erfitt yfirferðar og ófáir bátamir hafa farið þar niður. Fjaran er
þó víða skemmtileg til gönguferða og margir stunda þetta svæði einmitt til
þörungatínslu.
Eyrarbakki og Stokkseyri, ásamt Þorlákshöfn hinum megin við ölfusár-
ósa, hafa færst æ betur inn á landakort ferðamannsins á Suðurlandi eftir að
brúin var lögð yfir ósinn. Hefur við það opnast skemmtileg hringleið og
heimamenn um leið tekið höndum saman um að lífga við margs konar
starfsemi á svæðinu. Skemmtileg söfn er þarna að finna, bæði í sjóminja-
safninu á Eyrarbakka og Þuríðarbúð á Stokkseyri. Á Eyrarbakka var líka fyr-
ir skemmstu opnuð menningarmiðstöð og kaffistofa sem vinsælt er að
heimsækja, en þetta svæði hefúr einmitt löngum laðað til sín listamenn,
innlenda og erlenda.
Eyrarbakki hefúr einnig að geyma fjölda gamalla og vel varðveittra húsa
sem bera vitni um það öfluga athafúalíf sem þar þreifst þegar staðurinn var
miðstöð verslunar og viðskipta á Suðurlandi. Og svo má ekki gleyma Guð-
laugi Pálssyni kaupmanni á Eyrarbakka sem enn stendur innan við búðar-
borðið kominn á tíræðisaldurinn.
Kynnist eigin landi íferð með
Ferðafélaginu og með lestri
Árbókanna.
Árbækurnar eru ein besta íslandslýsing
sem völ er á.
Árbókin 1993 nefnist: Við rætur Vatnajökuls.
Byggð, íjöll og jöklar. Höfundur er Hjörleifur
Guttormsson. Þessi bók er ómissandi öllum
þeim sem ferðast um Austur- Skaftafellssýslu. Þið
eignist hana um leið og þið gerist félagar í Ferða-
félaginu. Félagar fá auk þess afslátt af ferðum og
gistingu í 31 sæluhúsi. Afsláttarkjör gilda einnig
fýrir maka og börn. Árgjaldið er 3.100 kr.
Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofunni,
Mörkinni 6, sími 91-682533, símbréf 91-682535.
Gangið í Ferðafélag íslands!
Sumarævintýri á Hótel Eddu
Menntaskólanum Laugarvatni
Hin frábæru hlaðborð okkar verða með
nýju sniði í sumar.
10. júlí Sjávarréttarhlaðborð.
Leyndardómar undirdjúpanna kannaðir.
17. júlí ítalskt hlaðborð.
Allir helstu og bestu þjóðarréttir ítala koma
syngjandi inn á hlaðborðið.
24. júlí Asíuævintýri.
Allt frá Indlandi til Kína, frábærir og spennandi
réttir frá þessari framandi heimsálfu.
31. júlí Verslunarmannahelgarstuð.
Hlaðborð með öllu, fiskur, kjöt og pasta.
Öll kvöldin fáum við gestakokka sem eru
sérfræðingar í þjóðlegum og spennandi réttum.
Sjáumst í sumarskapi!