Pressan - 07.10.1993, Blaðsíða 3
SKILABOÐ
Fimmtudagurinn 7. október 1993
PRESSAN 3
I^ekstur Samskipa hefur
gengið mjög illa síðustu miss-
erin en á síðasta starfsári tap-
) aði fyrirtækið hálfum milljarði
króna og færði hlutafé sitt úr
900 milljónum króna niður í
500 milljónir. Nú hafa fyrstu
sex mánuðir þessa árs verið
gerðir upp. Ekki er ætlunin að
birta það uppgjör en við heyr-
um að yfirlitið sé afar svart
auk þess sem ffaktflutningar
hafa gengið mjög illa í sumar
og það sem af er hausti. Þetta
gengur þvert á þær áætlanir
fyrirtækisins að skila halla-
lausum rekstri. Þegar Lands-
^ bréf sáu um útboð á bréfum í
Samskipum vorið 1992 var
reyndar gert ráð fyrir yfir 100
milljóna króna hagnaði en
niðurstaðan varð 500 milljón-
ir í tap. Draupnissjóður hafði
keypt hlutafé á yfir 10 milljón-
ir króna og gerði athugasemd-
ir við útboðsgögnin og er nið-
i urstöðu að vænta í því máli
fijótlega. Þess má geta að að-
eins seldust rúmlega 100
milljónir af þeim 400 sem fyr-
irhugað var að selja. Guðlaug-
ur Briem hjá Draupnissjóðn-
um gerði síðan athugasemd
við reikninga félagsins á aðal-
fúndi í vor. Því var vísað ffá af
meirihlutanum hjá Hömlum,
en Landsbankinn á bæði
Hömlur og Landsbréf...
.^^liklar mannabreytingar
> hafa verið hjá Samskipum
upp á síðkastið og nú um
mánaðamótin var Árni S.
Guðmundsson, yfirverkstjóri
látinn fara. Ómar Hl. Jó-
. hannsson var látinn víkja sem
yfirframkvæmdastjóri og við
tók Ólafúr Ólafsson sem for-
stjóri. I kjölfarið voru ráðnir
þrír ffamkvæmdastjórar, þeir
Baldur Guðnason, Sæmund-
ur Guðlaugsson og Hjörtur
Emilsson, fyrrum aðstoðar-
forstjóri hjá Ríkisskipum. I
sumar var Hjörtur hins vegar
settur af og gerður að deildar-
stjóra en Baldur og Sæmund-
ur deila hans stöðu, rekstrar-
sviði, þar til nýr maður verður
ráðinn. Aðrir sem hafa verið
1 látnir fara eru Stefán Eiríks-
son, fyrrum aðstoðarforstjóri,
Björgvin Vilhjálmsson, áður
deildarstjóri gámadeildar,
Björn Eiríksson, áður skrif-
stofustjóri, og Sigvaldi Jósaf-
atsson sem áður var aðstoðar-
framkvæmdastjóri, sá síðan
I um að koma upp umboðs-
skrifstofum erlendis og var
síðast í sérverkefnum fyrir for-
stjóraskrifstofuna. Talsverð
úlfúð hefur ríkt vegna allra
þessara mannabreytinga, sem
einnig ná í lægri stöður, og
segja starfsmenn að starfsand-
inn sé nálægt núllpunkti...
-------------■f---------------
M eðal þess sem er að
! finna í fjárlagafrumvarpi Frið-
riks Sophussonar fjármála-
ráðherra fyrir næsta ár er
heimild til greiðslu bóta ti!
handa þeim sem sýktust af al-
næmi við blóðgjöf hér á landi
fýrir 1986. Eins og kunnugt er
var ekki byrjað að skima blóð
hér fyrr en umrætt ár, en sam-
kvæmt upplýsingum ffá land-
læknisembætti sýktust fjórir
einstaklingar af alnæmi við
blóðgjafir sem fóru ffam fýrir
þann tíma. Alnæmissjiiklingar
þeir sem um ræðir, fjórar
konur, eru allir lámir og hafa
ættingjar eins þeirra nú farið
ffam á bæt-
ur af hálfu
ríkissjóðs.
Landlæknir,
Ólafur Ól-
afsson, fjall-
aði um mál-
ið og komst
að þeirri
niðurstöðu
að ríkið væri bótaskylt. Að því
er ffam kemur í fjárlagaffum-
varpinu er það Qármálaráð-
herra sem tekur ákvörðun um
bætur þessar, í samráði við
heilbrigðisráðherra...
A
fundi borgarráðs í
septemberlok óskaði Sigrún
[Magnús-
d ó 11 i r ,
borgarfull-
trúi Fram-
s ó k n a r -
flokks, eftir
því að lagð-
ur yrði ffam
listi yfir all-
ar íbúðir og
húsnæði sem leigt er út á veg-
um borgarstjóra. Jafnframt
óskaði Sigrún eftir því að fá
upplýst, hvort aðrir embættis-
menn hjá borginni réðu yfir
húsnæði sem þeir gætu ráð-
stafað án afskipta nefnda
borgarinnar. Kveikjan að fyr-
irspurninni var umfjöllun
PRESSUNNAR í sumar um
ihúsnæði á
v e g u m
borgarinnar
við Tjamar-
götu, þar
sem Sús-
anna Svav-
arsdóttir
_____| blaðamaður
hefur haft
íbúð á leigu um nokkurt
skeið. Reyndar var þetta ekki í
fyrsta sinn sem Sigrún viðraði
málið í borgarráði. í ágúst bar
borgarfulltrúinn fram fyrir-
spurn þess eðlis hvort borgar-
stjóri hefði aðrar íbúðir til út-
leigu en þær við Tjarnargöt-
una, en loðið svar FÍjörleifs B.
Kvaran, framkvæmdastjóra
lögffæði- og stjómsýsludeild-
ar borgarinnar, gaf henni til-
efni til frekari eftirgrennslun-
ar. Sigrún hefur nú að sögn
ákveðnar gmnsemdir um að
Ágúst Jónsson, skrifstofu-
stjóri hjá borgarverkffæðingi,
hafi yfir að ráða húsnæði sem
hann getur ráðstafað afskipta-
laust og því hefur hún óskað
eftir ffekari upplýsingum um
málið...
Q
w kiptafundur var nýlega
haldinn í þrotabúi Asiaco hf.,
en kröfulýsingaffestur í þrota-
búið rann út 12. mars síðast-
liðinn. Forgangskröfur voru
upp á 5,4 milljónir króna en
lýstar almennar kröfur voru
upp á 348,8 milljónir króna.
Skiptastjóri samþykkti kröfur
upp á 230,7 miUjónir en það
blasir við að eignir em mjög
litlar. Landsbanki íslands lýsti
kröfum upp á 86,6 milljónir
króna en aðrir stórir kröfu-
hafar eru ToUstjóraembættið
og Gjaldheimtan með samtals
um 50 miUjóna króna kröfú.
Lokin á rekstri Asiacos þóttu
nokkuð æv-
intýraleg, en
Páll Þor-
geirsson var
forstjóri fýr-
irtækisins
undir það
síðasta. Ekki
er vitað
hvað hann hefúr tekið sér fýrir
hendur síðan. Þá lýsa þeir
feðgar Kjartan R. Jóhannsson
og Kjartan öm Kjartansson,
sem nú hefur hafið rekstur á
McDonald’s-veitingastaðn-
um, stómm kröfúm í búið, en
þeir seldu Asiaco fýrir nokkr-
um ámm. Það er Ijóst að þeir
fengu aldrei allt söluverðið
greitt og kröfur þeirra eru
samtals upp á um 100 miUj-
ónir...
A
II aðalfundi Sólons ísland-
usar í síðustu viku kom til
harðra orðaskipta miUi yngri
og eldri hluthafa staðarins.
Yngri kynslóðinni fannst sem
alltof langt hefði verið vildð
frá upphaflegri stefnu staðar-
ins að veitingahússreksturinn
yrði þama aðeins tíl að standa
undir menningunni; að meira
hefði verið lagt í veitingahúss-
reksturinn en ráð var fyrir gert
í upphafi. Menningin hefði
verið mun blómlegri fyrstu
fjóra til fimm mánuðina en
síðan hefði farið að haUa und-
an fæti og nú væri svo komið
að enginn framkvæmdastjóri
væri yfir menningarnefnd-
inni. Einnig heyrðist sú gagn-
rýni að of mfldð snobb varð-
andi menninguna kæmi í veg
fyrir að hún þrifist almenni-
lega. Þá sögðu ungu hluthaf-
arnir margir hverjir að stjórn
Sólons íslandusar hefði svikið
gefin loforð með því að neita
að taka þátt í Óháðri Ustahátíð
í sumar, en það hefði einmitt
verið ein af forsendum þess að
eigendur húsnæðisins leigðu
þessum aðilum húsnæðið.
Annars kom það einnig ffarn
að afkoma veitingahússins
hefði verið með besta móti...
M egn óánægja ríkir
meðal íbúa á Rauðarárstíg 38 í
Reykjavík í
garð Frið-
riks Þórs
Friðriks-
sonar kvik-
myndagerð-
armanns.
Upptökur á
nýrri mynd
hans, Bíó-
dögum, fóru að stórum hluta
fram á Skarphéðinsgötu og
var gatan undirlögð seinnipart
sumars vegna þessa. Myndin
gerist á sjöunda áratugnum og
til að umhverfið hæfði þeim
tíma þurfti að koma ýmsum
breytingum í kring, þar á
meðal bera mold og sand í
götuna og lóðirnar umhverfis.
Af þeim sökum gerðu að-
standendur Bíódaga munn-
legan samning við íbúa húss-
ins á Rauðarárstíg 38 um að
þeir frestuðu í sumar fyrir-
huguðum framkvæmdum á
lóðinni, sem snýr að Skarp-
héðinsgötu, þar til upptökur
hefðu farið fram. í staðinn
ætlaði kvikmyndagerðarfólkið
að sjá um að færa umhverfið í
nýtt og betra horf strax að
upptökum loknum; bera möl
í lóðina, tyrfa og setja upp
grindverk. Upptökum á Bíó-
dögum lauk um miðjan sept-
ember. Var þá Skarphéðins-
gatan og allt það sem lýtur að
borgaryfirvöldum fært aftur í
nútímalegt horf, en umrædd
lóð hins vegar skilin effir á kafi
í mold og er hún nú eitt forar-
svað. Ibúar hússins hafa
margítrekað haft samband við
aðstandendur Bíódaga og
borið fram kvartanir, en það
er sama við hvern er talað;
enginn virðist kannast við að
nokkur samningur hafi verið
gerður...
Allir viöskiptavinir okkar
í október fá einn pakka af
Wrigley's Extra
afhentan með matnum
Tannlæknafélag Islands mælir J
meö notkun xylitos sem
aðalsætuefnis í tyggigúmmii
vegna þess að okkur er annt um
tannheilsu þína
OPIÐ 10:00-23:30
VEITINGASTAÐUR OG „BEINT-Í-BÍLINN“, SUÐURLANDSBRAUT 56