Pressan - 07.10.1993, Blaðsíða 10

Pressan - 07.10.1993, Blaðsíða 10
NÆGJUSEM PRESSAN Fimmtudagurinn 7. október 1993 Ingólfur Guðbrandsson býr í glæsilegu húsi á Laugarásvegi 21 og fararskjótinn er ekki af verri endanum, Cadillac de Ville. Mánaðartekj- urnar voru hins vegar aðeins eitt þúsund krón- urífyrra. Ingólfur Guðbrandsson: Lifað á þúsund krónum Ingólfur Guðbrandsson er óumdeilanlega þekktasti ferða- málafrömuður landsins fyrr og síðar. Hann er enn að vinna í ferðaþjónustunni þótt hann megi nú muna fífil sinn fegurri. Ingólfur býr enn í glæsilegu ein- býUshúsi sínu á Laugarásvegi 21 en brunabótamat þess er 20 milljónir króna. Það vakti óneitanlega mikla athygli þegar í ljós kom að mánaðartekjur hans voru einungis eitt þúsund krónur á síðasta ári. Ekki náðist í Ingólf til að hann gæti skýrt hvernig gengi að lifa af þessum lágu tekjum. Andri Mór Ingólfsson: Sum ár eru gáð, önnur ekki Andri Már Ingólfsson hefur verið umsvifamikill í rekstri ferðaskrifstofa enda er faðir hans, Ingólfur Guðbrandsson, einskonar guðfaðir í þeim bransa. Sjálfur rekur Andri Már nú ferðaskrifstofuna Heimsferðir og ber sig vel. Hann er þekktur úr samkvæmislífi borgarinnar, enda áberandi hvar sem hann kemur. Þá hefur nýja einbýlishúsið hans á Huldubraut 42 vakið mikla athygli, enda var það Vífill Magnússon arkitekt sem teinaði það. Það er 222 ferme- trar og brunabótamatið nærri 17 milljónir. Andri Már var spurður hvort ekki væri erfitt að lifa af 85 þúsund krónum á mánuði. „Það fer eftir ýmsu. Ég hef haft mjög góðar tekjur á þessu ári þannig að það hefur vegið þetta upp,“ segir Andri Már Ingólfsson. „Hvað varðar einbýlishúsið þá er það ekkert stórt. Þetta er lítið sætt hús sem ég á nú minnst í enn hvort eð er, því við skudum mikið í því ennþá. Hjá mönnum sem reka fyrirtæki eru sum ár góð, önnur ár ekki eins góð,og þá v e r ð u r maður bara að brúa bilið. Þetta er ekki eins og fólk sem er með fatar tekjur og fær alltaf sömu upphæðina í launaum- slagið. Þannig að þegar koma góð ár, eins og þetta ár, þá vegur það upp á móti erfiðu árunum, eins og var í fyrra. Þá var ég að stofna nýtt fyrirtæki og fór mjög hægt og rólega af stað og fór mér bara rólega. flndri Már Ingólfsson býr í þessu glæsilega einbýlishúsi en hafði einungis 85 þúsund í mánaðartekjur í fyrra. Það hefúr ræst úr á þessu ári og ég er með ágætar tekjur núna.“ Þú hefur náð endum saman ífyrra? „Já já, ég stend við allar mínar skuldbindingar og skulda engum neitt, nema í mínu blessaða einbýlishúsi, sem okkar ágæta húsbréfa- kerfi gefur okkur kost á að borga á svona 25 árum.“ Geir Gunnar og Hjördís ó Valló: Ekki gott ár í fyrra Geir Gunnar Geirs- son og Hjördís Giss- urardóttir eru með eignamestu hjónum landsins. Hjónin Geir Gunnar Geirsson og Hjördís Gissurardóttir, eggja- bændur á Vallá á Kjalarnesi, eru talin sterkefnuð. Bú þeirra annar um 30 prósentum af allri eggja- framleiðslu í landinu. Sam- kvæmt eignaskattsútsvari eiga þau 200 milljónir í eignum en ásamt rekstrinum og fleiru voru eigríir þeirra metnar á 400 millj- ónir króna í bókinni íslenskum auðmönnum. Einbýlishús þeirra á Vallá vekur mikla athygli, en umhverfis það er 10 metra hár skjólgarður sem að stórum hluta er holur innan. Innanstokks er svo mikið af glæsilegum antik- munum sem Hjördís hefur safh- að í gegnum tíðina. Brunabótamat þess er 37,3 milljónir Þess má einnig geta að Hjördís var lengi gullsmiður og rak síðar tískuvöruverslanir, m.a. Benetton-verslanirnar, sem hún hefur reyndar selt. Samkvæmt útsvari voru tekjur Hjördisar 110 þúsund krónur á mánuði og tekjur Geirs Gunnars 204 þús- und krónur. „Ég hef um langt skeið verið með tekjuhærri mönnum lands- ins og greiði mjög háa skatta. Fyrirtækið borgaði þannig um 23 milljónir í skatta á síðasta ári. Hins vegar voru tekjurnar ekki háar í fýrra, það var ekki gott ár, en ég hef haft háar tekjur," segir Geir Gunnar Geirs- son. Hjördís sagði að mest af fé þeirra færi í uPPbyggingu hússins, sem staðið hefði í um aldarþórð- ung og væri áhugamál þeirra. Þá hefði hún safnað forngripum frá fermingaraldri og þau lifðu sparlega. „Við höf- um skrimt hingað til og setjum allt í heimilið. Ef þú lifir óskap- lega sparlega og hendir ekki matnum þínum, eins og helm- ingur þjóðarinnar gerir mikið af, getur vel verið að þú getir eignast svona hús smátt og smátt,“ segir Hjördís. „Það fer allt í heimilið og ég tel mig nýta mat vel. Það er ýmislegt sem við gerum sjálf í höndunum, saumaskapur til dæmis. Ef fólk horfir vel í það sem það er með í höndunum þá getur fólk spilað margfalt meira úr en það gerir.“ Eggjabú þeirra er verðmætt og einbýlishúsið á Vallá vekur mikla athygli. Guðlaugur Bergmann kaupmaður: Litlar tekjur í erfiðleikum Guðlaugur Bergmann er oftast kenndur við Karnabæ og er líklega einn þekktasti at- hafnamaður landsins þótt hann hafi gengið í gegnum miklar hremmingar síðustu misserin. Þá er hann einn þekktasti laxveiðimaður landsins. Samkvæmt útsvari voru mánaðartekjur hans á síðasta ári 127 þúsund krón- ur. Hann býr í 610 rúmmetra einbýlishúsi á Sólbraut. Brunabótamat þess er rúmar 15 milljónir króna en er skráð á eiginkonu hans. „Það vill nú þannig til að ég á konu sem vinnur líka fulla vinnu og það hjálpar til, auk þess sem við erum bara með einn dreng á framfæri,“ segir Guðlaugur Bergmann. „Þegar maður rekur við- skipti sem eru öll í miklum erfiðleikum þá getur maður ekki borgað sér mikil laun. Ég keyri á gömlum bíl og hef þurft að taka uppáhaldssport- ið mitt, laxveiðar, og skera það alveg niður við nögl.“ Þú ert einn þekktasti lax- veiðimaður landsins. „Ég verð það náttúrulega alltaf af því að ég er besti lax- veiðimaður landsins, en ég er í stjórn Stangveiðifélags Reykja- víkur og þar fæ ég veiði sem stjórnarmaður og síðan bjóða mér margir í veiði af því að ég get kennt mönnum að veiða, en ég kaupi mér ekki veiðileyfi nema þrjá daga á ári. Ég hóf avinnurekstur tví- tugur og hef fórnað öllu lífs- starfinu í þetta og tapað öllu sem ég hef eignast í gegnum tíðina. Ég tek það þó skýrt fram að ég er mjög ríkur mað- ur, bara ekki af efnislegum gæðum. Ég er búinn að missa allt sem ég átti í gegnum Kamabæjardæmið. Það er því ekkert óeðlilegt að ég sé með litlar tekjur. Ég er þó mjög vel borgaður miðað við konumar hér á saumastofunni, sem fá eitthvað um 70 þúsund á mánuði. Það væri miklu nær að spyrja hvernig hægt er að borga þessu hátekjuliði allt þetta kaup.“ Gulaugur og Guðlaug Bergmann. Hún er skráð fyrir einbýlishúsinu á Sólbraut.

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.