Pressan - 07.10.1993, Blaðsíða 13
Fimmtudagurinn 7. október 1993
F R É TT I R
PRESSAN 13
athygli, en þar er stofnunin að
byggja fjárhús og aðstöðu til
rannsókna fyrir á milli 30 og 40
milljónir króna. Hefúr bændum í
nágrenninu blöskrað þessi upp-
bygging, enda nóg til af ónýttum
fjárhúsum auk þess sem stofnun-
in hefur umtalsverðan fram-
leiðslurétt í sauðfjárrækt.
Sterk staða í Rann-
sóknarráði
Eins og áður sagði hefur RALA
tekið að sér ýmis verkefni í fisk-
eldi þó að Veiðimálastofnun sé
formlegur og eðlilegur milliliður
slíkra rannsókna. Skýringuna á
því telja margir náin tengsl við
Rannsóknarráð en forstjóri
RALA, Þorsteinn Tómasson, sit-
ur í ráðinu og hefur sterk per-
sónuleg tengsl við Vilhjálm Lúð-
víksson, formann Rannsóknar-
ráðs.
Þá hefur því verið haldið ffam
að þátttaka RALA í verkefnum
haldist í hendur við styrkveiting-
ar frá Framleiðnisjóði landbún-
aðarins. í ársskýrslu stofnunar-
innar kemur fram að einn stærsti
sértekjuliðurinn er einmitt frá
Framleiðnisjóði landbúnaðrins,
sem t.d. árið 1991 lagði RALA til
26,6 milljónir. Aðrir sértekjuliðir
eru til dæmis ffá Rannsóknarráði
en sama ár fékk RALA tvö fram-
lög þaðan; frá Rannsóknarsjóði
Rannsóknarráðs upp á 9 milljón-
ir og Byggingarsjóði Rannsókn-
arráðs upp á 18,5 milljónir.
Vísindaskýrslur
Á vegum RALA starfa og hafa
starfað margir hæfir vísinda-
menn, um það er ekki deilt.
Margir hafa hins vegar kvartað
yfir því að vísindastarfið þar sé í
senn ósýnilegt og ómarkvisst.
Niðurstöður rannsókna á vegum
RALA eru of sjaldan birtar í vís-
indafagritum, en slíkt er oft talið
mælikvarði á gildi rannsókna.
Með'því að senda greinar og nið-
urstöður fá menn mat á rann-
sóknarvinnu sinni. Þetta er hin
formlega vísindaleið.
Þess í stað birta menn niður-
stöður sínar í skýrslum sem þeir
gefa út sjálfir með fulltingi stofn-
unarinnar. Menn fara ekki til
dómara, þannig að kröfúrnar eru
litlar. Þetta er hins vegar vanda-
mál sem ekki er bundið við
RALA. Á vegum stofnunarinnar
er gefið út tímaritið Búvísindi í
samstarfi við aðra aðila. Þá gefúr
stofúunin út Fjölrit RALA.
RALA veitir ekki beina ráðgjöf
til landbúnaðarins heldur fer hún
fram í gegnum ráðunauta Bún-
aðarfélagsins, sem koma árlega á
vikulangan fund hjá RALA. Það
hefur einnig verið gagnrýnt að
hafa slíka milliliði í stað þess að
einfalda upplýsingáleiðir þeint til
bænda.________________________
Sigurður Már Jónsson
Þorsteinn Tómasson,
forstjóri RALA
Alröng stefna að
hætta rannsóknum
bótt illa ári
„Ég held að það komi ein-
mitt fram í stefnu ríkisstjórnar-
innar að á breytingatímum eigi
ekki að draga úr fjármagni til
rannsókna- og vísindastarf-
semi eins og til annarra þátta,
vegna þess að menn sjá í þessu
framtíðarmöguleika," sagði
Þorsteinn Tómasson, forstjórí
Rannsóknastofnunar landbún-
aðarins, aðspurður um gildi
þess að setja áfram peninga í
rannsóknir á vegum landbún-
aðarins þótt atvinnugreinin
sjálf dragist saman.
„Hins vegar hefúr dregið úr
opinberu fjármagni til stofn-
unarinnar en við höfum verið
sæmilega sannfærandi gagn-
vart rannsóknarsjóðum með
áhugaverð verkefni þannig að
við höfum haldið sjó. Vægi
peninga annars staðar að en af
fjárlögum hefur aukist.“
— Hvernig hefur stofnunin
brugðist við breyttum áherslum
í landbúnaði?
„Stofnunin hefur brugðist
við því með breyttu vægi ein-
stakra verkefna. I stórum drátt-
um reynum við að laga okkur
að atvinnuvegunum og samfé-
laginu í heild, eins og umhverf-
is- og landgræðslurannsóknir
sýna.“
— En má ekki sinna mörgum
verkefnum ykkar annars staðar?
„Ef þú ætlar að bera saman
stofhanir og velta vöngum um
hver á að gera hvað þá er engin
tilviljun hvað við erum að fást
við. Verkefni sem við fáumst
við, til dæmis á sviði fóður-
fræði, eru hvergi tvöfölduð í
öðrum stofnunum. Við höfum
hins vegar unnið samstarfs-
verkefni með mörgum, meðal
annars til að nýta þá þekkingu
sem er hér á sviði fóðurfræði,
ÞORSTEINN TÓMflSSON, forstjóri RflLfl.
erfðafræði og tilraunastærð-
fræði. Á þessi rök hafa margir
þessir sjóðir hlustað.“
— Veiðimálastofnun hefur til
að mynda augljóst hlutverk og
forræði á sviði fiskeldis. Þær
gagnrýnisraddir hafa heyrst að
þið hafiðfarið inn á þeirra verk-
svið?
„Ég hef enga trú á að það sé
neinn alvöruágreiningur á
milli okkar um það. Við höf-
um mörg samstarfsverkefni og
unnið sarnan víða.“
Það kom fram hjá Þorsteini
að á Hesti í Borgarfirði hefði
þótt nauðsynlegt að efla rann-
sóknarstarf auk þess sem stofn-
unin hefði lagt niður tvær
stöðvar, á Reykhólum og á
Skriðuklaustri. Taldi hann
uppbygginguna á Hesti eðli-
lega til að vernda það rann-
sóknarstarf sem stofnunin
hefði þegar lagt út í. Varðandi
útgáfu vísindagreina benti
hann á að öflug útgáfustarf-
semi hefði verið á vegum
stofnunarinnar auk þess sem
menn hefðu sannarlega birt
greinar erlendis. Benti hann á
að stofnunin ætti viðurkennda
vísindamenn á mörgum svið-
um.
fyrirtsekjum
Einstakt áskriftartilboð:
# Við bjóðum þér vinsælasta myndasögublað á Islandi,
Andrés Önd, á aðeins kr. 223 hvert blað - sent heim til þín.
Tryggðu að Andrés Önd
komi heim til þín í hverri viku
Ef þú tekur tilboðinu innan 10 daga færðu að gjöf vandaða
700 kr. safnmöppu undir blöðin.
- og að þú fáir
safnmöppuna ókeypis!
Hálfsmánaðarlega berst óvæntur glaðningur
með blaðinu.
HRINGDU STRAX í DAG í ÁSKRIFTARSÍMANN: 91 -688300.