Pressan - 07.10.1993, Síða 25
Horft til framtíða
K ■ ■ ■
Leiðrétting
Tvær staðreyndir
skoluðust heldur
betur til á nætur-
lífssíðunni í síð-
asta tölublaði
PRESSUNNAR.
Annars vegar var
ranglega sagt í
fyrirsögn að af-
mælisbarnið í
Garðabænum,
Valdimar Bergs-
son, hefði orðið
hálfrar aldar
gamall, en eins
og glögglega má
sjá á manninum
er hann aðeins
fertugur, sem
kom reyndar
fram í textanum.
Biðjum við hann
velvirðingar á
mistökunum. Þá
biðjum við sömu-
leiðis teppasal-
ann sem staddur
var í því afmæl-
inu afsökunar á
því að hafa verið
rangfeðraður. Sá
heitir Sverrir og
er Bernhöft og til
nánari útskýring-
ar má geta þess
að hann rekur
teppaverslunina
Barr.
SVERRIR BERNHÖFT.
Teppasali.
SJONVORP FRAMTIÐARINNAR
- Breiðskjár hlutföll 16:9
- 32" og 28" Black Planigon
- DTI stafræn háskerpumynd
- Þreföld mynd í'mynd (PIP)
- Víðóma Nicam HiFi 2x35W
- Djúpbassakerfi (subwoofer)
- Textavarp
- Fjarstýring sjónvarpsmús
- Valmyndastjórnun
- 3 Scart tengi AA/ og fl.
Istonska
efflnlitsriklö
Eftir Ara Gísla Bragason
Eitt af því nýja í miðbæ
Reykjavíkur síðustu mánuðina
eru kaffihúsin. Hvert kaffihúsið
hefur opnað á fætur öðru og
enn fjölgar þeim. Það mætti
halda að við íslendingar vær-
um orðnir siðmenntaðir. Svei
mér. Það var einmitt í vikunni
sem leið að ég sat á litlu kaffi-
húsi í Reykjavík. Kvöldið var
fagurt. Hálfgerð vorgola úti, ís-
lenskt skammdegi alltaf sér-
stakt. Við nutum Ijúfra kaffiveit-
inga en aðallega félagsskapar
hvort annars. Við vorum ein á
kaffihúsinu þegar eigandinn,
kunningi minn, kemur að borð-
inu. „Fyrirgefiði. Ég þarf víst að
biðja ykkur að fara. Þeir eru
komnir frá eftirlitinu." Svo djúpt
vorum við sokkin í samræður
að ég vissi ekki hvaðan stóð á
mig veðrið en jánkaði fullur
skilnings fáeinum sekúndum
síðar. Lít svo á klukkuna. Hún
var orðin 1.20 eftir miðnætti.
Ég sé að við dyrnar standa
tveir menn og lemja lykli á
rúðu kaffihússins sem var
„Stopp, ekki opna hurð-
ina. “ Okkur dauðbregður.
Það mcetti halda að mað-
urinn á bakvið okkur mið-
aði á okkur byssu.
læst. Eigandinn gengur að
hurðinni og opnar. Storma þá
inn Knoll og Tott. Knoll er mikill
maður vexti, hálfsköllóttur og
andlit hans einsog sjaldgæf
indversk hundategund. Tott
hins vegar ungur maður með
gleraugu í jakkafötum í gamla
góða kaupfélagsandanum.
Knoll og Tott storma inn á
kaffihúsið og inná eldhús
væntanlega en koma svo
stormandi inn í sjálfan sal
kaffihússins. Eigandinn biðst
velvirðingar á þessu. „Þetta er
bara svona. Klukkan er 20
mínútur framyfir leyfilegan
tíma. Vonandi missi ég ekki
leyfið.“
„Heyrðu við skulum drífa okk-
ur,“ segi ég og við hyggjum á
útgöngu. Þegar við erum kom-
in að hurð kaffihússins heyrist
kallað: „Stopp, ekki opna hurð-
ina.“ Okkur dauðbregður. Það
28- - STAÐGRE'^T#|
RONNING
SUNDABORG 15
SÍMI 68 58 68
mætti halda að maðurinn á
bakvið okkur miðaði á okk-
ur byssu. Ég sný mér við
og sé að svo er ekki en
maðurinn með hundsand-
litið gengur að mér. Snýr
sér svo að vinkonu minni.
„Ertu með skilríki?" spyr
Knoll og umlar af vinnu-
semi.
„Já,“ svarar stúlkan og rétt-
ir honum skilríki sín. Þess
má geta að á meðan
þessu stóð kom Tott sér
fyrir í horni kaffihússins,
hallaði sér að veggnum en
fylgdist með af fullum
áhuga. Þegar Knoll hafði
fengið skilríkin í hendur fór
fram sérstæðasta skoðun
á nafnskírteini sem undir-
ritaður hefur orðið vitni að.
Knoll lamdi skilríkjunum í
lófa sér, lyktaði af þeim,
setti þau oní vatnsglas (?)
en allt kom fyrir ekki. Knoll
komst að því að skírteinið
var ófalsað.
„Takk,“ sagði Knoll og rétti
stúlkunni skírteinið. Tott
kom nú gangandi og opn-
aði hurðina og hleypti okk-
ur út. Þegar við yfirgáfum
staðinn horfðu Knoll og
Tott á okkur ákveðnu
augnaráði, líkt og dag einn
myndu þeir negla okkur.
Fyrir hvað er mér spurn?
Markús Örn, Þorsteinn
Pálsson, Böðvar Braga-
son. Gefið opnunar- og
lokunartíma frjálsan á veit-
ingastöðum. Það leysir
fleiri vandamál en það
skapar.
Höfundur er skáld og sagnfræöi-
nemi viö HÍ.
VERTU MEDI BESTA UÐINU
VERTU MED LOTUS í UÐI
LOTUS AMI PRO
Ritvinnsla, reikningur, teikning, myndrit og umbrot eru ástæður þess aö notendur annarra ritvinnslukerfa skipta hver á fætur öðrum
yfir í AmiPro frá Lotus. AmiPro hefur aftur og aftur fengiö hæstu einkunn í fagtímaritum. AmiPro býður upp á ýmis vel úthugsuð
hjálpartæki sem gera öll vinnubrögð einfaldari. Með einum smelli er t.d. hægt að kalla fram valmynd þar sem setja má alls konar
útlitseinkenni á texta á mjög aðgengilegan hátt. (valmyndinni er reitur sem sýnir strax áhrif hinna ýmsu kosta. Þetta gerir
byrjendum mjög auðvelt að prófa sig áfram. Önnur vel útfærð atriði í AmiPro eru aðgengilegar samsteypur (t.d. fyrir dreifibréf),
taka má skjöl beint inn úr öllum helstu ritvinnslum og töflureiknum, öflug töflugerð með reikniformúlum, sjálfvirk umslagaprentun og
afturköllun (undo) allt að fjögurra aðgerða. AmiPro fylgir fjöldi tilbúinna uppsetninga eða sniðmáta á íslensku.
Freelance Graphics (fyrir DOS, Windows og OS/2) er eitt fullkomnasta forrit sem til er til að setja upp og sýna glærur og annað
kynningar- og kennsluefni. Forritið er mjög öflugt og einstaklega einfalt í allri notkun.
'"Wíi
Nú er komin á markaðinn ný útgáfa af hinum geysivinsæla töflureikni Lotus 1-2-3. Hér er lögð höfuðáhersla á að gera öll
vinnubrögð sem auðveldust. Notendur geta lagað útlit forritsins að sínum smekk og þeim verkefnum sem unnin eru hverju sinni.
Með töflureikninum fylgja m.a. mjög öflug verkfæri til þess að sækja gögn úr öðrum kerfum svo og að halda utan um, rekja og
endurskoða mismunandi útgáfur af sömu töflu.
ILOfUS IMPROV
Lotus Improv er öðruvísi töflureiknir. Hann er margvíður og því er hægt að skoða hverja töflu og graf frá mörgum sjónarhornum
án þess að gera nokkrar breytingar á töflunni sjálfri. Þannig getur markaðsmaðurinn, fjármálastjórinn og framkvæmdastjórinn séð
sínar upplýsingar, hver á sinn hátt. Engum gögnum eða formúlum þarf að breyta - aðeins þrýsta með músinni á einn hnapp. Með
Lotus Improv kveður þú ruglingsleg upplýsingahólf eins og B43 eða C10 og færð í staðinn myndrænt, margvítt notendaviðmót
sem skilar þér þeim upplýsingum sem þú vilt fá - án nokkurra vífilengja.
Notes auðveldar samvinnu tölvunotenda og samnýtingu tölvugagna yfir net. Þungamiðja Notes er gagnagrunnur fyrir skjöl, bréf,
fundargerðir, símbréf og grafísk gögn. Notendur geta flokkað gögnin, valið og skoðað út frá ýmsum sjónarhornum, sent og tekið á
móti skilaboðum, pósti og símbréfum. Með Notes má setja upp og stýra verkferlum, auka gæði og minnka skrifræði.
MWMjr';
Tölvupóstkerfið cc:Mail er eitt mest selda tölvupóstkerfi í heiminum. Undanfarna mánuði hafa margar stofnanir og fyrirtæki fest
kaup á cc:Mail, enda er kerfið mjög auðvelt í notkun, vinnur með og tengist flest öllum þekktum tölvum, tölvunetum og
-póstkerfum.
WmB OROANIZER
mrn& APPROACH
Approach er marg verðlaunaður gagnagrunnur sem gerir notendum kleift að vinna á einfaldan hátt
með flókin gagnavensl. Hægt er aðflytjagögn fráog tengjast fjöldamörgum þekktum
....I gagnagrunnum og skráformum fyrir grafískar vinnslur.
Hafið sainband við sölumenn i simo (91) 69 77 00
eða lítið við í verslun Hýherja hf. í SkqffqKlíð 24.
NÝHERJI
SKAFTAHLÍÐ 24 - SlMI 69 77 00
Alltaf skrefi á undan
Organizer er einfalt og öflugt skipulagskerfi sem er samhæft pappírsskinnunum frá Time Manager og Filofax. Á skjánum er Organizer
eins og dagbók, með kaflaskilum og efnisyfirliti. Organizer heldur m.a. utan um aðgerðalista, nafnalista, afmælisdaga og tengir þetta
dagbókinni. Hægt er að láta Organizer leita að lausum tíma hjá tveim eða fleiri notendum á tölvuneti og senda síðan fundarboð.