Pressan - 07.10.1993, Síða 40
HLUSTUM ALLAN
SÓLARHRINGINN
SÍMI 643090
I3yggingarnefnd Reykjavík-
urborgar hefur ákveðið að veita
um sinn ekki fleiri byggingar-
•'leyfi út á hús byggð eftir
Permaform-byggingaraðferð-
inni sem Ármann Örn Ár-
mannsson hjá Ármannsfelli
hefur kynnt og notað. Vill
Byggingarnefnd að
Rannsóknastofnun bygging-
_^ariðnaðarins hraði frekari
rannsóknum, en nefndin segir í
bókun sinni að hún sé ekki
sannfærð um að kröíúm bygg-
ingarreglugerða sé fullnægt í
öllum atriðum með þessari
byggingaraðferð. Þetta hlýtur
að teljast nokkurt áfall fyrir Ár-
mannsfell, sem reynt hefur að
vinna sér markað með þessari
ódýru byggingaraðferð...
erulegt bakslag er komið í
samningaviðræður Alþýðu-
bandalagsmanna og Mótvægis
f um þátttöku þeirra fyrrnefndu
í útgáfú Tírnans, en þær höfðu
gengið vel að mati þeirra sem
að þeim komu. Nú virðast Al-
þýðubandalagsmenn vera að
draga sig til hlés, að minnsta
kosti þangað til leyst hafa verið
ýmis „innanhússvandamár á
Tímanum.
Eitt þeirra
er samn-
ingur við
Framsókn-
arflokkinn
s e m
PRESSAN
sagði frá í
s í ð u s t u
viku. Annað er spurningin um
hver er nákvæmlega rekstrar-
staða blaðsins. Um það hefur
stjórn Mótvægis verið að spyrj-
ast fyrir, en gengið illa að fá um
það nákvæmar upplýsingar,
samkvæmt okkar heimild-
I
ngibjörg Sólrún Gísladóttir
hyggst á næstu dögum leggja
fram frumvarp sem m.a. tekur
til breytinga á biðlaunakerfí
þingmanna. Afsali þingmaður
sér þingmennsku fái hann ekki
b i ð 1 a u n .
Hverfi hann
til annarra
launaðra
starfa, hvort
heldur er til
einkaaðila
eða hjá Rík-
inu, fái
hann ekki
biðlaun. Inni í frumvarpinu er
einnig að ef þingmaðurinn er á
biðlaunum og fær starf, þá falli
biðlaunin niður það sem eftir
er biðlaunatímans. Ef starfið
semjrann þiggur er verr launað
en biðlaunin fái hann mismun-
inn greiddan út biðlaunatím-
ann. Við þetta bætist fæðingar-
orlof þingkvenna. Ekkert er til í
lögum þingfararkaups sem
tryggir konum á þingi fæðing-
arorlof. Hingað til hefur það
verið leyst persónulega og prí-
vat með veikindaorlofi eða ein-
hverju ámóta í þeim tilvikum
þegar það hefur komið upp...
SAfNAÐU 10 TOPPUM Af
PEPSIfLÖSKUM í GLEPI EÐA
PLASTI OG PÚ GETUP UNNIÐ
SPENNANDI
Risaeðluleikur Pepsi er spennandi og
skemmtilegur og enginn veit hvað getur gerst.
Til að vera með í leiknum safnar þú 10 töppum
af Pepsiflöskum í gleri eða plasti, svarar 3
léttum spurningum á þátttökuseðli sem þú færð
á næsta sölustað Pepsi og sendir eða kemur
með hvorttveggja til Ölgerðarinnar. Þar með ert
þú í risaeðlupottinum og getur unnið glæsilega
risasmábílinn Renault Twingo eða meiriháttar
risaeðluplakat. Tappar af 25 cl. og 35 cl. gler-
flöskum, 1/2 lítra, 1,5 lítra og 2 lítra plastflöskum
(Pepsi og Diet Pepsi) gilda.
KOMDU í PISAEÐLULEIKINN
- ÞÚ VEIST ALDREI +HVAÐ GETUR GERST!
SKILAFRESTUR ER TIL 12. NÓVEMBER
HF ÓLGERÐIN EGILL SKALLAGRÍMSSON.
GRJÓTHÁLSI 7-11.110 REYKJAVÍK
PISAEÐLUPLAKOT
PENAULT TWINGO
E Ð 1 L U 1 L E 1 1 K U R