Pressan - 11.11.1993, Blaðsíða 14
14 PRESSAN
E R L E N T
Fimmtudagurinn 11. nóvember 1993
Stunda skepnuskap
gegn
Næst þeaar þú ert aS drepast úr stressi er
kjörið aS klifra upp í tré og taka smásveiflu.
Þetta er ráSlegging frá Peter Elliot, stofnanda
Animals Inside Out- meðferSarhópanna í
London, sem sýna fólki hvernig best er að
losna við mikla streitu. AS sögn Elliots getum
viS losað um alls kyns höft í sálarlífinu og
komist í snertingu viS okkar innri mann ein-
faldlega með því að líkja eftir hegSun for-
feðra okkar. Fyrirtæki hans býður upp á
klukkustundarlanga meðferS þar sem orjátíu
og fimm manns byrja á því að öskra í kór og
stökkva um. SíSan velur hver manneskja sitt
uppáhaldsdýr, allt frá gíraffa til apa. Ekki
líður á löngu þar til
allir þátttakendur
eru farnir aS klóra
sér af áfergju, þefa
hver af öSrum og
klifra í trjám. Hvort
sem þessi nýstárlega
meðferS virkar eða
ekki er þetta ágætis
tækifæri fyrir þá, sem
lifa samkvæmt lögmál-
um frumskógarins, að
haga sér eins og virki-
legar skepnur.
GOFUGT
VILLIMENNIÐ.
Aö haga sér eins
og bavíani er nú
besta lækningin
gegn streitu.
Ofbeldi aldrei minna í
bandarísku sjónvarpi
OFBELDI. Ný fjölmiðlakönnun leiöir í Ijós aö ofbeldisatriöi í
bandarísku sjónvarpi eru mun færri en flestir halda.
Þegar Janet Reno, dóms-
málaráðherra Bandaríkjanna,
hóf á dögunum herferð gegn
ofbeldi í sjónvarpi brugðust
stjómmálamenn og íjölmiðlar
fljótt við. Allir helstu fjölmiðl-
ar landsins fluttu forsíðufregn-
ir af fullyrðingum hennar um
vaxandi ofbeldi í sjónvarpi og
flestir samþykktu þær um-
búðalaust.
Nú hefur nýleg könnun leitt
í ljós, öfugt við hrakspár Reno
og þeirra fjölmiðla sem for-
dæmdu ofbeldi í sjónvarpi
hvað harðast, að ofbeldi í leik-
inni dagskrá stóru sjónvarps-
stöðvanna hefur ekki verið
minna í áratugi. Þessi fullyrð-
ing byggist á niðurstöðu eins
virtasta rannsóknarhóps í fjöl-
miðlafræðum við Annenberg
School of Communication hjá
Pennsylvaníuháskóla. í könn-
un hópsins var ofbeldi skil-
greint sem „atferli eða hegðun
sem meiðir eða drepur, eða
hótar slíku ofbeldi11. Miðað við
þessa skilgreiningu voru 2,9
ofbeldisatriði á klukkutíma í
dagskrá síðasta árs, mun
minna en metfjöldi ofbeldisat-
riða, sem var 6,9 atriði á
klukkustund frá ’84-’85 og
talsvert minna en meðaltal síð-
ustu tuttugu ára sem er 5,3 at-
riði. Hlutfall þátta í kvölddag-
skrá sem sýndu eitthvert of-
beldi var lægra en meðaltal
síðustu tveggja áratuga og
hlutfall persóna sem tóku þátt
í morðum var aðeins 6,1 af
hundraði á móti 20,5 af
hundraði frá ’74-’75. Þess má
einnig geta að færri sjónvarps-
áhorfendur horfa á ofbeldis-
fuUa þætti en gerðu fýrir tutt-
ugu árum.
í ljósi þessa benda sumir á
að umræða um ofbeldi í sjón-
varpi hafi ekki grundvallast á
staðreyndum heldur tilfinn-
ingum og ekki síst pólitískri
yftrlýsingagleði dómsmálaráð-
herrans.
„Ég er líka mjög óhress meö sleniö í efnahagsmálunum. Þaö eina sem mig vantar em peningar til aö sýna þaö í verki.“
■
Alessandra Mussolini
fetar í fótspor afa síns
Þegar Napólíbúar ganga í kjörklefa 21. nóv-
ember til að kjósa borgarstjóra mun kunnug-
legt nafn standa þeim til boða. Alessandra
Mussolini, sonardóttir Benitos Mussolini ein-
ræðisherra, ætlar sér embættið í nafni nýfas-
istaflokksins Movimento Sociale ftaliano og allt
bendir til að þessi
sæta ljóska með
fræga eftirnafnið
muni hreppa
hnossið. Hún er
átta prósentustig-
um á undan næsta
keppinaut sínum í
skoðanakönnun-
um og um þriðj-
ungur kjósenda í
borginni hefur lof-
að henni atkvæði
sínu.
Alessandra, sem
er aðeins þrítug,
hefur, þótt ein-
kennilegt megi
virðast, notið góðs
af skyldleika sínum
við II Duce og situr nú á þingi fyrir MSI-flokk-
inn sem stefnir að því að hefja fasismann til
fyrri vinsælda á Italíu. Hún er elsta dóttir Ro-
manos Mussolini, djasspíanista sem var uppá-
haldssonur pabba síns, en móðir Alessöndru,
María Scicolone, er systir Sophiu Loren. Leik-
konan hefúr lítið yndi af ffænku sinni að sögn
kunnugra. En Alessandra nýtur mikilla vin-
sælda hjá Napólíbúum, ekki síst vegna þess að
hún hefur lítið sem ekkert komið við sögu í
stjórnmálahneykslum landsins. Hún hefur
hinsvegar að sama skapi lítinn skilning á pólit-
ískum veruleika Na-
pólí þar sem hún hef-
ur alla tíð búið í Róm
og hefur komið upp
um þekkingarleysi
sitt þegar mikilvæg
borgarstjórnarmál,
eins og gífurlegt at-
vinnuleysi og aukna
glæpi, ber á góma. En
Alessandra er vinsæll
frambjóðandi
kannski vegna þess
að hún er býsna
myndarleg og nátt-
úruleg ljóska. Árið
1983 birtust nektar-
myndir af henni í
karlablaðinu Playboy
og vöktu þær mikla
lukku meðal ítalskra karlmanna. „Ef Mussolini
verður borgarstjóri gæti hún í það minnsta
breytt ráðhúsinu í vændishús,“ segir leigubíl-
stjóri í Napólí. „Hvemig gæti hún annars end-
urgoldið þá skuld sem afi hennar stofnaði til?“
Byggt á The European
ALESSANDRA MUSSOLINI. Virðist ætla að sigla í borgarstjóra-
stól út á eftirnafnið.
Af sama tilefni hefur forlagið að auki gefið út geisladisk og kassettu með lögum
við texta Tómasar. Þar er að finna nokkrar af helstu perlum íslenskrar
dægurtónlistar i flutningi þeirra Egils Olafssonar og Guðrúnar Gunnarsdóttur,
s.s. Hótel Jörð, Tondeleyó og Fyrir átta árum.
ALMENNA BOKAFELAGIÐ HF
Fagra veröld er ein þekktasta IjóSabók Tómasar GuSmundssonar - eins ástsælasta
IjóÖskálds þjóöarinnar fyrr og síðar. Eftir aö Fagra veröld kom fyrst út áriö 1933 hefur Tómas
jafnan verið nefndur Reykjavíkurskáldið - enda sýndu Ijóð hans Reykjavík í allt öðru og fallegra
Ijósi en áður hafði þekkst meðal íslendinga. í tilefni af 60 ára útgáfuafmæli Fögru veraldar
hefur Almenna bókafélagið nú endurútgefið þessa eftirsóttu Ijóðabók.
FÖGUR UÓÐ OG SKEMMTILEG LÖG