Pressan - 11.11.1993, Blaðsíða 24
DÆGURFLUG
24 PRESSAN
Fimmtudagurinn 11. nóvember 1993
MEGAS. Fór á kostum í kynningu, en flutningurinn var oft fullblóðlítill.
Megas í MH
Það þurfti ekki að
fara upp á Snæfells-
^pies til að vonast eft-
ir niðurstigningu.
Megas var með
Nýdanskri í MH á
föstudag og sunnu-
dag og það var ekki
eingöngu huglægt.
Margt var um
manninn á föstu-
daginn. Mennta-
skólanemar fjöl-
menntu, en innan
um mátti sjá gamla
aðdáendur sem ef-
laust mættu líka
fimmtán árum fyrr.
í þetta skiptið voru
færri í lopapeysum.
Tónleikarnir voru
í fjórum hollum
með einu hléi. Eftir
tónverkið, sem hóf einnig
Sjálfsmorðsdrögin, birtust
þeir nýdönsku og Megas og
hófu kvöldið á „Smekksat-
riði" af Bláum draumum.
Megas á líklega fleiri hundr-
uð lög á lager en þetta kvöld
var skammturinn 25 lög og
eins og auglýst hafði verið
komu þau frá ýmsum tímabil-
um; nýjum lögum, sem sum
lofuðu góðu, var blandað við
eldri meistaraverk. Hópurinn
keyrði næst í frábæra útgáfu
af „Silfri Egils" og „Þó þú
gleymir guði" kom skömmu
síðar í létt raggí-ískri „funda-
mental" útgáfu. Annað hollið
fólst í því að Yrju-söngkon-
urnar mættu í bakraddirnar. [
sumum lögum voru þær
ágætis bragðbætir en stund-
um var þeim hreinlega ofauk-
ið. Þær hefðu líka mátt láta
bera minna á sér; hin frábæra
dramatík, „Útumholtog-
hæðablús", féll t.d. algjör-
lega vegna látanna í þeim, en
hressari lög eins og „Litlir
sætir strákar" og „Lísu-
blúsinn" sluppu fyrir horn.
Síðasta lag fyrir hlé var
sæmileg útgáfa af „Ef þú
smælar framan í heiminn" og
eftir hléið mætti hópurinn
aftur á svið. Fyrst komu nokk-
ur létt verk án trommu og
orgels, þ.á m. frábært nýtt
lag sem tileinkað var fjár-
málaráðuneytinu. Síðasta
hollið hófst þegar Guðlaugur
Óttarsson mætti með gítar-
inn á leðurfrakkanum. Þá var
keyrt í mestu stuðlög Megas-
ar, „Reykjavíkurnætur", „Par-
adísarfuglinn" og „Krókó-
dílamanninn", sem fylgdu svo
mikil fagnaðarlæti að hljóð-
himnurnar sprungu næstum
því. „Vörutalningarblús" var
firnagóð samsuða upp úr
„Lóu Lóu" og margir misstu
andlitið þegar Megas kynnti
„upprisulagið sjálft" sem
reyndist vera „Horfðu til him-
ins", Commitments-lag þeirra
nýdönsku. Túlkun Megasar á
textanum var spaugileg. Að
lokum tók hópurinn „Fatla-
fólið", þar sem næstum því
allir fengu að spreyta sig í
söngnum. Þrátt fyrir gífurleg
fagnaðarlæti var ekkert
aukalag.
Tónleikarnir voru í heild
ánægjulegir. Megas var í
ágætu stuði og fór að vanda
á kostum í kynningunum, og
bandið small oftast vel saman
þó á köflum væri flutningur-
inn fullblóðlítill.
Hafi listamennirnir og Leik-
félagið þakkir fyrir góða
skemmtun.______________________
Gunnar Hjálmarsson
Þá er það ífágengið. Það er búið að finna besta
koníak í heimi. Svo segja að minnsta kosti dómar-
ar GaultMiUau í Frakklandi, sem eru helstir þar-
lendra sérffæðinga um dýrindis vín og mat. Þeir
gáfú Initiale Extra ffá Courvoisier átján stig af tutt-
ugu mögulegum í nýlegu prófi og sögðu að þar
væri komið besta koníak í heimi. Ríkið hefúr auð-
vitað ekki séð ástæðu til að koma þessu eðalvíni í
sínar hillur, en það
fæst í Fríhöfn-
inni.
TÓNLIST
Velheppnaður samruni
„Thirteen er ekki alveg jafnfrúbœr og
síðasta plata, en hún er nálcegtþví, og
með allra bestu plötum þessa árs. “
ÝMSIR FLYTJENDUR
JUSTICE NIGHT
Meðal sterkustu rokk-
strauma síðustu ára hafa ver-
ið þungarokkið og rappið í
öllum sínum margbreytileika.
Ýmsir hafa reynt að sameina
þessar stefhur — RUN DMC
komu inn í Aerosmith-lag,
Anthrax comu inn í Public
Enemy-lag — en Justice
Night er fýrsta platan þar sem
bræðingur af þessu tagi er
allsráðandi. Þetta er víst
„sándtrakk“ úr nýrri bófa-
mynd sem ég veit ekkert um,
enda hefur platan vakið
miklu meiri athygli en sjálf
myndin. Platan er bæði
merkileg og skemmtileg. I
flestum tilfeílum hefur sam-
runinn tekist mjög vel og út-
koman er aldrei vandræðaleg
þótt hún sé svo sem það sem
búast mátti við — rapp með
rokkfrösum eða graðhesta-
rokk með taktfestu rappsins.
Samruninn getur ekki af sér
nýjan tónlistar-Frankenstein,
heldur tvíhöfða rum þar sem
„hausar“ stefnanna gjamma
hvor ofan í annan.
Sveitirnar eru af ýmsum
„styrkleika“ og er stillt upp
með það í huga. Þyngstu
gaddavírsböndin fá á sig örg-
ustu rapparana. Slayer og Ice-
T fá t.d. sameiginlega útrás, á
meðan Teenage Fanclub og
De La Soul finna poppaðan
flöt til að vinna úr. Annað
gott er illskurokkrapp Helmet
og House of Pain, óður Sonic
Youth og Cypress Hill til
hassreykinga og „Freak
Momma“ þar sem Sir Mix-a-
Lot og Mudhoney teygja
formið í nýjar áttir.
Það er óhætt að mæla með
þessari plötu bæði fýrir rokk-
ara og rappara. Hér er nóg af
þeim kraffi og rokkuðu útrás
sem laðar fólk að þessari tón-
list.
Skoskir
snillingar
TEENAGE FANCLUB
THIRTEEN
★★★1/2
Síðasta plata skosku sveit-
arinnar Teenage Fanclub,
„Bandwagonesque“, kom út
1991 og varð umsvifalaust sí-
gild enda heilsteypt og mjög
grípandi poppplata með
rokkuðum undirtóni. Sveitin
fékk þar nánast allt að láni ffá
sveitinni Big Star, sem starf-
aði í byrjun sjöunda áratugar-
ins en hlaut ekki verðskuldað
sæti í rokksögunni fyrr en
fyrir nokkrum árum þegar
kom í ljós að nánast allt
bandarískt gítarrokk síðasta
áratugar var ættað í beinan
karllegg frá sveitinni. Fólk
þarf ekki nema bera saman
plötur REM og Big Star til að
sjá áhrifin svart á hvítu.
Teenage Fanclub sækja í
þennan gnægtabrunn og
tekst frábærlega að búa til
heilsteypt og persónulegt
popp. Einhver myndi kalla
þetta gáfumannarokk en
þunnir textarnir, sem minna
stundum á berstrípaða ung-
lingatexta glimmertímabilsins
(Yeah! I’m in love with you),
hindra að sú samlíking gangi
fullkomlega upp. Tónlist
sveitarinnar minnir á fleiri se-
ventís-hetjur en Big Star. Á
plötunni fá þeir að láni rokk-
riff frá Marc Bolan, afslapp-
aðan kántrí-fíling frá Neil Yo-
ung og heilt slædgítarsóló úr
George Harrison-laginu „My
Sweet Lord“, sem hann fékk
hvort sem er að láni ffá ein-
hverjum öðrum. Úr þessu og
eigin tilfinningu fyrir form-
inu hræra þeir saman hrotta-
lega grípandi melódíur. Þrátt
fýrir að fleiri leiti í sömu upp-
sprettuna tekst Teenage
Fanclub betur en flestum að
virka sannfærandi, því hljóm-
urinn er auðþekktur og þeir
eru að skapa eitthvað nýtt úr
gömlum popppörtum.
„Thirteen“ er ekki alveg jafn-
frábær og síðasta plata, en
hún er nálægt því, og með
allra bestu plötum þessa árs.
POPP
FIMMTUDAGURINN
1 1 . NÓVEMBER
• Black out heldur enn velli
þrátt fýrir nafhgiftina. Þeir
verða á Tveimur vinum.
• Tríó sunnan þrír er tríó
Ásgeirs Óskarssonar sem
leikur á hinum mexíkóska
Cancun.
• Alveg svartir hljómar
eitthvað svipað og Black out
en ku þó ekki vera sama
hljómsveitin. Þessi svörtu
verða á Gauk á Stöng.
• Stjórnin leikur óraf-
mögnuð við opnun nýs
staðar í gömlum búningi
sem áður hét Plúsinn. Nýja
nafinið er Bóhem. Barflugur
mega vænta breiðari tónlist-
ar effir breytingarnar á Vita-
stígnum.
• Viridian Green kom
ffam í fýrsta sinn á Hressó í
síðustu viku og gerir aftur í
kvöld. Ekki er margt um
sveitina vitað en einhver
heldur því ffam að hún spili
metnaðarfulla og fram-
sækna rokktónlist, eilítið
þunglyndislega og sýrða.
• Hermann Ingi sem fýrr á
Fógetanum. Ætli hann búi
þama?
FÖSTU DAG U R I N~N~|
1 2. NÓVEMBER
• Pláhnetan með hinum
ofursexí sturtugaur Stefáni
Hilmarssyni, sem fer
kannski úr að ofan. Úúúú. Á
Tveimur vinum og öllum
vinum þeirra.
• Marmelaði er væntanlega
eitthvað ofan á brauð. Það
spilar á Gauki á Stöng'.
• Combó Ellenar Krist-
jánsdóttur leikur gegnt Sól-
oni íslandus, eða því sem
næst, á Cancun.
• Hilmar Sverrisson er
trúbador sem leikur á Mím-
isbar hinum dulúðuga.
• Snæfríður og stubbamir,
Þyrnirós, Öskubuska og allir
hinir á Fógetanum.
• Geirmundur Valtýsson
og hljómsveit í réttu um-
hverfi á Hótel íslandi með
hestafólki sem er að gera
upp liðna vertíð. Almenni-
leg skagfirsk stóðhesta-
sveifla.
• Síróp tekur blús á Blús-
barnum, enda kemst enginn
upp með annað þar. Jafnvel
þótt þeir fíli diskó í ffistund-
um.
• Tregasveitin skapar
gamla og nýja blússtemmn-
ingu á þeim ágæta tónlistar-
bar sem áður bar nafnið
Plúsinn. En heitir nú Bó-
hem.
LAUGARDAGURI NN|
1 3. NÓVEMBER
• Todmobile með tónleika,
ekki ball. Ég endurtek tón-
leika með bestu tónlistinni
sinni. Á hinum ffábæra tón-
listarstað Tveimur vinum á
Frakkastígnum.
• Marmelaði verður smurt
um alla veggi á Gauk á
Stöng.
• Combó Ellenar Krist-
jánsdóttur bendir til þess að
hún sé enn vaxandi lista-
maður. Aftur á Cancun.
• Hilmar Sverrisson bíður
gesta á Mímisbar.
• Saga Class og Er það satt
sem þeir segja um landann,
hin lífseiga grínsýning, á
Hótel Sögu.
• Hljómar leika fýrir dansi
eftir að Sigurdór Sigurdórs-
son blaðamaður og hinir
roJddingarnir eru búnir að
láta ljós sitt skína. Nostalgía.
• Síróp og annar sætur blús
á Blúsbarnum. Bandið
geymir þá Róbert, Arnar
Þór, Jón Tryggva, Guðbjart
og aldinn blúsanda.
• Ríó Tríó tekur upp þráð-
inn þar sem ffá var horfið í
Þotunni í gær. Nú á Bóhem
við Vitastíginn.
• Snæfríður og stubbamir
frá Þorlákshöfn. Fagurgal-
arnir verða á Fógetanum.
SUNNUDAGURINN |
I 4, NÓVEMBER
• Skriðjöklar gera allt vit-
laust á Gauki á Stöng með
tónlistarfólki og áhangend-
um þess.
• Jónas Ingimundarson pí-
anóleikari ædar síður en svo
að spila popp. Hann flytur
ljóðræn smálög eftir Edvard
Grieg í Gerðubergi klukkan
þrjú á sunnudag í tilefhi þess
að eitt hundrað og fimmtíu
ár eru liðin frá fæðingu
hans.
• Hermann Ingi lokar helg-
inni á Fógetanum.
SVEITABÖLL
FÖSTU DAGURINN |
1 2. NÓVEMBER
• Áslákur, Mosfellsbæ. Ný-
opnuð sveitakrá loks á rétt-
um stað, burtu ffá ys og þys
borgarlífsins. Útlagarnir
spila sveitatónlist.
• Hafúrbjöminn, Grinda-
vík. Örkin hans Nóa dregur
upp á yfirborðið hverja
krömmí krána á fætur ann-
arri og spilar þar.
• Þotan, Keflavík. Fær
gömlu framsóknarmennina
úr Ríó tríóinu í heimsókn.
Diskótek á eftir.
• 29, Akureyri. Bubbleflies
á sextán ára dansleik. Með í
för verða þeir Tóti trans,
Kiddi kanína og Ýmir DJ.
• Áslákur, Mosfellsbæ. Út-
lagarnir spila. Rykið dustað
af kúrekahöttunum.
• Röst, Hellissandi. Örkin
hans Nóa ætlar að halda
hörkudansleik.
• Þotan, Keflavík. Þangað
storma Nýdanskir til að
kynna plötuna sína.
• Dynheimar, Akureyri.
Ravehátíð og félagsheimilis-
stuð með Bubbleflies, hinni
næstum því heimsþekktu
hljómsveit
• Hvolur, Hvolsvelli. Plá-
hnetan með stórdansleik og
Stebba Hilmars auk gömlu
loðnu Rikshaw-rottanna.