Pressan - 03.03.1994, Síða 3
+#
HÚN
BATNAR OG
BATNAR..
Arsfundur Landsbanka ís-
lands verður haldinn í dag.
Þar mun formaður banka-
ráðs, Kjartan Gunnarsson, gera
stjómendum og fulltrúa eigenda
bankans, Sighvati Björgvinssyni
viðskiptaráðherra, grein fyrir erfiðri
stöðu bankans. Skv. heimildum
PRESSUNNAR verður hagnaður
Landsbankans aðeins 42 milljónir
króna. En það sem segir meira um
erfiða stöðu bankans er að gert er
ráð fyrir að tveir milljarðar hafi
verið lagðir á afskriftarreikning til
að mæta útlánatapi síðasta árs.
Segja sömu heimildir ennffemur
að bankinn geri ráð fyrir að nauð-
synlegt verði að leggja aðra tvo
milljarða á afskriftarreikning fyrir
þetta árið. Því sé í raun fyrirsjáanleg
nauðsyn á að setja um fjóra millj-
arða á afskriftarreikning til að
mæta tapi þessa árs og þess síðasta.
Segja heimildir innan bankanna að
eðlilegra væri að afskrifa strax þrjá
milljarða fyrir síðasta ár og einn á
þessu. Afskriftum nú sé í raun hag-
að þannig að það megi kreista ffam
smáhagnað, en eðlilegra væri að
taka á vandanum strax. Skýringin á
því að stjórn bankans hefur ákveð-
ið að dreifa þessum fjórum millj-
örðum á tvö ár er m.a. talin sú að
ríkið kom bankanum til bjargar sl.
vor og stjórn bankans geti ekki
kinnroðalaust kynnt svo slæma
stöðu. Þá hélt Davíð Oddsson for-
sætisráðherra því ffam að Lands-
bankinn hefði verið notaður sem
„félagsmálastofnun atvinnulífsins".
Lagði ríkið bankanum til um tvo
milljarða sem eigið fé, Seðlabanki
veitti honurn 1,25 milljarða í víkj-
andi lán og Tryggingasjóður ríkis-
bankanna veitti einn milljarð í lán.
Því leggi Landsbankamenn einfald-
lega ekki í að kynna afskriftir upp á
sömu upphæð ári síðar, enda á að
halda blaðamannafund í kjölfar
ársfundarins og gefa pressunni færi
á að spyrja spurninga úr þeim
gögnum sem þar verður dreiff...
Meira um slæma stöðu
banka. Islandsbanki mun
halda aðalfund sinn í lok
aprílmánaðar og segja heimildir
PRESS UNNNAR að þar
verði ekki mikið um gleði-
ffegnir fyrir hluthafa. Tap
bankans sl. ár verði senni-
lega nálægt 200 milljónum
króna og að miklar fjár-
hæðir verði lagðar á af-
skriftarreikning. Er þar
um annað tapárið í röð að
ræða hjá fslandsbanka, en
tap ársins 1992 nam 176,5
m.kr. Var mikil ólga á síð-
asta hluthafafundi, . þar
sem margir voru sár-
óánægðir með lágar arð-
greiðslur, en aðeins var
greiddur 2,5% arður. Ef
ofangreindar tölur reynast
réttar er hætt við að hlut-
hafar fslandsbanka verði
litlu kátari þetta árið. Hins
vegar eru íslandsbanka-
menn bjartsýnni á ffam-
tíðina og vonast til að sjá
hagnað í lok þessa árs...
Hagnaður Búnaðar-
bankans var 47
m.kr. á síðasta ári.
Búnaðarbankamenn eru
þó óánægðir með þá nið-
urstöðu og telja að eðlileg-
ur hagnaður ætti að
standa nær 350 m.kr.
Framlög á afskriftarreikn-
ing Búnaðarbanka jukust
stórlega eða úr 637 m.kr.
1992 í tæpar 1.200 m.kr.
1993. Hins vegar vonast
Búnaðarbankamenn til að
ekki þurfi að taka ffá
„nema“ um 600 milljónir
króna á þessu ári til að
mæta hugsanlegu tapi
vegna glataðra útlána og
að hagnaður verði nær því
sem telja megi „eðlilegt“...
Svo sem PRESSAN
greindi ffá í október
gerði fyrirtækið List-
ljós hf. í Kópavogi samn-
ing við Kópavogskaupstað
í mars sl. sem margir aðil-
ar gætu öfundað Listljós
af. Þar skuldbatt Kópa-
vogskaupstaður sig t0 að
kaupa ffamleiðsluvörur af
Listíjósi fyrir 6 milljónir
króna á fjórum árum og
skuldbatt bærinn sig til að
greiða vörurnar með
reglulegum tímasettum
greiðslum, sem hækka
miðað við lánskjaravísi-
tölu. Síðast en ekki síst
„skuldbatt (Kópavogs-
kaupstaður) sig til að inna
ofangreindar greiðslur af
hendi á umsömdum tíma
þrátt fyrir að dráttur verði
á afgreiðslu vörupantana
af hálfu Listljóss hf. af ein-
hverjum ástæðum svo
sem ef rekstur Listljóss hf.
stöðvast eða fyrirtækið
verður gjaldþrota“. ‘ Allt
stefndi í að fyrirtækið yrði
gjaldþrota, skuldir voru
um 30 mOljónir og engar
eignir til fyrir skuldum.
Listljós hf. hefur nú verið
tekið til gjaldþrotaskipta
með úrskurði Héraðs-
dóms Reykjaness ffá 18.
janúar sl. Kópavogsbær
hefur enn ekki lýst kröfum
í búið, enda væri það tO
lítils miðað við ofan-
greindan samning...
r+
Þýskir
verðbréfa
sjóðir
Arið 1990 gerði Kaupþing hf. samning
við Deutsche Bank um sölu á hlut-
deildarskírteinum í verðbréfasjóðum
dótturfyrirtœkja hans í Þýskalandi og
Lúxemborg. Frá áramótum hafa ís-
lendingar getað fjárfest í erlendum
langtímaverðbréfum ám takmörkunar
áfjárhæð. Skynsamleg fjárfesting í erlendum verðbréfum dreifir áhættu og getur verið leið til aukins
fjárhagslegs öryggis. Erlendir verðbréfasjóðir hentaflestum betur en einstök erlend verðbréfvegna
innbyggðrar áhættudreifingar verðbréfasjóðanna.
Akkumula
Alþjóðlegur hlutabréfasjóð-
ur sem leggur áherslu á að
fjárfesta í öruggum hluta-
bréfum í Frakklandi, Banda-
ríkjunum, Japan, Sviss,
Hollandi og Þýskalandi.
•Stofndagur: 3. júlí 1961
•Stærð: 20 milljarðar
•Nafnávöxtun í ISK 1993
36,6%
Eurovesta
Evrópskur hlutabréfasjóður
sem fjárfestir eingöngu í
öruggum hlutabréfum á
Evrópumarkaði.
•Stofndagur: 7. nóv. 1988
•Stærð: 27,7 milljarðar
•Nafnávöxtun í ISK 1993
38,4%
Re-inrenta
Alþjóðlegur skuldabréfa-
sjóður sem fjárfestir um
helming eigna sinna á
Þýskalandsmarkaði.
•Stofndagur: 2. maí 1972
•Stærð: 4,7 milljarðar
•Nafnávöxtun í ISK 1993
26,2%
Tiger-fund
Sjóðurinn fjárfestir aðallega í
hlutábréfum, skuldabréfum
og viðskiptum með valrétti í
Suðaustur-Asíu
•Stofndagur: 6. október 1989
•Stærð: 21,4 milljarðar
•Nafnávöxtun í ISK 1993
104%
KAUPÞING HF
Löggilt verðbréfafyrirtœki, Kringlunni 5, sími 689080
i eigu Búnaðaibanka Islands og sparisjóðanna
Deutsche Bank