Pressan - 03.03.1994, Blaðsíða 7

Pressan - 03.03.1994, Blaðsíða 7
Rauðakrosshúsið: „Því miður“ „Þetta er áttatíu ára gamalt hús á þremur hæðum og herbergin eru uppi á efstu hæðinni, þannig að húsnæðið er þeim annmörkum háð að því miður getum við ekki tekið á móti slíkum gestum nema í stofu, sem er á fyrstu hæðinni,“ segir Ólöf Helga Þór, forstöðumaður Rauðakross- hússins, sem rekur neyðarathvarf fyrir börn og unglinga. Hvað geriðþið ef unglingur í hjólastól kemur og biður um vist? „Stiginn upp á loft er það erfiður að það er í raun ekki hægt að bera manneskju upp í honum, en það er hægt að búa um viðkomandi á dýnu á gólfi yfir blánóttina í stofji. En það er engin aðstaða og salernið er allt of lítið. Fatlaðir eða fólk í hjólastól getur ekki dvalið hjá okkur í langan tíma. Því miður er húsnæðið þeim annmörkum sett.“ Hvaða ráð gefið þið í svona tilvikum? „Það sem við getum gert í svona tilvikum er að benda viðkomandi unglingi á félagsmálayfirvöld í viðkomandi bæjarfélagi og á svæðis- stjóm fatlaðra. Það er það eina sem við getum gert.“ SÖLUBÖRN / FORRÁÐAMENN NÚ ER RÉTTITÍMINN TIL AÐ SELJA PRESSUNA! EKKIBARA VEGNA ÞESS AÐ HÆGT ER AÐ HAFA GOTT UPP ÚR ÞVÍ, HELDUR LÍKA VEGNA ÞESS AÐ: Hjálpræðisherinn: „Því miður“ „Því miður er þetta hús það gamalt að hér er ekki aðstaða til að taka á móti fólki í hjólastól,“ segir Daníel Óskarsson, deildarstjóri Hjálpræð- ishersins á íslandi. „Við verðum að taka tillit til þess að þetta er hús frá 1916 og byggt með háum og mjóum tröppum, þannig að það hentar ekki vel fyrir hjólastóla, það var byggt áður en það kom til.“ Hvað gerið þið ef stúlka í hjólastól kemur og biður um gistingu? „í sambandi við gistingu mundum við ekki geta sinnt henni af því að það eru ekki lyftur í húsinu. Þetta er gamalt hús og þröngt þannig að það væri ekki forsvaranlegt, hennar vegna. Ég veit ekki hvert ætti að vísa henni, líklega á Rauðakrosshúsið." Félagsmálastjóri Garðabæjar: Rannsakað ofan í kjölinn „Ég var að koma af fundi með svæðisstjórninni sem var að ræða hennar mál rétt einu sinni,“ sagði Sigfús Johnsen, félagsmálastjóri í Garðabæ, þegar blaðið leitaði til hans. Getur það staðist að henni sé alls staðar vísaðfrá? „Nei, þetta er nú ekki svona. Þessi elska á óskaplega bágt, það er eng- in spuming. Hún er með miklu meiri tilsjón en nokkur annar hér á Reykjanessvæðinu og hún rekst bara ákaflega illa og hallmæhr heimili sínu mikið. Það er búið að vinna mjög mikið í hennar málum. Hins vegar má vel vera rétt að úrlausnaratriði, nákvæmlega fyrir þessa stúlku, séu ekkert galopin, en ffam að þessu hefur nú þótt eðlilegt að hún væri heima hjá sér. Þau eiga hér elskulegt og fallegt heimili foreldrar hennar og hafa sinnt henni ákaflega vel, að því er við teljum. Við höfum gert allt sem í okkar valdi stendur til að koma henni áfram. Á fundinum áð- an var ég að knýja á um það hvort hægt væri að taka hana inn á eitt- hvert sambýli.“ Hvað með ásakanir hennar gagnvart foreldrum sínutn og að neyðarat- hvörfin taki ekki við henni? „Þetta er nú það sára sem þessir foreldrar þurfa að horfa upp á. Þetta er alls ekki rétt að bætumar séu teknar af henni og illa farið með hana þama heima. Sem betur fer er það alrangt hjá blessaðri stelpunni.“ Hún ergreinilega með talsverða áverka, hverniggetið þið kannað sann- leiksgildi þess? „Samband hennar við mig hefur nú verið það beint að hún hlyti að hafa sagt mér eitthvað um þetta mál. En ég er tilbúinn að láta rannsaka það alveg niður í kjölinn ef einhverjar dylgjur em um það að pabbi hennar berji hana. Þá hgg ég ekkert á því.“ Þór Þórarinsson, framkvæmdastjóri Svæðis- skrifstofu Reykjaness: Athvörfin verða að taka við henni lögum samkvæmt „I hennar tilviki er verið að reyna með mjög ákveðnum hætti að út- vega henni þær aðstæður sem hún getur sætt Sig við,“ segir Þór Þórar- insson, framkvæmdastjóri Svæðisskrifstofu Reykjaness í málefnum fatl- aðra. Nú eru á annað hundrað manns á biðlista eftir sambýli fyrir fatlaða. „Hún býr við mjög erfiðar aðstæður og við horfum á það. Það kallar á að hún fái forgang, en það em mjög margir sem hafa forgang, því miður.“ Hún er á götunni og neitar aðfara heim. Neyðarathvörf taka ekki við henni. Eru til einhver tímabundin neyðarúrrœði? „Ég get ekki svarað þessu að öðru leyti en því að við emm með ákveðin úrræði hér, þessa sértæku þjónustu fyrir fatlaða. Við erum ákveðnum takmörkunum háð. Hins vegar er það lagaskylda þessa al- menna kerfis að veita fötluðum þjónustu jafnt sem ófötluðum. Ég vil fá að heyra rökin hjá þessum athvörfum, önnur en að það sé ekki hægt að lyfta konunni upp úr hjólastólnum og færa stólinn. Þetta liggur í hlut- arins eðli. í þessu landi gilda lög þar sem fólk á að eiga jafhan rétt til þjónustu og mér þætti gaman að heyra þessi rök.“ PRESSAN EFNIRTIL SAMKEPPNII^H BLAÐBURÐARBÖRNIN FÁ: ♦ POPP OG PEPSÍ ÞEGAR ÞAU SKILA AF SÉR LEIKTÆKJAKORT EÐA BÍÓMIÐA FYRIR EINN KVÖRTUNARLAUSAN UTANLANDSFERÐ FYRIR TVO PIZZUR GOS SÆLGÆTIBÍÓMIÐAR LEIKTÆKJAKORT ÖLL NY SÖLUBÖRN FÁ: BLÖÐIN SEND HEIM HÚFURBOLIPENNA POPP OG PEPSÍ ALLTAF ÞEGAR ÞAU SKILA AF SÉR ÞRJÚ ÞAU SÖLUHÆSTU í MÁNUÐI FÁPIZZUROG KÓK FYRIR SÖLU Á 100 BLÖÐUM FÁST LEIKTÆKJAKORT EÐA BÍÓMIÐAR RÚSÍNAN í PYLSUENDANUM ER SVO UTANLANDSFERÐ FYRIR TVO MEÐ ALISIAGUST — TIL LEGOLANDS. FIMMTUDAGURINN 3. MARS 1994 PRESSAN 7

x

Pressan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Pressan
https://timarit.is/publication/298

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.