Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 31.03.1963, Qupperneq 16

Tíminn Sunnudagsblað - 31.03.1963, Qupperneq 16
Múlatafla, fremst á Skálmarnesmúla. (Ljósmynd: Þorsteinn Jósepsson). í myrkrinu eins og þeir nafnar voru vanir að gera, þegar báðir voru heima. En tvær nætur svaf hann í garð- anum hjá fénu. Þar var ögn hlýrra, og þar var hann ekki eins emmana og hjá músunum á baðstofuloftinu. Það fylgdi því mikil öryggiskennd að heyra andardrátt og tannagnístran ki'ndanna og brambolt hrútsins og sjá glóra í augun á krónni í myrkrinu. Eina nóttina gerðist atburður, sem skaut honum skelk í bringu. Þá veitt- ist honum erfitt að sigrast á sjálfum sér. Hann hafði lagzt til sVefns í 1 rúmi sínu í baðstofunni og hlúð að , sér sem bezt hann gat. Allt í einu ' hrökk hann upp við einhvern skruðn- • ing niðri í geymslunni undir bað- J stofuloftinu. Hann heyrði ekki betur en að eitthvað slægist við loftstig- • ann og dinglaði þar fram og aftur 1 dálitla stund. Hann glaðvaknaði undir eins, og fyrst af öllu flaug hon- , um í hug, að nú væri Ari frændi i kominn heim. En svo varð undar- i lega hljótt niðri eftir þennan skark- ala. Hvers vegna kom maðurinn ekki beina leið upp? Drengurinn hlustaði góða stund. Svo kallaði hann. En hann fékk ekki j neitt svar. Þá fór að fara um hann. Dauft skin olíulampans veitti lítið öryggi andspænis dulúð hins kvika 1 m.vrkurs fyrir neðan stigagatið. Hann lá lengi grafkyrr og beið átekta. En það var steinhljóð niðri. Sofnað gat hann ekki, og geigvænlegar hugsanir ásóttu hann. Hann varðist þeim eftir mætti — reyndi helzt að telja sér trú um, að kindumar hefðu komizt upp í garðann og farið gegnum hey- tóftina inn í auðu húsin og geymsl- una. Loks stóðst hann ekki lengur mát- ið. Það var skaftkústur uppi á loft- inu, því að þeir frændur sópuðu hjá sér gólfið, rétt eins og tíðkaðist á bæjunum í sveitinni. Ari Guðmunds- son var snyrtimenni, þrifinn og nat- inn. Nú tók drengurinn lampann í aðra höndina og kústinn í hina og læddist að stigagatinu. Hann stakk kústskaftinu gætilega undir hlerann, lyfti honum örlítið og lét hann svo skella niður aftur. Kindurnar áttu að styggjast við þetta, ef þær voru niðri í geymslunni. En hann varð ekki var neinnar hreyfingar niðri, hvernig sem hann skellti hleranum. Það var ískyggilegast af öllu. Hvað var það þá, sem var á kreiki þarna niðri? Hann barðist harðri baráttu við sjálfan sig. Um síðir áræddi hann þó að opna stigagatið alveg og gægj- ast niður. Honum brá í brún, því að niðri á gólfinu glitti í eitthvað, sem líktist flöktandi .glyrnum. Hann var með lampann í hendinni, haldreipi sitt í vá myrkursins, og nú hleypti hann í sig kjarki, sem honum var mestur gefinn. Hann lét ljósið síga ofurlítið niður í stigagatið. Þá sá hann, að tunnugjörð liá í einu stiga- haftinu. Þetta jók honum hugrekki. Hann mjakaði lampanum neðar og rýndi sjálfur niður í myrkrið. Og viti inenn; Það var bleyta, sem hann sá glytta í á gólfinu. Það hafði sprung ið gjörg af sláturtunnu, og það, sem ófrosið var af sýrunni, hafði runnið út á gólfið. Honum létti óumræði- le.ga, þegar hann uppgötvaði þetta. Ógnþrunginn kyngimáttur myrkursins dvínaði skyndilega, og hann vissi og skildi, hvag gerzt hafðl Þessi at- burður varð honum hvöt til þess að láta ekki hugfallast, þótt honum virt- ist ettthvað uggvænlegt í bili. III. Loks batnaði veðrið fyrir alvöru. Það heiddi til, og yfir snæviþökt- um fjörðum og múlum hvelfdist blár himinn. Á föstudagsmorguninn var kyrrt og bjart veður. Árla þann da-g bar gest að garði í Fjarðarseli. Það var Jón bóndi Ólafs son á Vattarnesi. Hann var í póstferð út á Múlanes og hafði tekig á sig krók yfir eiðið til þess að forvitnast um, hvernig nöfnunum í Fjarðarseli liði. Hann varð fár við, er hann heyrði, að Ari hafði ekki komið heim úr að- dráttarferðinni út að Múla og dreng- urinn hafzt vig einn í selinu í heila viku. 304 i X f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.