Tíminn Sunnudagsblað - 14.04.1963, Síða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 14.04.1963, Síða 2
ÍOÚST SIGURÐSSON, cand. theol BREIÐABÓLST AÐUR / VESTURHÓPI Alimargir bæir bera nafnið Breiða- bóistaður(-ir) hér á landi. Þrjú presta köll heita eftir prestsetrum á Breiða- bólstað, — Breiðabólstað í Fljótshlíð, BreiðabólstaS á ' Skógarströnd og Breiðabólstað í Vesturhópi. Öll eru þessi rrestaköll nú laus til umsóknar. Við þessa staði alla er bundin merk saga, ekkí sízt þann, er hér verður um fjallað, -Breiðabólstað í Vestur- hópi. Þar sátu snemma höfðingjar og ríkir búendur, hér stóð bvggð Hafliða Mássouar; hér voru lögin færð í let- ur 1117—1118; hér var fyrsta prent- verk á íslandi. Því veitti forsjá Jón svenski Matthíasson prestur á Breiða bóistað, en herra Jón Arason fékk verkig til landsins um 1530. Síðar náði Guðbrandur biskup Þorláksson á því eignarhaldi og flutti til sín að Hólum. Á Breiðabólstað var Ólafskirkja, en í Víðidalstungu, annexíu Breiðaból- staðar, var kirkja helgug með Guði Jóhannesi babtista. Víðidalstunga var áður'fyrr sérstakt prestakall, og voru þar enn fremur kirkjur á Ásgeirsá og Auðunarstöðum. Síðar var bænhús á Auðunarstöðum, í Galtarnesi og í Dal (Meirakkadal), en hálfkirkja á Lækja móti. Þá var og bænhús í Miðhópi í Breiðabólstaðasókn, annað bænhús, eí til vill í Bakkakoti (Litla-'Bakka), en allt er þetta nú af lagt fyrir löngu. Flálfkirkjur voru enn fremur á Stóru- Borg og Þorkelshóli, og stóðu báðar t'ram vfir 1705. Breiðabólstað hafa setið margir merkisklerkar. Fyrstan í þeirri röð hittum vér síra iíluga Bjarnason, þann, er reis upp af föðurleifð sinni, Hólum í Hjaltadal og gaf til biskups- seturs í Norðlendingafjórðungi. Þá má geta Hafliða prests Steinssonar, er kom til kallsins 1309, en hafði áður verið hirðprestur Eiríks konungs. Síra Einar Hafliðason hélt Breiðaból- stað í 50 ár, 1343—1393. Var hann og prófastur í Húnaþingi. Snemma á ár- um átti hann vantalað við páfa og leitaði þá ekki til Rómar — heldur Avignon. Páfi var ekki einn þau ár, og suðurganga naumast éinhlít. Þrír Breiðabólstaðarklerkar hafa orðið biskupar, allir til Hóla. Ólafur Rögnvaldsson, norskur, 1460; Guð- brandur Þorláksson, 1569, og Hálfdán Guðjónsson, 1928. Jónas skáld Hallgrímsson átti frum- kvæði að því 1838, að Bókmenntafé- lagið beitti sér fyrir samningu og prentun á nákvæmri íslandslýsingu. Auk Jónasar, sem sjálfkjörinn mátti kalla til þessa verks, voru í nefnd til undirbúnin,gs þeir Finnur Magnússon, Konrág Gíslason, Brynjólfur Péturs- son og Jón Sigurðsson. Nefndin á- kvað í upphafi að skrifa öllum sókn- arprestum og sýslumönnum á land- inu og biðja þá að senda félaginu lýs- ingu á köllum sínum og sýslum. Bréf inu fylgdu sjötíu spurningar um efna hag og bjargræðisvegi, menntun og siðferði o.g náttúrur landsins. Brugð- ust klerkar svo vel. við tilmælum þessum, að á jrunum 1839—1843 bár ust um 160 sóknalýsingar, 33 komu síðar, en aðeins vantar þær gersam- lega úr sjö sóknum. — Svo fór, að sóknalýsingar voru ekki gefnar út, en Jónas lézt hinn 26. maí 1845. En nú þykja þær dýrmætur sögulegur fjár- sjóður, enda má heita, ag þegar þær eru ritaðar, væri byggð landsins enn við sama hátt og verið hafði hún allt frá söguöld. Það var ekki fyrr en 1950, að fyrstu sóknalýsingarnar komu út. Var það lýsing Húnavatnssýslu, og sá Jón Eyþórsson um útgáfuna. Árig 1954 feirtust lýsingar úr Skagafjarðarsýslu undir útgáfustjórn Pálma Hannesson ar og Jakobs Benediktssonar. Sóknalýsingar Breiðabólstaðar — og Víðidalstungusókna ritar síra Jón Þorvarðarson, prestur á Breiðaból- stað 1817—1846. Síra Jón var fæddur á Björgum í Þóroddstaðarsókn í Þing- eyjarsýslu 1763, útskrifaður úr heima skóla af Árna biskuþi Þórarinssyni á Hólum 1785. Árið 1790 varð hann djákn að Grenjaðarstöðum, prestur á Svalbarði í Norðursýslu í átta ár, í Glæsibæ við Eyjafjörð í fimmtán ár, unz hann fékk Breiðabólstað. Þar andaðist hann á fyrsta dag í nýju ári 1848. Verður nú vikig nokkuð að lýsingu síra Jóns á prestakallinu 1839. Takmörk sóknanna til austurs er Þingeyrarklausturssókn, við vatnið Miðhóp, austustu bæir Melrakkadal- ur, 30 hndr. útigangsjörð, heyskapar- lítil og Lækjamót, 50 hndr., útigang- ur og heyskapur; Þorkelshóll, 50 hndr., mögur jörð, í meðallag hey- skapur, og Nípukot, eins að lýsingu. Að sunnan til hásuðurs Víðidalsfjöll einlæg, sem aðskilja Breiðabólstaðar- prestakall og Undirfells- og Gríms- tungnasóknir i Vatnsdal. Ag vestan Vatnsnesfjöll, er liggja til útnorðurs allt til sjávar. Að norðanverðu Vest- urhópshólasókn, en nyrzti bær presta kallsins er Þverá, 40 hndr., útbeitar og heyskaparjörð í betra lagi, þar á móti til austurs Kolþernumýri, 24 hndr., góð útbeit en lakari heyskap- ur, og Stóra-Borg, 80 hndr., mikil heyskaparjörð. Breiðabólstaður, beneficium, með BREIÐABÓLSTAÐUR í VESTURHÓPI. I 338 IÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.