Tíminn Sunnudagsblað - 28.04.1963, Page 10

Tíminn Sunnudagsblað - 28.04.1963, Page 10
stórt stökk frá aldaranda húsagatil- skipuninnar. » n. Um 1880 var séra Jóhann Briem prestur í Hruna og sonur hans, séra Steindór Briem, aðstoðarprestur hans. Séra Valdimar Bríem hafði þá um skeið verið prestur í Hrepphól- um, en presta'kall hans var um þess- ar mundii sameinað Stóra-Núps- prestakalli Var hann kvæntur Ólöfu frændkonu sinni, dóttur séra Jó- hanns í Hruna. Vorið 1880 kom til séra Valdimars vinnumaður, Gisli Einarsson að nafni tæplega þrítugur að aldri. Hann hafði búið fá ár á Skeiðum, en skilið við konu sína, Friðsemd Eiríksdóttur. og brugðið búi. ^amtímis var hjá séra Steindóri í Hfuna vinnumaður, sem hét Jón Jónsson, rösklega þrítugur. Var Gísli ættaðui frá Urriðafossi í Víllingaholtshieppi, sonur Einars bónda Einarssonar og Katrínar Eyj ólfsdóttur og því hálfbróðir séra Magnúsar Andréssonar á Gilsbakka Jón var upprunninn í Hellisholtum í Hreppum, sonur .Tóns bónda Jónsson ar og Guðrúnar Helgadóttur. Báðir voru beir Gisli og Jón gremd ir menn og kadaðir verkmenn ágætir Segir það sína sögu, að eftir þeim var slægzt á prestsetrunum í Hrepp- unum, því að slík heimili gátu að jafn aði valið úr vinnufólki. Þar var ofl ast mannmargt og glaðværð meiri en á kotbýlum kaupgreiðsla tryggari or aðbúð betri en víða annars staðar. Kaup vinnumanna var nokkuð á reiki á Suðurlandi þessi ár. Algengt árskaup þeirra hafði um hríð verið fjörutíu til sextíu krónur og nokkrar flíkur. En svo var komið, að báglega gekk að halda því í þeim skorðum. Út- vegsbændur á Suðurnesjum buðu mönnum fimmliu til sextíu krónur á vertíð, bændur sjálfir greiddu kaupa- mönnum tólf króna virði á viku, kaupmenn reiknuðu daglaunamönn- um þrjár krónur á dag, og í vega- vinnu hjá landsjóði fengu menn jafn vel tuttugu krónur á viku, „ei allir duglegir“. Vinnukonúmar áttu aft- ur á móti færri kosta völ, enda sat sem fastast í því horfi, að þær fengju íuttugu eða þrjátíu krónur í árs- kaup. Þegár svo var í pottinn búið,‘sáu vinnumenn margir sér leik á borði að gerast lausamenn, ef unnt var, róa á vertíðum, sæta kaupavinnu á sumrum og stunda aðra árstíma þá vinnu, sem skást féllst til. Þurfu þeir ekki að vera hagsýnir menn til þess að bera meira úr býtum með þeim hætti heldur en í vistum. En bændur gátu ekki verið vinnumannslausir', og varð þá mörgum að bjóða hærra kaup eða bæta ýmiss konar fríðindum ofan á kaupið. En þegar til átti að taka, gekk sumum úla að svara úti kaup- inu. Stóð það stundum lengi inni hjá þeim vaxtalaust, en sumir tóku upp í það kindur og kindafóður, ekki ævinlega með aðgengilegum kjör- um, frekar en að fá ekki neitt. Fjölg- aði þannig fénaði vinnumanna svo, að það vakti mikinn kurr meðal bænda. En vinnumennirnir voru ekki ævinlega mjög ánægðir heldur. Þeim þótti bændurnir reikna fóðrin og hagagönguna hátt, þegar þeir fengu þvi við komið, en tóku þó enga ábyrgð á því, að fénaðurinn félli ekki í höndum þeirra. Skertist oft fjár- eign vinnumannanna, ekki siður en bændanna sjalfra, ef eitthvað bar út af með tíðarfar. Og flikur þær, er vinnumenn áttu að fá, voru ekki held- ur ævinlega vei útilátnar. Sumir hús- bændur voru svo smásmugulegir, að þeir kröfðust þess, að hjúin legðu til lit, fóður og hnappa, og nokkrir létu þau jafnvel kosta saumaskap- 'nn. Það má glöggt sjá, að um 1880 refur verið megn kurr meðal bænda austan fjalls vfir þeim búsifium, er þeir þóttust verða fyrir af vinnu- mönnum sínum Hitt gegndi þó meiri tíðindum, að sú hugmynd hafði skot- ið upp kollinum meðal vinnumanna í uppsveitum Árnessýslu, að þeir gerðu samtök sin á milli og settu sér reglur um sitthvað það, er varðaði kaup þeiri'a. Séra Þórði Bárðarsyni á Torfastöðum hefði eflaust brugðið í brún, ef hann hefði mátt líta upp úr gröf sinni og sjá og heyra, hvað í bígerð var hjá þeim, sem áttu .embættisþjónustu auvirðilegrar að gæta“ í grannsóknum hans. Það voru vinnumennimir á prest- setrunum í Hreppunum, er virðast hafa verið forystumenn þessarar ný- stárlegu hreyfingar, þeir Gísli Einai's- son og Jón Jóusson. Ekkert er kunn- ugt um það, hvaðan þeir hafa fengið þessa hugmynd, og er vísast, að eðlisgreind þeirra sjálfra hafi vísað þeim veginn. En svo er að sjá, að prestarnir hafi á engan hátt leitazt við að setja þeim stólinn fyrir dyrn- ar. Eigi að síður hafa sumir bersýni- lega haft illan bifur á þessu bram- bolti. Á útmánuðum 188T birtist i ísafold grein, sem nefnist Hjúin gera garðinn frægan, og kallaði höfundur hennar sig Austanvéra. Er mjög sennilegt, að það hafi einmitt ver- ið ráðagerðir vinnumannanna í Hreppunum, sem otuðu austanvér- anum fram á ritvöllinn, eada á það drepið, að bændur geti einnig efnt til samtaka. Og ekki var hlýlegur tónninn í garð vinnumannanna: „Ekkert hefur bóndinn eins gott í húsi sínu eins og góð og dygg hjú. En hvergi á það fremur heima en í hjúahaldinu, að heimur versnandi fer. Vinnumannskaupið er nú fimm- tíu til sextíu krónur eða hálfur hlut- ur, tíu til tuttugu kindafóður, viku til hálfs mánaðar lausn úr vist um sláttinn og hjá mörgum reiðhestseldi að auki. Að vísu setja ekki allir út aí svona harða kosti, en aftur sumir fulit svo harða. Að sama skapi fer heimtufrekja um viðgerðir allar til fata og matar vaxandi. Nú er þakkað fyrir duggarapeysurnar gömlu, en í peirra stað eru komnir stuttfrakkar (og þeir þó ekki svo stuttir) hversdagslega. Þeir eru jafn- vel til, sem ekki fást til að setja upp leðurskó, því bryddingin fer verr á þemi . . . Þó tekur ekki hnúkana fyrr en húsmóðirin fer að skammta. Þá verður að liafa tvo eða þrjá eld- ana sama málið handa sama fólkinu. Sé mjólkurlítið og eigi að hafa vatns- graut, þá eru svo sem sjö af tólf, sem hann geta borðað. Mjólkin er flóuð, og nær hún handa þrem. Handa tveimur verður að geyma kjötsúpu frá því kvöldinu fyrir og hita hana upp. Þeim, sem ekki verður meint af að borða í einu fjórar eða fimm merkur af baunum og bolaspaði, þeim verður illt af vatnsgraut og mjólk- urgraut og mega því hvorugt bragða. En ekki ber á þeirri veiki, þó þeir borði brauð og lummur. Flestir borða harðan fisk, en af fiskhöfðum verðúr mörgum illt. En verst af öllu er þó það, að nú þykjast menn of góðir til að gera nema einstaka verk. Ef Guðmundur bóndi biður Jón, kaupdýrasta vinnu- manninn sinn, að skera fyrir síg eitt hundrað af torfi, svo hann komi lambhúsinu sínu upp fyrir haust- frostin, mun hann svara: „Nei, þakka þér fyrir. Eg fór ekki til þín til að skera torf. Eg gat íeng- ið nógar vistir, þar sem ég hefði ekki verið beðinn um það. Eg held lepparnir, sem þú ert í, séu ekki of hvítir til að vökna. Þeir, sem geta gengið í slíkum tuskum, eiu réttir til að ganga í óþrifaverkin. Eg á ekki lakari föt en ég nú er í, enda get ég ekki verið þekktur fyrir þau lak- ari. Eg þarf líka að hugsa um mitt gagn eins og þitt. Fyrst þú ekki tekur af mér nema sextán kindur, á ég þrjátíu eftir fóðurlausar — ein- hvern tíma þarf ég að koma þeim fyrir. . . . Og ég ætla að fara eitt- hvað í dag. Þess vegna getur ekki orðið neitt af torfskurðinum. Þessir tuttugu hestar, sem ég heyjaði þenn- an hálfsmánaðartíma í sumar, eru ekki nema handg hrossunum mínum“. Til að laga þetta þarf almenn sam- tök yfir heilar sýslur, heila lands- fjórðunga og helzt land allt. Það er engan veginn meining mín, að vér eigum að gera samtök til þess að skammta hjuunum kaup úr hnefa, heldur til þess að koma þeim af því að hafa sinn vilja í öllu . . . Látum 370 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.