Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 12.05.1963, Qupperneq 12

Tíminn Sunnudagsblað - 12.05.1963, Qupperneq 12
•o si ^ ,Vy* * LiMMÍ Á EFRI ÁRUM. myndu komast í kynni við það, hvernig guð fer að því að skapa. Þau sæju grasið gróa á vorin og fölna á haustin og dýrin fæðast og vaxa upp, og síðan deyja eftir mis- jafnlega langt æviskeið. Þau kynnt ust móðurástinni víðar en í hinni sjálfsögðu umönnun móður sinnar — þessari göfugustu tilfinningu á jörðu, sem myndi gerbreyta heim inum, ef hún fengi völdin, því að hún krefst cinskis, en fórnar öllu. Öfugt við það, sem oft gerist í við- skiptum manna. En nú er það víst, að við írú Birna verðum ekki kvödd til ráða um skipulag Reykjavíkur, og fer því bezt á að hætta þessum vanga- veltum, og reyna heldur ag endur segja frásögn frúaiinnar af greind- asta og göfu.gasta dýrinu, sem hún hefur haft náin kynni af. — Ég ólst upp hjá afa mínum og ömmu, Þorgrími lækni og al- þingismanni í Keflavík, og konu •hans, Jóhönnu Andreu, sagði Birna. — Þau höfðu alltaf dýr á heimili sínu, og amma mín hafði mikið yndi af þeim. Þar kynntist ég því fyrst, hvað gaman er að hlynna að dýrum, skilja óskir þeirra og öðlast þakklæti þeirra og vináttu Þegar ég fór svo sjálf ag búa, langaði mig mjög til þess að eignast hund, og tækifærið barst mér í hendur fyrr en varði. Svo bar við, að ég kom í heim- sókn til frænda míns í, nágrenn- inu, sá þar gullfallegan tíkarhvolp og fór að spyrjast fyrir um hagi Ég hafði lengi þekkt 'núsfreyjuna í Eskihlíð 10, Birnu Jónsdóttur. Ég vissi, áð hún hafði gegnt hlut- verki móður og ömmu — og auk þess lagt á margt gjörva hönd. En það var af tilviljun, ag ég komst að því, að hún átti sér ann- an heim, þar sem hún naut margra gleðistunda. Það var í sambúð við dýr, þar sem skipzt er á hugsun- um í gleði og sorg, án orða. Mig langaði mjög til þess að líta inn í 'þennan heim, og hún gaf mér tækifærið. Við spjölluð- um saman eina kvöldstund, og við vorum sammála um það, að þeir, sem ráða sköpun höfuðborgarinn- ar, þyrftu ag gefa mönnum kost á landi undir einbýlishús — einn til þrjá hektara lands ■— t.d. uppi í Mosfellssveit eða á Kjalarnesi, þar sem þcim gæfist kostur á að hafa kvikfénað, sauðfé, svín, hænsni og geitur, líka garðrækt, því að það er mikill fjöldi manna, sem hefur óslökkvandi löngun til þess að umgangast dýr og hlynna ag þeim, þótt þeir séu kannski fleiri, sem lítig finna til þeirrar löngunar. Auk þess gæfi slíkur búskapur drjúgan stuðning fjár- hagslega og myndi sverfa sárasta broddinn af atvinnuleysi og öðr- um erfiðleikum, ef slíkt bæri að höndum. Að þessum búskap gætu börn og gamalt fólk unnið, og svo Ihjónin í Mstundum sínum, og þránni eftir sambúðinni vig dýrin væri fullnægt. Þau börn, sem æl- ust upp í þessum borgarhluta, hans. Kom þá í ljós, að eigandinn sá sér ekki fært að ala hann upp, og kvaðst neyðast til þess að binda endi á hina skömmu ævi hans. Hann vissi það eitt um fortíð hvolpsins, að hann væri af skozku fjárhundakyni, og hafði brezkur hermaður gefið hann íslenzkum sjómanni. Var hann nú þegar nokkrum sinnum búinn að skipta um eigendur. Nú sá frændi sér ekki fært lengur að hafa hann í eigu sinni, þar eð bannað var að hundar gengju lausir í bæn- um. Ég fékk ákafa löngun til þess að eignast hvolpinn og bað um að frestag yrði aðgerðum, því að ég vildi þreifa fyrir mér um, hvort við hefðurn að'stöðu til þess að •o»a»o«'j#o*o«3éoío#o*c«; •oéi 420 ItMiN N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.