Tíminn Sunnudagsblað - 12.05.1963, Page 16

Tíminn Sunnudagsblað - 12.05.1963, Page 16
vinur. Þó að hcstarnir væru langt frá veginum, komst allt á fleygiferð og mátti heita, að þeir hlypu á hvað sem fyrir var. En smám saman vönd ust hestarnir þessu nýja farartæki, þeir hættu að hlaupa, horfðu bara vökulum augum, meðan bíllinn fór fram hjá. Hestar í brúkun voru minna hræddir en hinir. Páll man ekki eftir öðru slysi i mætingum, en að kerru- íkjálki brotnaði hjá einum bónda i Þingi. En oft varð hann ag stanza og hjálpa mönnum við mætingarnar. Ekki bættist við bílakostinn i sýsl- unni fyrstu 2—3 árin. Klemenz Þórð arson kom með fólksbíl til Blönduós? 1925 eða 1926. Um sama leyti kom og vörubíll til Hvammstanga. Var það fyrsti bíllinn í Vestur-Húnavatns sýslu. Árið 1927 bættust svo við 2 vörubílar í Austursýsluna, sem þeir áttu Skarphéðinn Eir.arsson og Zóp- honías Zóphoníasson. Ékki var hlaupið að því að fá vara hluti, þegar eitthvað bilaði. Varð að fá þá með skipsferð frá Reykjavík. en þær voru að jafnaði ekki nema einu sinni í mánuði. Páll komst því ekki hjá því að liggja jafnan með nokkuð af varahlutum til þess að geta bætt úr brýnustu þörf. Það kom nokkrum sinnum fyrir, að Páli varð *ð leita til Skúla Benjamínssonar járnsmiðs á Blönduósi um nýsmíði. þegar eitthvað vantaði í bílinn, o? bar það jafnan árangur, enda ”ar Skúli hinn mesti völundur. Páll vann v>ð bílflutninga stöðugt fram um 1930, en úr því ekki nema í ígripum. Hann var mjög farsæl! i starfi. Einu slysi varð hann þó fjrir, en hjá því hefði hann sennilega komizt, ef hann hefði ekki hugsað meira um öryggi annarra en sjálfs sín Þetta var haustið 1923. Það var verið að fíytja haustafurðirnar til skips. Slitlagið á bryggjuveginum var þá einungis móhella Frosið hafði eitt hvag um nóttina fyrir, en þiðnað svo upp Vegurinn var því blautur og sleipur Páll hafði lokið við flutning frá Sláturfélaginu, og stóð nú yfir flutningur hjá honum á kjöti frá verzlun Halldórs Halldórssonar Tveir menn voru að aka kjöti á hestvögn- nm frá kaupmönnunum innan Blöndu. Páll var á leið utan af bryggj unni og upp sneiðinginn, þegar hest- vagnarnir koma á móti honum. Hest- arnir voru hræddir við bílinn. Páll tók þá það ráð að nema staðar hægra megin á veginum, þ. e. sjávarmegin, en með því taldi hann, að hestarnir yrðu í minni hættu. Gekk ökumönn- unum vel fram hjá með hestvagn- ana, en þegar Páll ætlaði að taka bílinn áfram, skriplaði hann á mó- hellunni og lenti fram af með annað afturhjólið. Páll sá þegar, að von- laust var að fá bílinn upp, sneri hann honum þá upp í brekkuna. Rann þá 424 bíllinn aftur á bak ofan í fjöru. Hæð in er þarna um 5 metrar. Nokkur flái er fyrst, en neðst alveg þver- hnípt. Fjaran er örmjó ræma, stór- grýtt. Bíllinn féll því síðast með kasti í fjöruna og lenti á stórum steini í sjónum. Hann fór aldrei af hjóiunum, en fallið var það mikið, að bíllinn brotnaði nokkuð að aftan. Páll slapp þó að mestu ómeiddur, en það mikið högg fékk hann, þegar bíllinn féll niður, ag gat brotnaði undan honum á húsið aftanvert. Reynt var að gera við bílinn, en hann varð aldrei almennilega ökufær eftir þetta. Breytti þá Páll gamla fólks- bílnum í vörubíl og flutti á honum en fékk sér svo nýjan bíl til vöru- flutninga árið eftir. Páll Bjamason er Árnesingur að ætt. Hann er fæddur í Hellukoti í Stokkseyrarhreppi 30. júlí 1884. Þar bjuggu þá foreldrar hans, Guðrún Jónsdóttir og Bjarni Þorsteinsson frá Moshól, Jónssonar í Langholti í Flóa, Eyvindarsonar. Höfðu þeir langfeðg- ar Bjarna búið í Árnesþingi jafn langt og rakið verður. Amma Páls, móðir Bjarna í Hellukoti, hét Ingi- ríður Bjarnadóttir, en móðir hennar var Soffía Árnadóttir prófasts í Holti undir Eyjafjöllum, Sigurðssonar prófasts sama staðar, Jónssonar, og er þag Steingrímsætt úr Skagafirði. Um fermingaraldur fór Páll í dvöl til frænda síns, Sigurðar sýslumanns Ólafssonar í Kaldaðarnesi, en þau voru systkin Þorsteinn í Moshól, afi Páls og Guðrún Jónsdóttir, móðir Sigurðar sýslumanns. Frá Kaldaðar- nesi flutti Páll svo aftur heim til foreldra sinna vorið 1905, en þau bjuggu þá á Hólum í Stokkseyrar- hreppi. Vorið 1909 hóf Páll búskap í Gerðum hjá Gaulverjabæ, og voru foreldrar hans þar á vegum hans. Tveim árum síðar kvæntist Páll Elínu Guðmundsdóttur hreppstjóra á Syðri- Velli í Gaulverjabæjarhreppi, en missti hana eftir fjögurra ára sam- búð. Hjónabandið var barnlaust. Um svipað leyti lézt Bjarni Þorsteinsson, faðir Páls, en Guðrún ekkja hans lifði lengi eftir þetta (d. 1940). Hún var gædd miklum dulrænum hæfi- leikum og sagði oft fyrir óorðna hluti. Um sama leyti og Páll varð ekkju- maður var heilsu hans sjálfs mjög illa komið, og sumarið 1915 lá hann alveg rúmfastur. Engin tiltök voru því á að halda áfram búskap, enda vildi bróðir Páls, Ágúst, sem þá var kominn á togara, fá þau mæðgin suð- ur td Reykjavíkur, og varð það úr, að þau fluttu þangað vorið 1916. Heilsa Páls fór smám saman batn- andi eftir ag til Reykjavíkur kom, og náði hann sér loks að fullu. Fyrstu árin fékk hann ekki fasta vinnu. Fór hann þá á sjóinn. á sumrin, en sætti vinnu eftir því sem bezt gegndi hinn tímann. Eftir rúm tvö ár kemst hann að verzlunarstörfum hjá Gunnari Þórðarsyni frá Hala (Verzlunin Vögg ur). Gunnar keypti vörubíl með þrem mönnum öðrum árið 1919. Vildi hann endilega, að Páll lærði á bíl og tæki að sér akstur vagnsins. Varð þetta að ráði, og tók Páll bílpróf 20. sept. 1919. Bíl þessum ók Páll svo í tvö ár. Flutti vörur milli Reykjavíkur og Þjórsá, en þá tók sonur eins bíleig- andans við starfinu. Skipti Páll þá um húsbónda og réðist til Kveldúlfs h.f. Vann aðallega vig ýmsa bílflutn- inga fyrir fyrirtækið. Kaupið var 400 krónur á mánuði. Ems og kunnugt er varð mikið verðfall á þessum árum. Atvinnurek- endur vildu þá þrýsta kaupinu niður. Páll tókst þó ag halda sama kaupi 1922, en í lok ársins var krafan að kaupið færi ofan í 250 kr. á mánuði. Páll sá, að nú mundi ekki takast að standa á móti kröfum atvinnurekenda og heldur en láta undan kaus hann að taka á sig áhættuna af sjálfstæðum atvinnurekslri. Hann fór þá að líta í kringum sig, hvort tiltækilegt mundi að færa sig eitthvað út á land, þangað sem vegir væru eitthvað komnir áleið is, en sambandslaust við aðalkaup- staði landsins. Datt honum þá helzt í hug Húnavatnssýslan. Þar þekkti Páll að vísu engan mann, en af síma skránni var ráðið, að tiltækdegast mundi að tala við kaupfélagsstjórann á Blönduósi, Pétur Theodórs. Varð þetta nú að ráði. Gaf kaupfélagsstjór inn upplýsingar um, hvað komið væri af akfærum vegum, en hvernig þeir reyndust sem bílvegir, kvaðst hann ekki vita, þá mundi og óvíst um viðskipti sveitamannanna. Þeir ættu marga hesta og nokkuð af vögnum, en Pétur kvað kaupfélagið mundi nota bílana, þar sem hægt væri að koma þeim við, ef vinna þeirra yrði ekki dýrari en hestavinna. Þetta réð úrslitum. Förin norður í Húnavatns- sýslu var ráðin. Páll Bjarnason er enn á lífi. Hann býr á Blönduósi, sunnan árinnar, og er bústaður hans á móti húsinu, sem hann hafði fyrst aðsetur í, þegar hann kom til Blönduóss. Seinni kona Páls er Jóhanna Ólafsdóttir (gift 1925). Hún er þriðji maður frá Bótu- Hjálmari í beinan kvenlegg. Eiga þau tvö uppkomin börn. Páll er maður vel ásigkominn. Hár vexti, grannur, beinn í baki og lið- lega vaxinn. Hann er greindur vel og prúður í framgöngu. Nokkurn þátt hefur hann tekið í opinberum málum, — sat t.d. í hreppsnefnd Blönduóss- hrepps um sinn. Páll var á vissan hátt brautryðjandi í samgöngumálum Húnvetninga, og nafn hans mun geymast í sögu hún- vetnskra byggða. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.