Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 02.06.1963, Qupperneq 20

Tíminn Sunnudagsblað - 02.06.1963, Qupperneq 20
leiðinni milli jarðarinnar og tungls- ins, — þetta minnir á geimstöðvar þær, sem nútímageimfræðingar vilja koma upp úti í geimnum! Bók Mortons kom út í lok 17. ald- arinnar og verður að takast með í reikninginn, þegar menn vilja dæma um þekkingu þeirra tíma, þegar New- ton gaf út bók sína „Principia“ árið 1687. Þar setur Newton fram þau grundvallarlögmál, sem nútimageim ferðir oyggjast á. Bókin kom út i mjög litlu upplagi, og nú á tímum eru fáir, ef nokkur, sem hefur lesið þetta grundvallarrit til hlítar. Aftur á móti þekkja margir söguna um epli Newtons og mánann; ævintýri sem breiddist út meðal almennings eink- um fyrir tilverknað franska heim- spekingsim ig háðfuglsins Voltaire. Voltaire hafði ekki kynnzt Newton persónulega en ef til vill hefur hann verið viðstaddur jarðarför hans. Hann kom að minnsta kosti að máli við frænku Newtons og hefur hún þá sennilega sagt honum frá epli New- tons. Voltaire hafði næmi hins snjalla blaðamanns fyrir þvi, sem getur náð almenningshylli, og kom þegar auga á slíkt gildi þessarar skrýtlu um eplið og Newton Það var greinilegt, að eplið og þyngdarlögmálið hafði fallið frá sama skilningstrénu! Hann setur þyngdarlögmál Newtons fram með íínum léttúðarfulla hætti: Þegar Newton sér eplið falla í garðinum sínum, hugsar hann: — Það fellur úr trénu, af því að jörðin dregur það að sér Þá hlvtur iörðin líka að draga mánann Voltaire kvittaði líka fyrir söguna, sem hann fékk hjá frænku Newtons með öðrum hætti — Hann var upp- 'hafsmaður orðróms, sem komst á kreik, um orsökina fyrir bví. að New- ton var gerður myntsláttustjóri Eng- lands: Það var ekki vegna vísinda- mennsku Newtons, heldur vegna þess, að fjármálaráðherranum geðjaðist að frænku Newtons! Enda þótt það væri Voltaire, sem kom þessum orðrómi af stað, get- ur vel verið emhver fótur fyrir sög- unni um eplið. Newton ræktaði að minnsta kosti epli á búgarði sínum við fljótið Witham, og það virðist svo sem frams-etning Galileis á fall- hreyfingu hluta hafi upptekið huga hans strax eftir eða um það leyti. sem hann flýði heim til sín vegna far- sóttar í Cambridge. Newtón þekkti bæði hið rétta tregðulögmál og lögmálið um fall þungra bluta. Var ekki einfalt að sameina þessi tvö lögmál, þegar um var að ræða skýra aðdráttaraflið milli jarðar og tungls? — Nei, það er ekki svo auðvelt að setja fram nýjar hufmyndir í réttu samhengi, meira að segja ekki fyrir mann eins og New ton. Newton hefur ekki sjálfur sagt frá því, hvað hann sjálfur hugsaði og gerði, en á síðasta áratug hafa komið fram margir ungir og áhuga- samir vísindamenn í Englandi, sem hafa sökkt sér niður í fræði New- tons. Hafa þeir fundið og þýtt þétt- skrifaða frumörk eftir Newton, sem hann skrifaði, þegar hann las bók Galileis um heimskerfin tvö. Þessir útreikningar og athugásemdir New- tons sýna, að hann hefur fundið ]ög- málið um miðflóttaaflið, og hann not- aði formúlur Galileis til að reikna út sveiflukrafta í sólkerfinu. Hann reyndi og að finna sveiflukraftinn fyr ir jörðina á braut hennar um sólu, fyr ir tunglið á hringferð þess um jörð- ina og fyri” snúning jarðarinnar um möndul sinn. Máninn varð Newton erfiður við- fangs. Hann gat ekki handsamað hann í net kenninga sinna og athugana, og hið stórmerka rit hans „Principia", ber þess merki. Þegar stjörnufræðir g urinn Halley tilkynnti Newton bréf- lega 5. júlí 1687. að lokið væri við að prenta „Principia", endaði hann bréfið á þá leið, að hann vonaði, „að þér munið ekki sjá eftir öllu því erf- iði, sem þetta lofsamlega verk hefur kostað yður og er yður og allri þjóð- inni til mikils sóma, en takið aftur upp fyrri rannsóknir — eftir að þér liafið hvílt yður við aðrar athuganir, — sem yður hafði miðað vel áfram við og fullgerið kenninguna um mán- ann. En það hefði einstaklega mikla þýðingu fyrir siglingafræðina auk þess sem þetta verkefni er djúpt í sjálfu sér og krefst mikillar ná- kvæmni“. Newton hóf aftur að beina rannsókn um sínum að tunglinu. Hann bað stjörnufræðinginn Flamstead að út- vega þær nákvæmu rannsóknamið- urstöður varðandi tunglið, sem hann þurfti á að halda. Það var bið á, að hann fengi þessar niðurstöður, og Newton, sem átti erfitt með að vinna með öðrum en klókum „diplómötum“ eins og Halley, varð gramur, þegar Flamstead 'áðlagði honum að breyta um lannsóknaraðferð og taka upp að- ferðir Keplers Það skapaðist óþægi- leg spenna milli Flamstead og hans, og liann kenndi Flamstead um þann drátt, sem var á, að hann lyki við kenn ingu sína um tunglið. Hann setti þó fram drög að kenningu, sem franski vísindamaðurinn Clairaut tók vand- lega fyrir og deddi á. Newton virtist hafa látið eftir þeirri tilhneigingu að samræma útreikninga sína kenn- ingum vísindamannsins Horrox um tunglið o.g hreyfingar þess, án þess að hann gæti í raun og veru fundið þeim tryggan grundvöll í þyngdarlög máli sínu — Newton var og Ijóst, að tunglið var hið eina viðfangsefni hans, sem hafði valdið honum hugarangri. Staðreyndin er líka sú, að það er mjög erfitt að setja fram stærðfræði- lega útreikninga, sem lýsa hreyfing- um mánans nákvæmlega. Það hefur meira að segja komið fyrir nú á tím- um, þrátt fyrir hina geysinákvæmu útreikninga, sem vísindamenn leggja til grundvaílar á hreyfingum tungls- ins, að það hefur leikið á þá sem mun- ar nokkrum brotum úr sekúndum. Þá má einnig nefna það, að máninn er mjög breytilegur frá jörðinni að sjá, stór við tunglkomu, en virðist minnka eftir því sem hann rennur ofar á him- ininn. Eðlisfræðingar og stjörnufræð- ingar hafa í árþúsundir velt vöngum yfir þessu fyrirbrigði. Okkur hefur orðið tíðrætt um New- ton og baráttu hans við tunglið og þess vegna gefið tunglferðabókunum minni gaum; — en þær héldu áfram að koma út og vera vinsælt lestrar- efni. Frakkar voru sérstaklega snjall- ir við að setja saman slíkar bækur. Sem dæmi má nefna höfundana, Cyr- ano de B"rgerac og Fontenelle og síð- ar Jules Verne og Flammarion. — Hinn frægi rithöfundur H. G. Wells kom þeirri skáidlegu, en hrollvekjandi hugmynd á framfæri, að gígar tungls- ins bæru göt, sem næðu í gegnum það, og væri tunglið því eins og kringl ótt mauraþúfa! Síðan staðsetti hann risavaxnar maurverur þar, sem voru vel viti bornar, en höfðu lúns vegar hrollvekjandi lífshætti. Okka eigin lífshættir kunna að virðast mörgum ekki síður hroll- vekjandi. Við lifum á tímum reiknis- listarinnar og tækninnar, en niður- stöður hennar byggjast ekki á sköpun arhæfileikum nútímamanna, heldur á djúpsæjum og djörfum hugmynd- um horfinna kynslóða. Þeir möguleik ar, sem urðu til við lögmál Newtons og annarra vísindamanna, hafa verið útfærðir með betri tækjum, og tækni fræðingar hafa með skipulögðum til- raunum og rannsóknum gert áætlanir um það landtak á tunglinu, sem við bíðum eftir að verði að veruleika þá og þegar. En sú tíð er horfin, að almenningur gæti búizt við, að þar sé að finna farfugla eða hvíldarstað fyr- ir þreyttar og slitnar taugar. Hug- myndaflugið hefur vikið úr þeim sessi, sem það hefur haldið í árþús- undir. Með djúpum söknúði verðum við að viðurkenna, að draumurinn um tunglið er liðinn undir lok. Fjallavatnið Framhald af bls. 491 þennan ófögnuð. Rifjar upp end- urminningar um bardagann við tófuna, sem hann drap. Sú saga verður ekki endurtekin — nú eru tveir á móti einum. Hann þarf að treysta á annað en kraftana í þetta sinn. Kveinstafirnir í yrðlingunum 500 T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.