Tíminn Sunnudagsblað - 21.07.1963, Blaðsíða 6
Svona telja menn, aS Tenochtitlan hafl litiS ut áriS 1519, þegar Spanverjar komu þangaS. Til vinstrl sést hiS mikla hof
striðsguðsins og viS hlfS þess höll Axayacatls og Montezuma. Fremst á myndinnl sést hof vindguSsins, Ehecatl-Quetzalcoatl.
aldirnar tekur menning þeirra stakka-
skiptum. Þeir læra af nágrönnum
sínum, sem þeir voru skattskyldir
og háðir að fleiru, og laga sig að
þeirri menningu, sem fyrir var. Þeir
taka upp þá þjóðfélagsskipun, sem
tíðkaðist í Mexíkó, borgríkið. Og ár-
ið 1428 eru þeir orðnir voldugasta
þjóðin á stóru svæði og halda þeim
yfirburðum allt til þess, að ríkið fedl-
ur fyrir vopnum Spánverja tæpri öld
síðar. Þegar rætt er um Azteka er
þess vegna ýfirleitt átt við Tenochca,
en þess ber að gæta, að þeir hafa fátt
lagt til í þá menningu, sem við
Azteka er kennd, nerna mannfórnim-
ar, sem síðar verður vikið að nánar.
Annálar Tenochca herma, að þeir
hafi lagt upp frá heimkynnum sín-
um árið 1168. Áður bjuggu þeir á
lyju í stöðuvatni einu í Mexíkó,
restanverðu. Eftir að hafa siglt tU
strandar, fundu þeir á hæð einni
líkneski stríðsguðsins Iluitzilo-
pochtli. Þetta likneski mátti mæla,
og varð guðinn ráðgjafi þeirra. Lík-
nesikið báru þeir með sér á ferðum
sínum. Á öllum áningarstöðum
var líkneskið tilbeðið, en til endur-
gjalds varð guðinn ráðunautur þeirra.
Ferðamáti Tenochca var sá, að dvelj-
ast heilt ár á sama stað. Á undan
meginflokknum fóru l'andkömnuðir,
sem leituðu næsta áningarstaðar og
sáðu þar korni, sem fólkið síðan skar
upp, þegar það flutti sig þangað.
Árið 1248 settust Tenochcar
að við strendur Texcocovatns,
skammt frá þeirri eyju í vatninu,
se<m höfuðborg þeirra var síðar
reist á. Þarna lifðu þeir í friði við
nágranna sína um skeið. En brátt
tókust ýfingar milli þeirra. Deil-
urnar hófust, þegar ungir menn úr
flokki Tenochca hófu ránsferðir upp
með vatninu til kvenna, en slíkt er
algengt í norðanverðri Ameríku og
þykir virðingarauki. Nágrannarnir
reiddust þessu, og hófu herferð gegn
Tenochcum. Voldugastur á þessum
slóðum var þá ættbálkur, sem kall-
aðist Culhuiar og höfðu þeir miðstöð
í borginni Cuhuaoan. Culhuar her-
námu höfðingja Tenochca og mik-
inn fjölda þjóðar hans og höfðu
heim með sér í þrældóm.
En áður en á löngu leið vænkaðist
hagur Tenochca að nýju. Coxcox hét
á þessum tímum höfðinginn yfir
Culhuacan, og von bráðar lenti hann
í ófriði við aðra granna sína. Hann
kallaði Tenochca til vopna, og þeir
gengu til bardagans í fylkingar-
brjósti. Tenochcar tóku þarna ekki
færri en þrjátíu fanga, en áður en
þeir seldu þá í hendur herjum Cul-
hua, skáru þeir af föngunum ann-
að eyrað. Að loki.nni orrustunni flutti
Coxcox tölu og lofaði þar hreysti
sinna manna, en hæddi Tenochca,
sem komu tómhentir heim. Tenoch-
car hlustuðu þegjandi á ræðu höfð-
ingjans, en þegar hann settist niður,
spurðu þeir, hvers vegna annað eyr-
að vantaði á alla fangana. Þegar
þeir höfðu þannig beint athygli Cul-
hua að þessu undarlega fyrirbrigði,
drógu þeir eyrun, sem vantaði, fram
úr pússi sínum, óg sqnnuðu þanmg
afrek sitt.
Við þetta jókst hróður Tenochca
mjög, og þeir héldu á fund húsbónda
síns, Coxcox, og báðu hann að gifta
dóttur sína höfðingja þeirra. Coxcox
játti bónorðinu, en Tonochcar urðu
svo fegnir, að þeir fórnuðu stúlkunni
til dýrðar fjósemigyðjunni Toci, Föð-
ur hennar buðu þeir til hátíðahald-
anna. Hann hafði búizt við brúð-
kaupi, en lenti í blótveizlu og varð
að vonum æfur við, kallaði her sinn
til vopna, en Tenochcar flúðu út í
eyjar á vatninu.
Á þessum tíma var Texcoco annað
voldugasta borgríkið við vatnið. Þó
kom aldrei til beinna átaka milli
þess ríkis og Culhuacan, enda borg-
irnar sín á hvorum bakka. En hvor-
ugt ríkjanna komst þó hjá ófriði. Um
miðja 14. öld hófst uppgangur ætt-
bálks, sem kallaður var Tepanekar.
Landrými þeirra reyndist of lítið,
og undir stjórn mjög færs höfðngja,
Tezozomoc, Iögðu þeir undir sig lönd
næstu nágranna sinna. Culhuar urðu
brátt fyrir þungum búsifjum* af
þeirra völdum, og margir þeirra flúðu
til Texcoco. Ekki löngu síðar kom
til ófriðar milli Tepaneka og Texco-
coa, og lauk honum með sigri hinna
fyrrnefndu og íalli höfðingja Texco-
cos.
í þessum átökum voru Tenochcar
bandamenn og skattþegnar Tepaneka.
Höfðingi þeirra, Huitzilhuitl II. var
kivæntur dóttur Tezozomocs Tepa-
nekahöfðingja. En vináttan stóð ekki
606
T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ