Tíminn Sunnudagsblað - 28.07.1963, Side 6
ESJUBERG
götu er, og gef við tvö mörk silf-
urs.“ Munkurinn gerði svo. Hús-
karlinn gat keypta þúfuna og gróf
síðan í jörðina og hitti þar manns-
bein. Hann tók þau upp og fór heim
með. Hina næstu nótt dreymdi
Halldór, að Ásólfur kom að honum
og kveðst bæði augu sprengja úr
hausi honum, nema hann keypti
bein hans slíku verði sem hann
seldi. Halldór keypti bein Ásóifs
og lét gera að tréskrín og setja yfir
altari. Halldór sendi Illuga son sinn
utan eftir kirkjuviði. En er hann
fór út aftur, og er hann kom milli
Reykjaness og Snæfellsness, þá
náði hann ei fyrir stýrimönnum að
taka land, þar ér hann vildi. Þá bar
hann fyrir borð kirkjuviðinn allan
og bað koma þar sem Ásólfur vildi,
en Austmenn komu vestur í Vaðil.
En þrem nóttum siðar kom viður-
inn á Kirkiusand að Hólmi, nema
tvö tré komu á Raufarnes á Mýr-
um. Halldór lét gera kirkju þrítuga
g viði þakta og helgaði Kolum-
kiila með guði“.
Þótt tildrögin til þessarar kirkju-
byggingar á Hólmi muni nú þykja
með nokkrum ólíkincfjm, þá er
ástæðulaust að efast um hitt, að á
11. öld var byggð þar kirkja, sem
var helguð Kolumkilla. Og hitt er
einnig sennilegt, að sú kirkja hafi
geymt skrín Ásólfs, enda mátti
Halldóri vera slíkt skylt, þar sem
Ásólfur var mikill guðsmaður og
auk þess var Halldór nokkuð skýld-
ur honum fram í ættir. Ekki er nú
kunnugt um neina kirkju á íslandi,
sem helguð væri Kolumkllla síðar
en þessi kirkja á Akranesi, og er
þar auðsæilega um endurvakningu
fornra minja frá upphafi lands-
byggðar.
o
Kirkjurnar á Hólmi og Esjubergi
munu ekki hafa verið einu kirkj-
urnar, sem helgaðar voru Kolum-
killa hér á landi. Austur á Síðu
mun þriðja kirkjan hafa staðið
frá því á landnámsöld og notið
verndar Kolumkilla. „Ketill fíflski
. . . fór úr Suðureyum til íslands.
Hann var kristinn. . . . Ketill bjó í
Kirkjubæ. Þar höfðu áður setið
Papar, og eigi máttu þar heiðnir
menn búa.“ Hugsanlegt er, að Pap-
ar hafi enn búið í Kirkjubæ, þegar
Ketill kom þangað, og hefur hann
þá notað sömu kirkju og þeir, enda
mun bæjarnafnið stafa af því, að
þar hefur kirkja staðið frá önd-
verðu. Nú er ýmislegt, sem bendir
til þess, að Papar hafi haft hérstakt
dálæti á Kolumkilla ,og er slíkt þó
oflangt mál til að ræða að sinni. Þó
langar mlg til að drepa á örfá atr-
iði, sem varða þetta mál nokkuð,
KiRKJUBÆR
630
T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ