Tíminn Sunnudagsblað - 28.07.1963, Blaðsíða 14

Tíminn Sunnudagsblað - 28.07.1963, Blaðsíða 14
/ Jarðyrkja var undirstöðuatvinnu- vegur Azteka, og aðalnytjajurtin var maís. Allt land var í eigu ættbálk- anna, sem skiptu því niður á milli einstakra fjölskyldna til ræktunar, og auk þess voru svæði, sem unnin vorti sameiginlega og afrakstur þeirra hafður til framfæris höfðingjum og prestum og til annarra ríkisútgjalda ÁðUi en lengra er haldið út í land- búnaðarmálin er rétt að fara nokkr- u:n orðum um þjóðfélagsbyggingu Azteka. Hver einstaklingur var limur í fjölskyldu, og hver fjölskylda til- heyrði ákveðnum ættbálki (clan). Tuttugu ættbálkar voru taldir vera í þjóðflokki (tribe), en sú tala mun þó hafa verið nokkuð á reiki í reynd. Hver ættbálkur fór sjálfur með eig- in mál, en sameiginleg málefni voru leidd til lykta af ráði, sem í áttu sæti Ieiðtogar allra ættbálkanna. Ráðið út- nefndi höfðingja til að stýra innan- landsmálum og trúmálum ættbálks- ins, og að jafnaði annan til að hafa á hendi herstjórn í ófriði. (Þessi skip- an, sem átt hafði sér langan aldur og var í öndverðu miðuð við fábreytt Og frumstætt bændasamfélag, hlaut auðvitað að verða nokkru flóknari en hér hefur verið lýst, þegar fólki fjölgaði og upp var risið stórveldi með aukinni stéttaskiptingu, en í höf- uðatriðum gilti þessi stjórnskipun all'a tíð hjá Aztekum. Þjóðfélagi má lýsa að nokkrú með því að rekja feril einstaklings, sein fæddur er inn í það, og sú leið skal hér rakin, þótt stikla verði á stóru Þegar barn fæddist hjá Aztekum, var það þegar í stað laugað og sveip- að. Síðan höfðu foreldrarnir samband við prest, sem gætti að því í toroala- matl, bók örlaganna, hvort fæðingar- dagur barnsins væri gæfudagur eða óheillatími. Fjórum dögum síðar var haldin hátíð til að fagna fæðingunni >^og gefa barninu nafn. Þó mátti fresta þeirri athöfn til hentugri tíma, ef í ljós hafði komið, að fæðinguna bar upp á óheilladag, og var þá leyfilegt að gefa barninu heillavænlegri fæð- ingardag. Við þessa athöfn voru smækkuð líkön af vopnum og öðrum karlmannlegum tækjum sett í hend- ur barnsins, væri það sveinbarn, en væri um meybarn að ræða, hreyfðu foreldrarnir hendur þess í líkingu við það, sem gert er við vefnað eða sauma. Drengjum voru oft gefin nöfn fæðingardags síns eða þeir heitnir eftir dýrum eða eimhverjum forföður. f nöfnum stúlkna fól'st iðulega það orð, sem á máli Azteka táknaði blóm, xochitl. Barnið var vanið af brjósti á þriðja ári, og þá hófst eiginlegt uppeldi þess. Markmið uppeldisins var að venja barnið við vinnubrögð og gera það hæft til þátttöku í lífi ættbálksins. Börnum var snemma haldið að vinnu, drengjum undir leiðsögn föðurins, en mæðurnar önnuðust uppeldi stúlku- barna. Helzta fæða barna (og reynd- ar fullörðinna líka) var tortilla, flat- kökur gerðar úr ó’hýddu maísmjöli. Þessar kökur voru meira en fet að þvermáli, ef dæma má af leirpönnum þeim, sem þær voru steiktar á. Hins vegar eru tortillur nútímans miklu minni, aðeins 4—6 þumlungar í þver- mál. Til er á skrám greinargerð um daglegan skammt af þessu brauði. Er þriggja ára gömlu barni þar ætluð hálf tortilla á dag, en fjögurra ára barni heil. Á aldrinum sex til tólf ára eiga börn að fá hálfa aðra tortillu, og við þrettán ára aldur á skammt- urinn að aukast í tvær lcökur. Fyrsta uppeldi barna miðaðj þann- MYNDIRNAR hér aS neðan eru teiknaðar af Indíánum um m iðbik sextándu aldar. Spænskur trúboði tók þá saman verk um Aztekana, Historia General de Nueva Espana, og hann fékk drátthaga Azteka til að lýsa daglegu lífi þjóðarinnar I myndum. Þessar myndir voru þó ekki birtar opinberlega fyrr en árið 1905, en hins vegar kom verk trúboðans út árið 1829. FÁTÆKLINGAR KONUR ÞJÓFAR AUÐMAÐUR MAURABIT 638 T I M I N N — SUNNUDAGSBLAO

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.