Tíminn Sunnudagsblað - 28.07.1963, Blaðsíða 7

Tíminn Sunnudagsblað - 28.07.1963, Blaðsíða 7
GARÐAR og er bezt að gera það með dálítilli írásögn af Kolumkilla sjálfum. 0 Kolumkilli var göfugrar írskrar ættar og var fæddur um árið 521. Hann gerðist mikill guðsmaður þegar á unga aldri, bænheitur, föstuþolinn, vinnusamur og afskipta samur um andleg og veraldleg efni. 1 írskum ritum er hans minnzt fyr- ir margra hluta sakir, og hefur þeg- ar verið drepið á íhlutun hans um málefni skálda ,en mikið orð fór af honum fyrir bókagerð, klaustur- stofnanir og kirkjuleg störf, og auk þess tók 'hann virkan þátt í póli- tískum átökum á Iriandi. Það var fyrir slíkar sakir, að Kolumkilli var gerður útlægur af Irlandi árið 563, og þá heldur hann fari sínu norður til lítillar eyjar vestan við Myl í Suðureyjum. Á íslenzku heitir h'ún Eyjan helga. Kolumkilli stofnaði þar klaustur og rak áhrifamikið trúboðsstarf um Suðureyjar og Skotland, en þá voru hinir pétt- nesku íbúar landsins að verulegu leyti heiðnir. Um ævi Kolumkilla er margt ritað, en langbezta og traustasta heimildin er ævisaga hans eftir Adhamhnán, sem var ábóti í Eynni helgu og lézt þar árið 704. Kolumkilli var 42 ára að aldri, þegar hann hóf starfsemi sína í Suðureyjum, og þar dvaldist hann til dauðadags árið 597. Áhrifa hans á kristni Ira og Skota gætir á marga lund. Fjölmargar kirkjur eru enn helgaðar honum, og ýmiss konar sagnir voru færðar í letur af honum þegar í fornöld, og sýna þær mikinn og einstæðan persónu- leika, sem á sér fáa líka í vestrænni kristni. Kolumkilli var ekki eini írinn, sem sigldi til Suðureyja að boða kristnl þar á 6. öld. Á undan hon- um var Brénainn ,og ýmsir aðrir sigldu bátum sínum í norðurátt frá Irlandi um þessar mundir. Um einn þessara helgu Ira á sjöttu öld er það sérstaklega tekið fram, að hann sigldi til Týlis eða íslands, unz hann síðar sneri sér að trú- boði á Skotlandi. Og á dögum Kol- umba var uppi Kormakur sá, sem sigldi fullum seglum yfir víðáttu Framhald af bls. 644. HULDUKONAN í SVÖRTUGJÁ Norðanvert við Svörtugjá í Hleiðargarðsfjalli er klöpp, sem nefnist Huldufólksklöpp. Það hef- ur verið trú manna, að þar byggi huldufólk. Eru sagnir um, að nokkrum sinnum hafi smalamenn heyrt þar strokkhljóð á sumrin, og því trúði fólk, að þar hefði eitt sinn kýr verið þurrmjólkuð af huldufólki, og er sú saga þann. ig: Þegar Ólafur Guðmundsson og Þorbjörg Jónsdóttir (Vigfússonar frá Litladal) bjuggu í Hleiðar- garði, var það eitt sumar á túna- slætti, að allt fólkið var að hey- vinnu á túninu, nema Þorbjörg húsfreyja og Sigríður, dóttir þeirra hjóna. Hafði Þorbjörg meitt sig á fæti og lá í rúminu, en Sig- ríður annaðist matreiðslu. Sá þá fólkið, sem úti var, að ein kýrin — en kýrnar voru þá í fjallinu uppi á seli eða selrústum þeim, sem eru uppi á Brún sunnan við Syðra-Bæjargil — hélt af stað frá hinum kúnum og stefndi suður og upp að Svörtugjá. Var því lík- ast, sem hún væri teymd. Ekki létti hún fyrr en hún kom að hamrabeltinu, en þar nam hún staðar og stóð þar rótlaus alllanga stund. Síðan fór hún sömu leið til baka og alltaf jafnhægt, og þangað sem kýrnar höfðu verið, en þá voru þær á leið heim. Þegar hún kom á þann blett, er hún hafði verið á, áður en þetta ferða- lag hófst, sagði fólkið, sem á horfði, að því hefði verið líkast sem henni hefði verið sleppt þar, því að nú tók hún að greikka spor- ið og flýta sér, þar. til hún náði hinum kúnum. Um kvöldið brá svo undarlega við, að mjaltakonan náði varla dropa úr henni. Var hún þó ný- borin og með mikilli mjólk. Voru nú Þorbjörgu sögð þessi tíðindi, en hún hélt, að kýrin vildi ekki selja griðkonum, þó að ekki hefði það komið fyrir áður og bað Sig- ríði dóttur sína að fara til — en þær mæðgur mjólkuðu oftast. — Gerði Sigríður það, en fann brátt, að engin mjólk var í kúnni. Sagði hún móður sinni þetta, en hún trúði ekki og staulaðist sjálf í fjós. Er hún hafði skoðað kúna, stóð hún upp og bað mjaltakonur að láta við svo búið standa. Mundi mjólk, sem vant væri verða -kom- in í kúna að morgni. Reyndist þetta rétt og aldrei kom neitt þessu líkt fyrir eftir þetta. Eftir þetta kom sú saga á gang, að nóttina eftir hefði Þorbjörgu dreymt það, að kona kæmi til hennar og bað hana að fyrirgefa, að hún hefði hnuplað mjólkinni úr kúnni. í launaskyni mælti hún svo um, að ekki skyldi hana skorta meðan hún lifði. Varð líka sú raun á, því að þau hjón bjuggu um langt skeið einu hinu mesta búi í Eyjafirði, en voru þá fátæk, er þetta gerðist. Oft var Þorbjörg síðar spurð um drauminn, hvort sannur væri, en aldrei gaf hún ákveðin svör, en leiddi talið ætíð að öðru. Hannes Jónsson frá Hleiðargerði. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 631

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.