Tíminn Sunnudagsblað - 01.09.1963, Side 8
belti í stað skíða eða h.ióla. Þetta var
nýstárleg hugmynd, sem síðar átti
eftir að verða gallharður veruleiki.
En áður en Scott færi í ný.ian leið-
angur til suðurákautsins, fór annar
maður á stúfana. Þessi maður var
Shackleton, sá hinn sami, er verið
hafði með í leiðangri Scotts áður.
Þeim Scott var ekki vel til vina. Scott
hafði fengið óbeit á honum, þegar
þeir tveir og Wilson höfðu gert loka-
framrás sína á suðurskautsísnum, en
Shackleton hafði þá þjáðst mjög af
skyrbjúg eins og áður er sagt. Þessi
maður hélt nú til suðurskautsins í
fararbroddi leiðangurs og brauzt þar
áfram sömu leið og hann hafði farið
með Scott á sínum tíma, og hann
komst lengra en þeir höfðu þá komizt
lengst. Hann uppgötvaði Beardmore-
jökul, stærsta jökul heimsins og
brauzt áfram með frábærri karl-
mennsku og hugrekki upp næ'r enda-
laus fjöll skriðjökla. Hann og félagar
hans komust rúma 150 km. inn á
sjálfa suðurskautssléttuna, en urðu
þá að snúa við vegna fæðuskorts. ■—
Shaekleton byggði á þeim grunni,
Framhald á 717. slSu.
Wfe't;'-:- i ..
...............>..........S............................................. •>*
Scott vlldt ekki nota hunda. En hundar eru notaSir enn þann dag ( dag á Suður.
skautshindinu, svo sem myndin sýnir.
704
T f M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ