Tíminn Sunnudagsblað - 01.09.1963, Blaðsíða 22

Tíminn Sunnudagsblað - 01.09.1963, Blaðsíða 22
GLETTUR bón á altarisgöngudaginn, en segir þó: „Þá ætla ég að biðja guð að fyrir- gefa mér“. „Þið um það“, svaraði bóndi. Sá kvikð og sá braití Eitt sinn voru á Austfjörðum tveir menn, er nefndust Jón í loftinu og Guðmundur bratti. Voru þeir ólíkir. Jón var kvikur á fæti, en Guðmundur feitur og fór sér hægt. Eitt sinn mætt ust þeir á förnum vegi; Jón var þá með pokaskjatta á bakinu. Guðmundur segir: „Þú ferð nú með þetta í loftinu Jón minn“. „Það fer nú eftir því, hvað ég verð brattur, svarar Jón. Mannslát Maður er nefndur Jón og bjó fyrir austan. Var hann skrýtinn í svörum. Eitt sinn drukknaði maður Jóni ná- kominn, við bryggju þar austur frá, en fáleikar höfðu verið með Jóni og honum. Er Jón frétti lát skyldmennis síns, mœlti hann: ,,Þar var mannslát, en ekki mannsskaði". Eitt sinn veiktist barn, sem Jón átti, mjög hastarlega. Er læknirinn var að telja meðaladropa ofan í barn- ið mælti Jón: „Tíu dropar til, deyr eða lifir ekki“. „Og svo ger$a eg“ Vigfús geysir Jónsson bjó um all- mörg ár á Hervararstöðum á Holtsdal á Síðu. Hann var ýkinn til muna og nokkuð sérlegur í tali. Þessa sögu sagði hann af því, er eitt sinu' bar fyrir hann á Mýrdalssandi: „Eg var á ferð á Mýrdalssandi, og mætta eg draugi. Það var kvendraug- ur, og réðumst eg á hann, og svo fellda eg hann. Þá sagði draugurinn: „Neyttu fallsins, karlmaður". Og svo gerða eg“. Eítt var effir Þórður Tómasson á Rauðafelli var mikill kappsmaður. Þegar elli færð- ist yfir hann, þraut þrek og getu til þess að standa í stórræðum, svo sem hugur hans stóð þó enn til. Þótti gamla manninum súrt í brotið að vera svo bugaður orðinn af ellinni og barmaði sér yfir því með svo- felldum orðum: „Það er ekkert orðið eftir af mér, nema andskotans hugurinn til að kvelja mig“. Merkir eilífa hvíld Séra Hallgrímur Thorlacius í Mikla garði var að uppfræða bömin. innti hann þau þá eftír því, hvernig hásæti Salómons hefði verið. En börnin voru fáfróð um það, og hóf prestur þá að lýsa þessu virðingarsæti. Lauk hann lýsi-ngunni með þessum orðum: „Það var kollótt aftan fyrir, sem merkir þá eilífu hvíld". Tortryggni Kerling nokkur hafði hann sið að signa ærnar út úr kvíunum. Var það gert til þess, að þær yrðu spakari á hága og síður flygi undir þær. Ekki vildi signingin þó ævinlega stoða framan af sumri, meðan ánum var rásgjarnt. Morgun einn stendur kerling í kvíadyrum og signir hverja á um leið og hún fer út. Síðan stingur hún höndum á síður, horfir á eftir ný- signdum hópnum, sem lestar sig ská- hallt upp brekkuna ofan við kviaból- ið og segir: „Til andskotans farið þið nú samt allar í dag“. Bænagerð og búsáhyggjur Menn úr Hvammssveit voru á sum- ardegi að leggja af stað á skipi frá Skæringsstaðáhöfða í kaupstaðar- ferð. Meðal þeirra var Sigurður Jónsson, einkennilegur karl í Glerár- skógum. Þegar ýtt hafði verið frá, tóku menn ofan að vanda og Iásu sjóferðabæn. í sömu andrá og bæn- inni var lokið og menn höfðu sett á sig höfuðfötin, mælti Sigurður til fé- laga sinna: „Vill ekki súrna hjá ykkur mjólk- in, piltar? Ekki þakkarvert Guðbrandur í Hólmlátri ætlaði eitt sinn að ríða frostbólgna á á veikum ísi. Brast ísinn, og komst Guðbrandur yfir með reiðskjóta smn við illan leik, en hafði þó áður misst svipu sína og ullarvettlinga. Komst hann til bæja, sýlaður og illa til reika, og bar sig báglega yfir missi sínum. Bónda fannst hann mikla um of íap sit-t og segir: „Vertu ekki að barma þér yfir þessu. Þakkaðu guði, að þú hélzt lífi“. Guðbrandur tók þeirri áminningu ekki illa, en segir þó: „Það væri kannski ástæðá til þess, ef ég hefði ekkert tjón þurft að bíða.“ „Transpcrt“ á HellisheiSi Snorri hét bóndi á Selfossi á því skeiði, er tekið var að veiða lax í Ölfusá til sölu í Reykjavík. Var hann þá stundum í laxflutningum. Einu sinnj bar svo við, að klyfberi brotnaði, er hann var kominn upp á Hellisheiði, og reið þá Snorri niður í Ölfus til þess að fá nýjan klyfbera. Einar Gestsson á Hæli bar að, þegar Snorri kom aftur með klyfberann og staldraði við hjá honum. Þótti Ein- ari nóg um, þegar Snorri henti brotna klyfberanum eins langt frá götu og hann orkaði, án þess að hirða mót- tökin, og spurði, hvort hann ætlaði að fleygja því, sem nýtilegt væri. „Það er ekkert transport, þar sem ekkert gengur í súginn", svaraði Snorri. Þau um það Sá var siður, er fólk ætlaði að vera til altaris, að hver bað annan fyrir- gefningar á öllum misgerðum. Ónafn- greind hjón voru búin til altaris- göngu, og víkur konan sér að manni sínum og bað hann fyrirgefa sér það, sem hún hefði af sér brotið við hann. „Nei“, svaraði karl. Konunni þótti langt gengið, er bóndi hennar neitaði fyrirgefningar- Lausn 71. krossgátu Nf.7 -/ * H fí § fí i y B 1 L $ fí V J? 1 3E. s K R ss 5 yy S L a L t G H Æ B T u R i I ú T 1 S K R fí R 6 p s S N i ff L fí L L fi L i 1 5 N /C L V fi 0 T u R 5 F 1 S5? 0 F K + 0 T ó~ N N K m S K E F V 6 G t T' fi K T E R T fí j O N K I R U R ó R l N 1 R i X 0 R R * S * N 'i* S N s 1 0 K fi H fl N 1 r: r ft N I N N S N n r a s> i L n R U S E T N i R 0 s S R É £ F L R rr ó fí 5 T T ó K Ý ft P | U R T a É n K u R E y R I ií: R L l N N T i R o n C D 718 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.