Tíminn Sunnudagsblað - 01.09.1963, Qupperneq 21
Skip belgíska leiSangursins — Belgica — festist í isnum og sat fast i fimmtán mánuði. Leiðangursmenn lifðu af
við miklar hörmungar.
veturinn
SUÐURSKAUTSFERÐIR SCOTTS -
Framhald af 704. siðu.
sem leiðangur Scotts hafði gert. Og
hugrek'ki hans og frábær forusta hafði
nærri því fært honum endanlegan
sigur, fært hann á suðurskautið sjálft.
Það var sennilega aðeins ein ástæða
fyrir því, að honum tókst ekki að
komast til skautsins. Hann hafði orðið
fyrir áhrifum af fordæmingu Scotts
á notkun hunda, og áleit þá — eins
og Scott — óhæfa í leiðangri af þessu
tagi. í stað hunda notaði hann smá-
hesta frá Síberíu. Hann hafði íarið
•með átta þeirra til Suðurskautslands-
ins, en fjórir þeirra dóu af einhverj-
um ástæðum áður en til kastanna
kæmi. Þótt þessir fjórir sem eftJr
lifðu, gætu dregig þungar byrðar við
eðlilegar aðstæður, voru þeir til ein-
skis nýtir á Suðurskautslandinu. Þeim
var slátrað, en kjötið varð eitrað, svo
að leiðangursmenn urðu fársiókir af
að neyta þess.
Sú reynsla, sem fékkst í leiðangri
Shackleton, var Scott mikils virði,
en þótt undarlegt megi virðast, lét
hann afdrif smáhestanna og þær upp-
iýsingar, sem hann fékk um gagns-
leysi þeirra, sér ekki að kenningu
verða. Aðalatlagan að skautinu skyldi
gerð með síberískum smáhestum, sam
kvæmt áætlun hans. Auk þess ætlaði
hann að nota vélsleða, en hunda að-
eins til aðstoðar. Um þetta segir Scott
í dagbókum sínum: „Ég hef leitazt
við að gefa rétta mynd af notkun
hunda á heimsskautasvæðum. Það er
fráleitt að segja, að þeir auki ekki
yfirferðina, en að láta sem unnt sé að
nota þá til hins ýtrasta, án þess að
þeir líði og þiáist og deyi, er jafn frá-
leitt. Spurningin er, hvort unnt sé að
réttlæta þannig meðferð með tilgang-
inum,. og ég hugsa, að það sé cnögur
legt rökfræðilega séð, en það hlýtut
að ræna sleðaferðir mestum Ijóma
þeirra, að innleiða svo svívirðilega
nauðsyn".
Þetta er einkennileg tilfinninga-
semi. Scott vildi ekki nota hunda, en
hann var algjörlega við því búinn að
nota smáhesta. Hann vildi ekki pína
hunda áfram og ekki deyða þá, en
hann var reiðubúinn að keyra smá-
hesta áfram og stytta þeim aldur, ef
nauðsyn krefði. — Scott var tilfinn-
ingasamur á sviði, sem krafðist raun-
hyggju. Hann hlaut að gjalda þess og
fjórir félagar hans með honum.
! siæsfa föfublaðí verlíur þátfur um Eirík Ólsen
ferumaniiínn, sem gaf JörS og stiftaöi iegat í fæð»
ingarsvest sinni aft fyrirmynd framfarasinnaðra efna-
manna, orfi án þess aS rígskorða sig viS hefðbundið
form og var þar á ofan mestur burðarjálkur og
hreystiskrokkur um sína daga.
T I M I N N — SUNNUDAGS6LAÐ
717