Tíminn Sunnudagsblað - 29.09.1963, Blaðsíða 7

Tíminn Sunnudagsblað - 29.09.1963, Blaðsíða 7
hvarf, þegar dimmdi. f Þýzkalandl rigndi blóði. í Englandi sáust hræði- legar ófrcskjur, þar á meðal slanga með tvö kvenhöfug og stóra Leður- blökuvængi. Þvílíkar sögur bárust mann frá manni og land úr landi. Það leyndi sér ekki, að heimsendir var í aðsigi. Nokkru áður en svarti dauði skall yfir álfuna, hafði t'ekið ag bóla á nýrri trúarhreyfingu i Þýzkalandi Fólk, sem iðraðist synda -sinna og misgerða og óttaðist afleiðingar þeirra, hópaðist saman og barði hvað annað meg svipum til yfirbótar og beitti sig onargs konar pínslum. Þetta voru hinir svonefndu svipubræður. Skelfingin, sem fylgdi í kjölfar svarta dauða var óskapleg, og sögur um sýnir og fyrirburði, ér flugu um löndin, mögnuðu hana um all'an helm- ing., Það var eins og stífla brysti: Allar hömlur ruku út í veður og vind, og fólk missti taumhald á sjáLfu sér. Sumir fleygðu sér út í hig viUtasta líferni, en aðrir l'eituðu á náðir guð- dómsins af engu minni ákefð. Kirkju- höfðingjarnir hrundu af stað heit- göngum til þess að stilla reiði him- insins, og þúsundum saman þramm- aði fólkið berum fótum um þjóðvegi og stræti, stráði ösku í hár sér og barði sig svipum, syngjandi iðrunar- sálma og þyljandi bænir. Strangar föstur voru einn þáttur slíkrar yfir- bótar, og hvarvetna voru gerð heit um gjafir til kirkna, klaustra og ölm usumanna og lofað föstum og gjöfum Langt fram í tímann, jafnvel um alla ókomna tíð. ,Um öll Lönd drógust saman stórir hópar fólks, sem pynd- aði sjálft sig á allan hugsanlegan hátt, og stundum tóku þessir menn sig upp og fóru í hópum land úr Landi undir krossfána, knékrjúpandi og syngjandi, skinhoraðir af föstum og sárir af svipuhöggum. Enskur sagnritari getur um einn slíkan hóp svipubræðra, er kom til Lundúna um Mikjálsmessu árið 1349 Þetta fólk, alls hundrað og tuttugu manns, var frá Hollanái og hafði gengið suður Flæmingjaland og kom izt síðan yfir Ermarsund til Eng- lands. Sagnritaranum farast orð i þessa leið: „í Lundúnum sýndu þeir sig fólki tvisvar á dag, annaðhvort í Pál- kirkjunni eða annars staðar. Þeir gyrtu skósítt klæði um lendar sér, en efri hluti líkamans var nakinn. Á höfði voru þeir með hatt með ra um krossi að framan og aftan. Allir héldu á svipu í hægri hönd, og þegar þeir voru á göngu, létu þeir hana riða á blóðuga líkami sína við hvert skref. Sungu fjórir sálma á máli þjóðar þeirra, en aðrir fjórir svör- uðu eins og tíðkanlegt var í bæna- söng. Við þriðja hvert skref fleygðu þeir sér allir samtímis til jarðar og teygðu frá sér handlegglna, svo að þeir mynduðu kross. En ailtaf héldu þeir áfrarn að syngja. Síðan reis sá á fætur, er aftastur var, og barði hinn næsta með svipu sinni. Hann fór eins að og þannig koll af kolli. Að lokum fóru þeir í hin venjulegu klæði sín og gengu með drúpandi höfuð og svipu í hönd td aðsetursstaðar síns.“ Það er líka svo frá sagt, að þetta píslargöngufólk hafi lesið yfir þeim, er söfnuðust að því, skjal, sem sagt var afrit marmaratöflu, er engill hafði látið síga niður á altari kirkju einnar í Jórsölum. Boðskapur þess var sá, að syndsamlegt líferni krist- inna maitna hefði tendrað svo reiði Krists, að hann sendi hverja pláguna af annarri yfir jörðina: l'andskjálfta, styrjaldir, * eldsvoða, uppskerubrest og hallæri. Iðruðust mennirnir ekki, myndi hann tortíma öllum heimi, og þeirri tort'-mingu var því aðeins unnl að forða, að alLir færu að dæmi svipu bræðra og berðu sig og pynduðu í hálfan þrítugasta og fjórða dag — jafnmarga daga og Kristur hafði lif að ár á jörðinni. Þessar píslargöngur færðust fljótt í aukana, en þegar fram í sótti, varð ískyggileg breyting á. Alls konar óþjóðalýð'ur slóst í för með svipu- bræðrum, og brátt mynduðust stór- ir flokkar, sem fóru með ránum og gripdeildum um löndin. Heilagt líf- erni vék fyrir kynofsa hálfnakinna karla og kvenna, sem þyrptust sam- an, og áður en árið 1349 var á enda, sá páfinn sig tilneyddan að taka í taumana. Hann bannaði píslargöngur svipubræðra og skipaði biskupum sín- um að veita vendegu yfirvaldi fyllstu aðstoð, þegar til' valdbeitingar þyrftl að grípa U1 þess að framfylgja bann- inu. Einkum skipaði hann þeim að beita þá presta og munka hörðú, er eggjuðu til slfkra gangna eða mæltu þeim bót. Víðast tókst fLjótlega að vinna bug á svipubræðrum. En þar sem þeir reyndu að fara sínu fram, voru þeir ýmist hálshöggnir eða gerðir brott- rækir úr bæjum og byggðum. IV. Á Norðurlöndum blossaði svarti dauði fyrst upp í Noregi, en barst þaðan til Svíþjóðar. Hann virðist hafa einna sízt komizt í algleyming á Sjálandi og Norður-Jótlandi. í Danmörku var mannfall'ið mest árið 1350. Það ár hlotnað'ist dómkirkj- unni í Rípum nálega fimm sinnum fleiri sálugjafir en árig áður, er svo voru ríflega úíilátnar, að þær voru færðar á ártíðarskrá í því skyni, að gefendunum yrði sungin sálumessa á dánardegi sínum um ævarandi tíð. En það voru aðeins auðugustu menn, er svo rausnarlega gátu gef'ið fyrir sálu sinni. Þegar sóttinni létti loks, höfðu dómkirkjunni bætzt fimm verð- mæl hús í Rípum og átta síórjarðir. En hversu pestin hefur verið stór- högg meðal alþýðu manna í Dan- mörku, má nokkuð marka af því, að um skeið var dæmdum afbrotamönn- um gefinn kostur á að leysa höfuð sitt og limi með fégjaldi. Landið mátti bókstaflega ekki vig því, að sekir menn væru teknir af lífi eða ‘ Framhald á 814. síöu. Hópur svipubrœðra í plágunni miklu. Þelr reyndu aS sefa reiSI guSs meS þvl aS misþyrma sjálfum sér. T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 799

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.