Tíminn Sunnudagsblað - 29.09.1963, Blaðsíða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 29.09.1963, Blaðsíða 20
réttinum. Margir foringjar þeirra voru andvigir þessari ráðstöfun, þar eð þeir töldu, að hún gæti haft óheilla vænleg áhtif á ættbálkaskipulagið. Tiltölulega íáir einstaklingar not- færðu sér þeita fyrstu árin og tóku formlega við réttinum. Árið 1926 setti stjórnin nefnd til að rannsaka efnahagslegt og félags- legt ástand lodíána. Forystu þeirrar rannsóknar hafði Lewis Meriam með höndum. í skýrslu nefndarinnar birt- ist í fyrsta sinn nákvæm og hlutlæg lýsing á lifnaðarháttum Indíána, skjólstæðinga þjóðarinnar. Skipta- stefnan var sérstaklega nefnd til að sýna, hversu rikisstjórnin hefði brugð- izt hlutverki slnu. í skýrslunni segir:. „Þar sem ekki fylgdu hentugar leið- laeiningar um meðferð eigna hefur skiptalögunutn í meginatriðum mis- tekizt að leiða til þess, sem til var ætlazt. Árangurinn hefur orðið mikil landrýmun cg stórkostleg aukning skrifstofustarfsins við stjórnina án samsvarandi aukningar efnahagsgetu Indíána Það er engu Ííkara en að ríkisstjórnin hafi gert ráð fyrir því, að' einhverjir galdrar í einkaeign- arskipulaginu myndu af sjálfu sér hafa uppaidiiiáhrif og verka siðmennt- andi, en því miður hefur þessi stefna að verulegusni leyti haft þveröfug áhrif.“ Þegar ríkisstjórn Roosevelts tók ví^ völdum arið 1933, var fallið frá þeirri kenningu, að /ndíánar væru að deyja út. Roosevelt viðurkenndi þá stað- reynd, sem þá var stöðugt að verða berari, að Indíánum fór fjölgandi og að veigamikil atriði erfðamenningar þeirra var enn við lýð'i, og stefna hans var reist á þeim grundvelli. Árið 1934 voru samþykkt lög um endurskipu- lagningu Indíánamála og voru ýmis . nýmæli í þeim lögum. Þau voru skd- orðsbundin. og Indíánunum var sjálf- um gert að samþykkja þau eða hafna með atkvæðagreiðslu. Slíkt hafði aldrei gerzt áður, og sumir ættbálk- ar greiddu atkvæði gegn þeim, lík- lega af því einu, að þeir voru þess fullvissir, að ný lagasetning hlyti að rýra réttindi þeirra enn og auka yfir- ráð stjórnarinnar. En hjá þeim ættbálkum, sem sam- þykktu iögin, var frekari skipting sameiginlegs lands ættbálksins bönn- uð og innanríkisráðherrann fékk heimild til a'ð skila Indíánunum aft- ur landi, sem hafði verið úthlutað öðrum, en ekki nýtt. í lögunum var einnig ákveðið' að verja árlega 2 milljónum doliara til kaupa á auknu landi og sérstakur lánasjóður var settur á fót til að styrkja Indíána við aukna ræktun og. tækjaöflun. En kjarni laganna var þó ákvæði, sem heimilaði Tndiáteum að kjósa sér stjórnarvöld sjálfir, annaðhvort eftir skrifuðum lögum eða í samræmi við fornar siðvenjur. Þarna var í fyrsta sinn settur { lög sá réttur Indíána til sjálfstjórna'', sem dómstólar höfðu alltaf talið þá hafa, síðan Marshall kvað upp úrskurði sína á fyrri hluta 19. aldar. Með tilkomii nýju laganna byrjuðu Indíánar aftur að rétta úr kútnum. Á árunum 1933—’47 jókst búfjáreign Indíána úr 171,000 gripum í 361,000, og heildartekjur þeirra af landbúnaði jukust á sama tíma úr 1,850.000 doll- urum í 49 milljónir dollara. Lögin höfðu einnig í för með sér, ajj land Indíána jókst á áðurnefndu tímabili um 3.700.000 ekrur, og var það í fyrsta sinn um langan aldur sem Indi- ánar bættu við sig landi. Til þessa hafði reglan verið hin, að land þeirra lenti í höndum annarra. Félagslegar breytingar urðu marg- ar í lífi þeirra með tilkomu laganna, þótt sums staðar gengi hægt. Reglan um meirihluta samþykktir, sem vest- rænum mönnum finnst sjálfsögðust allra reglna, kom mörgum Indíánum undarlega íyir sjónir í fyrstu, þótt þeir tækju hana upp. Siður þeirra hafði frá öndverðu verið annar. Þeir voru vanir þvi að hefjast ekki handa með neitt fyrr en allir voru samþykk- ir eða engimi a. m. k. taldi ástæðu til að setja sig á móti þeirri ákvörð- un, sem tekir. var. Eins voru margir ættbálkar crðnir svo vanir því, að fulltrúi stjcrnarinnar tæki allar á- kvarðanir um málefni þeirra, að þeir hikuðu við að beita valdi, sem þeim var gefið með lögunum. En þessir vankantar smðust smám saman af, og margar Inciíánabyggð'ir urðu fljót- lega sjálfstæð samfélög, fullkomlegá hliðstæð öðrum sveitarfélögum. Þá komust Indíánar einnig í nán- ari snertingu \ ið þjóðfélagið umhverf is þá, og margir öðluðust aukinn skiln- ing á starfsemi þess og lífsskoðun hvítra manna. Indíánastjórnirnar gengust fyr.'i skólahaldi og áður en leið á löngu voru foringjar þeirra á ýmsum stöðum farnir að taka upp nánara samb?nd sín á milli og stefna að bandaiagi allra Indíána í landinu. Þetta var algert nýmæli í sögu Indi- ána. Áður, allar götur aftur úr forn- eskju, hafði hver ættbálkur haldið sig út af fyrir sig, og hafði ekki meiri samskipti við aðra ættbálka en nauð- syn krafði. Fyrir kom að tveir eða fleiri ættbálkai gerð'u með sér banda- lög í ákveðnum tilgangi, oftast til hernaðar, en þau bandalög stóðu sjaldnast lengii tíma en tók að vinna það ákveðna verk. Það var því sízt í samræmi við indíánska hefð, að fulltrúar msira en fjörutíu ættbálka komu saman árið 1944 og stofnuðu með sér formlegt Indíánasamband. Það samband liefur starfað æ síð'an og aukið áhrif sín bæði inn á við með- al Indíánanna sjálfra og út ó við sem talsmaður bjóð'ar sinnar. Á árunum eftir heimsstyrjöldina var Indíánastefnan tekin til nýrrar með- ferðar bæði á þingi og utan þings. Einkum þótti mörgum dragast að Indíánarnir lvstu sig reiðubúna til að standa á eigin fótum án aðstoð'- ar frá stjórnmni, og kröfurnar urðu háværari um það, að stjórnin ákvæði einhliða, hvenær vernd hennar skyldi Ijúka. Þessur skoðanir koma fram í samþykktum, sem þjóðþingið gerði árið 1953. Þá voru samþykkt lög, er veittu ákreðnum ríkjum lögsögu yfir þeim Indíánum, er bjuggu innan landamæra fylkjanna. Indíánar mót- mæltu fleshr þessum lögum, er þeir töldu miða að því að draga úr sjálf stjórn þeirra og bjóða því heim, að fylkin gerðu þá skattskylda. Einnig var sama ár samþykkt álylct- un, þar sem það' var lýst vera álit þingsins, að Ir.díánar skuli eins fljótt og unnt er vera losaðir undan yfir- sýn og eftírlíti ríkisins. Einnig var innanríkisráðherranum falið að kynna sér öil lög og samninga um Indíánamal og gera síðan tillögur um hvaða breytingar og ógildingar þyrfti að gera til þess að losa Banda- ríkin frá skuldbindingum sínum. Sú skoðun, sem kom fram í þess- ari ályktun, hnaðist þó á næstu ár- um. Almennmgur opnaði augun meir en áður fyrir sórstöðu Indíána og rétti þeirra til viðhalds menningu sinni, og a þingi juku demókratar fylgi sitt, en þeir voru hliðhollari hinni gömlu stefnu Roosevelts en stjórn Eíserhowers hafð'i verið. Skömmu cftir að Kennedy forseti tók við err.bætti 1961, var skipuð nefnd til að kanna þarfir Indíána, og í áliti sínu sagðí sú nefnd meðal annars: „Reynsla síðustu ára sýnir að það, að leggja meiri áherzlu á að binda endi a verndina en framþróun, hefur skaðleg áhrif á vilja Indíán- anna sjálfra og framkallar fjandsam- lega afstöðu eða afskiptaleysi, sem hamlar mjög framkvæmd Indíána- stefnunnar. Nefndin telur skynsam- legra að aðsvoða Indíána við félags- legar, efnahagslegar og stjórnmála- legar framfarir, þar til að því komi að sérstakar aðgerðir í þágu þess hóps Bandaríkjamanna verði ekki lengur nauðsynlegar. Þá er hægt að afnema verndina, svo að allir aðilar hafi sem bezfan hag af því. Ef hins vegar meiri áherzla er lögð á fram- þróun en afnám meðan breytingin á sér stað, má búast við samvinnu Indí- ánanna sjálfra sem er þýð'ingarmik- ið atriði íil að framgangur náist“. Markmið stefnunnar í Indíánamál- um hlýtur að vera það, að gera þeim kleift að lifa í sambúð við menningu annarrar þjóðar og létta undir með þá menningaraðlögun, sem nauðsyn- leg er, til að svo megi verða. Með þessu er ekki sagt, að stefna beri að því að fá Indiána til að kasta með öllu fyrir róða menningarerfð sinni 812 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.