Tíminn Sunnudagsblað - 29.09.1963, Blaðsíða 15

Tíminn Sunnudagsblað - 29.09.1963, Blaðsíða 15
ÞAÐ var byrjag að morgna. Þetta var fjórði dagurinn. Nú var allt glat- að', en þeir vildu ekki gefast upp. — Þeir höfðu skriðið upp á þakið, og þeir biðu eftir, að hermennirnir kæmu, jafnskjótt og orð'ið var bjart. Nú gat ekki liðið á löngu, þar til þeir kæmu. í fjarska heyrðist áköf vél- byssuskothríð, og fjórðungur himins- ins var rauður, ekki af bjarma rís- andi morgunsólarinnar, heldur dökk- rauðum j'.ampa eldtungna í svörtum reykbólstrum, sem sleiktu loftið snarkandi, hnykluðust og teygðust í óhugnanlegum myndum um leið og brandar féllu niður á breiða götuna með þrumandi hávaða, hægra megin, þar sem aðalstöðvar lýðveldissinn- anna stóðu. Þær höfðu verið um- kringdar og voru 1 þann veginn að verða teknar herskildi. Hér uppi á þaki veitingahússins í pokum, og hann hafði kartöflunef. Hann var ákveðin, ofstækisfull skytta, ónæmur fyrir röksemdum, ó- temjandi. Murphy lá endilangur á maganum meg brjóstið við lága þakrennubrún- ina og studdi höfðinu við reykháfinn, sem reis beint upp af horninu á þak- inu. Hann hélt laust á skammbyss- unni í hægri hendi, fast við hægra auga og starði fram undan sér með- an hann beið eftir, fullur æðislegu hatri, að fyrsta höfuðig kæmi í ljós. Þrjátíu skot eftir. Svo var það dauð- inn. Nú var allt glatað. Það var ekki lengur ástæða til að lifa. Dauðinn . . . Dolan kraup á hægra kné og hvíldi aðra rasskinnina á hælnum. Hann hafði líka skammbyssu sína í hend- inni. En hlaupið vísaði nið'ur í þak- rennuna og tennurnar glömruðu í munninum á honum. Sama hatrið yfirstjórn núna. Og Murphy var djöf ull. Murphy hafði snúið sér að honum og hafði þrýst skammbyssunni beint í brjóstið á honum og öskrað framan í hann froðufellandi: „Þú verður hérna'með mér, skíta labbinn þinn. Heyriröu það, bleyö'an þín? Það er ég, sem skipa fyrir, og það kemur ekkert til greina, sem heitir að gefast upp“. Þetta var í gærkvöldi. Þvílík nótt. Þögn; skot í fjarska; rottur hlaup andi á tröppunum; hann hugsaði um konuna sina. Murphy læddist upp og tuldraði fyrir munni sér; tveir fullir menn reyndu að komast inn í veit ingahúsið eftir ránsfeng; skot; bölv, — og rétt fyrir einni stundu höfðu þeir klifrað upp á þakið; og nú . . . b:ðu þeir dauðans. Það kom ekkert til greina. sem heitir að gefast upp þröngri fátækragötu lágu tveir menn og biðu. biðu dauðans. Þag var hræði legt. Fjórir dagar. Hve allt var orðið breytt síðan þá. Utan um þá lágu hin margvíslegu þök bæjarins eins og ójöfn slétta, sem teygðist í allar áttir út frá svörtu, rykugu þakinu, al hljóð; stórt þak, sem skýldi fjölda sofandi manna. Þeir lágu og sváfu, þeir hrutu nú friðsamlega, því að allt var um garg gengið. Endalokin stóðu nú þegar fyrir dyrum, og lýðveldis- sinnarnir höfðu verið sigraðir. Á fjórum dögum hafði geysandi skörum lýðveldissinnanna, sem höfðu þotið fram til varðstaðna sinna með tryllt- um ákafa í augnaráðinu, verið sundr að og þeir settir í fangelsi, drepnir, særðir, eða þeir leyndust úti á heið- unum. Mennirnir tveir hnipruðu sig saman á þakinu. Þeir lágu með skammbyss uraar í höndunum og biðu þess, að hermennirnir kæmu. Annar þeirra var Jim Dolan, liðþjálfi, grannur, ungur maður, tuttugu og tveggja ára, og bláu fötin hans, sem hann hafði keypt sérstaklega vegna þessarar bylt ingar, voru sundurtætt og ötuð ó- hreinindum. Fölt, ungt andlit hans, var tært og bar merki dauðans ang- istar og svefnleysis. Hann var að- stoðarskrifstofumaður að atvinnu. — Hinn var Tim Murphy, undirforingi, feiknlegur, lágvaxinn verkamaður með hnakka eins og naut og stórt, brúnt andlit, sem endaði í ferstrend um kjálka, er stóð fram líkt og breið. uppbeygð kló. Hann hafði lítil, grá augu, sem lágu falin í dökkum hold- byltist í heila hans, hatur á mönnum, sem sváiu, hatur á hermönnunum, sem fóru með eldi í fjarlægum götum og kæmu skríðandi í gegnum hús in að honum með dagsljósinu. En hann vildi ekki deyja. Óttinn við dauðann fékk tennur hans til að glamra. Hugsanimar þyrluðust sóttheitar gegnum heila hans . . . Hann hugsaði um líkin tvö niðri á tröppunum, tvo félaga hans. sem höfðu verið drepnir daginn áðar, þegar vörubíll ók fram hjá, fullur af hermönnum, sem vörp uffu sprengju. Hún sprakk með gríðar legum hávaða á tröppunum. Það heyrðust vein. Flokkurinn varð grip inn ofsahræðslu. Þrír menn höfðu stokkið út á götuna með uppréttar hendur og gefizt upp. Hann hefffi líka viljað gefast upp. En Murphy hafði staðið við hliðina á honum í efsta glugganum. Murphy skaut, einu sinni, tvisvar, þrisvar. Mennirnir þrír hringsnerust og féllu á götuna. Hann skaut aftur. Einhver skrækti í vöru bílnum, og í því að hflnn ók af stað á fullri ferff, valt grænklæddur mað ur um á miðjum bílpallinum og féll niður á bök hinna hermannanna, sem höfðu kastað sér á grúfu á pallinum til ag skýla sér. Nú voru þeir aleinir, þeir tveir. Hann var aleinn með Murphy, og hann var hræddur við hann. Hann hafði sjálfur yfirstjórnina á hendi, þaff var hann, sem bar ábyrgðina á Iþessari viarðstöð. En þessi djöfull með nautshnakkann var hinn raun verulegi yfirmaður. Það var engin Dolan hugsaði um konuna sína. — Guð minn góður. Hve allt var ein kennilegt. Voru það fjórir dagar eða voru það þúsund ár? Hann elskaði hana ekki lengur. Alls ekki. Hún var horfin úr lífi hans. Eftir var aðeins minningin um grannar, veikbyggðar hendur hennar, veiklulega, bleika vanga hennar, ljósu lokkana viff eyr un, stór, fölblá augu hennar og það, hve gjörsamlega ómögulegt var að fá hana til að skilia nokkuð. Hann hafði ekki sagt henni frá neinu. Hann sendi ekki einu sinni skilaboð til hennar fyrir fjórum dögum, þegar hann þaut út úr skrifstofu sinni til þess ag tak ast á hendur stöðu sina. Hún hefði hvort eff var ekki skilið neitt. Hann hugsaði aðeins um hana, af því að hún birti honum veröld, sem hann bar saman við þessa villimennsku, þar sem hann var fullkomlega ein angraður frá lífinu, á þaki með djöfli. Hvers vegna, hvers vegna gat hann ekki æpt á hjálp? Hvers vegna gat hann ekki miðað hlaffinni skamm- byssunni að breiðu baki Murphys, þar sem hann lá endilangur við hlið ina á honum, og hleypt af, skotið, skotið með samanbitnum tönnum, vit stola, þar til sex kúlur höfffu sokk- ið inn í þennan djöfuls búk? Þá yrði hann frjáls. Hann gæti þotið niffur tröppurnar, fram hjá . . . Nei. Hann kæmist ekki fram hjá líkunum. Al- máttugur guð. Líkin á tröppunum. Hann kraup niður. Tennurnar glömruðu í munni hans, og hann fann til hræðilegra kvala í höfffinu. Allur líkami hans brann, hver fruma titraffi, innyfli hans voru þung. eins TlMlNN - SUNNUDAGSKLAÐ 807

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.