Tíminn Sunnudagsblað - 29.09.1963, Blaðsíða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 29.09.1963, Blaðsíða 13
\ án mönnum, að okkur sýndist, stefna þarna að alófæru landi. En hér varð ekki við ráðið. Við höfðum reynt af fremsta megni að vekja athygli á okk- ur og lögðum nú af stað inn fyrir víkina til þess að vera þó í flæðar- málinu, þegar þá bæri að landi, þótt við gætum ekkert aðhafzt. En áður en við fórum frá sjóhúsinu, hljóp Þórður þar inn, greip hvíta fokku og batt á ár, sem hann stakk í stafn á skektu, er þar stóð. Þetta ráð dugði. Fokkan fiaksaðist í vindinum, og eftir æðistund sáum við, að bátnum var snúið í áttina út að lendingunni, beint upp í vindstöðuna. En þá kom í ljós, að þessir menn myndu alls ekki vinna út að lendingunni í því veðri, sem var. Það var hvað eftir annað skipt um menn við árarnar, og var auðséð, að aðeins einn þeirra kunni að róa. Þegar hér var komið, voru fjórir menn til viðbótar komnir niður í flæðar- málið, og lét Þórður því hrinda fram báti og róa til hinna ókenndu manna. Kaðli var kastað upp á bát þeirra, og var hann síðan hafður i drætti suðaust ur að lendingunni. Þetta voru um fjögur hundruð faðmar, en við vorum klukkutíma og fjörutíu og fimm mín- útur að komast þangað. í lendingunni skall alda á hlið, þegar farið var inn, og var því lítt hugsanlegt að hafa bát í togi eins og á stóð. Fór Þórður því yfir í aðkomubátinn, en lét okkur róa inn í vörina. Gaf hann eftir á dráttarkaðlinum, svo að báturinn, sem i togi var, gat legið fyrir utan á meðan ólögin riðu yfir. Á næsta lagi var hann svo dreginn ínn í vörina með handafli. Þannig tókst að koma hon- um upp í fjöru, án þess að hann yrði fyrir teljandi áföllum. Einn bátverja gat gert okkur skilj- anlegt, hvernig á ferðalagi þeirra stóð. Þeir höfðu verið á enskum línuveið- ara við Austurlandið, en lentu svo ná- lægt Hvalbaknum aðfaranótt 8. nóv- ember, að skip þeirra fórst þar, Sökk það á tuttugu mínútum, en þótt með ólíkindum væri björguðust mennirnir allir í bátinn, sem hér var búið að draga á land í Krosstanga í Berunes- hreppi. Frá þeim stað eru tuttugu og sex míiur út að Flvalbak, og þá leið höfðu mennirnir farið á hálfum fjórða sólarhring — kunnu ekki að nota ár- ar og höfðu flotið þetta með vindinum á aðeins einni fokku, sumir mjög klæð- litlir, og matar- og vátnslausir í fjöru- tíu kiukkustundir. Nú kom í Ijós, að mennirnir voru fimmtán. Tíu Englendingar, þrír Skot- ar, einn íri og einn Færeyingur. Vél- stjórarnir voru algerlega hlífðarfata lausir, og írinn, sem var fyrsti meist- ari, var aðeins í mjög skjóllitlum nær- fötum og lélegum frakka, berfættur. Einhver úr okkar hópi fór úr sokk- um sínum og færði írann í þá, en ann ar lagði honum til skó. Síðan var hann leiddur heim að Krossi Að öðru leyti var hópurinn ekki verr farinn, en svo, að hann komst hjálparlaust heim að bænum. Húsakynni á sveitabæjum voru lak- ari en nú tíðkast, en samt var hér sem oftar, að það olli engum vandkvæðum. Þórður og kona hans, Matthildur Bjarna dóttir. tóku sex af þessum mönnum i sín hús. Fyrst af öllu létu þau vél- stjórana hátta ofan i rúmið sitt, og að öllum öðrum hlynntu þau af stakri nærgætni. Níu var komið fyrir í næstu húsum. Sýndist engum annað en hlúa sem bezt að þessum sjóhröktu mönnum. Til dæmis tók Gísli'Sigurðsson í Kross- gerði og kona hans, Vilborg Einars- dóttir frá Geithellum, á móti fjórum, því. Eins og nærri má geta var iíts- barátla þeirra hörð, og víst mætti skrita fallega og eftirtektarverða sögu ui«» það, hvernig þau komu til manns sex börnum, sem þau eignuðust, Þau voru tBjörgvin, bóndi í Krossgerði, Aðal- steinn, kennaci i Keflavík, Guðfinn^, húsmóðir i Reykjavík, Málfríður, hús- móðir í Reykjavík, Sigurður Óskar og - Ingólfur. Sumir drengjatina byrjuðu að stu. sjó strax og þeir voru komnir um fet ingu og fóru því tiltölulega ungir aó bjarga heimilinu, ásamt móður sim. Árið 1925 keyptu þeir trillubát og gerbu hann út austur á Stöðvarfirði. Þá va. aðallega um línu að ræða og skelfisku. notaður í beitu. Fóru þeir suður á Hamarsfjörð til þess að sækja skel o» fengu Þórð Bergsveinsson til þess að fara með sér, því að hann var eðlilega kunnugri á þessum slóðum en þeir. — Þurfti hann þá og að ná í beitu handa sjálfum sér. 25. september 1925 gerðist mikill sorgaratburður á útströnd Berufjarðar. og höfðu þau þó tólf manns í heimili fyrir. Þessir skipbrotsmenn dvöldust á þessum bæjum i fjóra sólarhringa, og var síðan farið með þá á vélbáti til Eskifjarðar. Ég veit ekki tii, að það fólk, sem liðsinnti þeim, fengi neitt fyrir hjálpina, enda einskis krafizt. —o— Ég get ekki lokið svo þessum þætti, að ég gangi fra1-^ hjá því að minnast þeirra heimila, em mest lögðu á sig vegna hinna erlendu skipbrotsmanna. Þar er hér eins og eitt góðskáldið kvað: Hver einn bær á sína sögu, sigurljóð og raunabögu, tíminn langa dregur drögu dauða og lífs, sem enginn veit. Þórður Bergsveinsson frá Urðateigi og Matthildur Bjarnadóttir úr Skafta- fellssýslu komu fátæk að Krossi. En Þórður var athafnamaður og heppinn með bjargræði úr sjó, og stunduðu þau heimili sitt þannig, að sómi var að. Börn þeirra voru Bjarni, bæjarstjóri í Neskaupstað, Sigursveinn, skipstjóri í Reykjavík, Ingólfur, kennari við stýri- mannaskólann í Reykjavík, Þórður, verzl unarmaður í Neskaupstað, og Sigríður, húsnióðir í Neskaupstað. Gísli Sigurðsson og Vilborg Einars- dóttir byrjuðu búskap i Krossgerði ár- ið -l#0-2, -en --árið 1907 fékk Gísli hiní svonefndu lömunarveiki, svo að hann gat aldrei stigið í heila íætur upp frá Mafthildur Bjarnadóttir, kona Þórðar Bergsveinssonar. Maður hennar drukkn- aði með Krossgerðisbræðrum. Sjáif er hún enn á lífi. T I M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ 805

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.