Tíminn Sunnudagsblað - 29.09.1963, Blaðsíða 10

Tíminn Sunnudagsblað - 29.09.1963, Blaðsíða 10
Gautlönd. (Ljósmynd: Páll Jónsson). ekki muni það skrásett sem slíkt. Ég samdi sögu þess frá 1850—1900, og er hún til í handrit'i. Milli þessa gamla félags og hins nýja eru engin bein tengsl. En U.M.F. Mývetningur var stofnað áriS 1906, og það gerði nýtt fólk.. Lestraríélög Hér var iíka það, sem við köllum leshringi á nútímamáli, og voru bæk- ur látnar ganga á milli bæja. í hópi forgöngumanna í þessum málum voru meðal annarra Þorgils gjallandi, Jón í Múla og faðir minn. Lestrarfélag var stofnas hér árið 1858, og hefur því haldið 100 ára minningu sína. Hér voru skrifuð svokölluð sveitar blöð, sem talsvert hefur varðveitzt af og munu þau verð'a geymd í héraðs- safninu. Mörg þessara blaða hafa tap- azt, sem ekki er að undra, því að fólk hefur ekki gert sér grein fyrir heimildargildi þeirra fyrir síðari kyn- slóðir. Blöð þessi gengu milli bæja og voru venjulega skrifuð í tveim ein- tökum. Fyrstu blöðin voru skrifuð um 1874, og hélzt þessi siður fram yfir 1920. Búnaðarféiög og kaupféiag Búnaðarfélög voru stofnug hér fyr- ir aldamót. Þá voru skilyrði all't önn- ur en nú, t'il dæmis voru eingöngu notuð handverkfæri við landbúnaðar störf. Þá var sá háttur á hafður, að menn unnu í flokkum, hvorir fyrir aðra. Flokkar þessir unnu aðallega við skurðgröft og engjarækt, því að erf- itt var um túnaræktun. Til stærri verka munu menn hafa verið skyld- aðrir, þar sem lítið var um opinbera styrki tií framkvæmda og þeir smáir, ef einhverjir voru. Kaupfélag reis hér upp á þessum árum, en reyndar voru þar fleiri að verki en Mývetningar, þótt héðan væru ýmsir forvígismenn félagsins. Byggingar Svokallaðir aldamótamenn voru djarfhuga og bjartsýnir, en fyrri heimsstyrjöldin dró kjark úr mönn-

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.