Tíminn Sunnudagsblað - 29.09.1963, Blaðsíða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 29.09.1963, Blaðsíða 12
e i k Hann heyrði ymja undariega í kiettunum ÞVÍ mun svo farið um flesta menn, að á efri árum sinum minnast þeir þess ekki hvað sízt, er gerðist á ungl- ingsárum þeirra, einkum þess, sem frábrugðið var daglegum atvikum. Hér ætla ég að rifja upp eina slíka endur- minningu frá æskuárum mínum í Beru- neshreppi. Það var í nóvember 1916, að ég var að hj'ál'pa til við húsbyggingu á Krossi á Berufjarðarströnd. Um nætur var ég heima á Steinaborg og lagði af stað þaðan á morgnana nokkru áður en verkljóst var orðið, því að tuttugu tii tuttugu og fimm mínútna gangur er á milli bæjanna. Hinn 12. nóvember var loft þungbúið og dagsbirta því stutt. Vindur var af austri, sennilega fjögur til sex vind- stig, en meira, er dró til hafsins. — Hafði veður verið svipað þessu í þrjá sólarhringa, brim talsvert og því flest- ir boðar uppi við útströnd Berufjarðar. Það var enn skuggsýnt, er ég var staddur ofan við Krossgerðisstekiíinn. Heyrðist mér þá eins og Lúsíuhellir svonefndur í klettunum þar fyrir ofan ómaði af einhverju aðkomandi hljóði og jafnvel líka Fékamburinn, sem þar er fyrir utan. Mér þótti þetta svo ein- kennilegt, að ég fór upp undir klett- ana, enda ekki langt að fara. En ég varð einskis vísari og hélt svo áfram, án þess að hugsa meira um þetta. Þórður Bergsveinsson var fyrsti mað urinn, sem varð á vegi mínum, þegar STEFAN JÓNSSON FRÁ BORG: uróma í Lúsíuhelli tíu mínútum áður. Okkur heyrðist báðum hijóðið koma úr áttinni frá Snagálunum, sem eru að mestu leyti blindsker á háflóði aust suðaustur af lendingunni á Krosstanga. Nú fannst okkur eklci tími til þess að drekka kaffi. Við fórum án tafar út á Dagmálavörðu, því að þaðan sást vel að Snagálunum. En þar var ekkert að sjá. En við heyrðum enn, að lúður var þeyttur, en nú inni á Krossbótinni. Og þar komum við auga á bát með mörgum mönnum. Við fórum því niður á tangann að lendingunni. En mannskapurinn á bátn um tók ekkert eftir okkur, þótt við reyndum að vekja athygl’i á okkur. Hélt báturinn stefnu 1 átt til fjárhúsa, sem stóðu á neðst á túninu við sjóinn, og ég kom út að Krossi. Hann var þá fyrir einu eða tveimur árum orðinn eig andi og ábúandi þess hiuta jarðarinnar, sem heyrði tii miðbænum. Bauð hann mér kaffi, sem hann sagði, að væri tilbúið á könnunni. En um leið og hann opnaði útidyrahurðina, heyrðum við báðir, að blásið var í lúður, og rann þá undir eins upp fyrir mér, að þetta var sama hljóðið og ég hafði heyrt end var helzt að sjá, að þessir menn byggj- ust við, að þar væru sjóhús, enda sögðu þeir síðar, að þeir hefðu ætlað, að þarna væri lendingin. Allir, sem þekkja til á þessum slóð- um, vita hvílíkur háski væri þeim búinn, er reyndu að lenda á þessum stað, og nú stóð suðaustanvindurinn þarna upp á í þokkabót. Okkur leið ekki vel að horfa upp á bát með þrett- Þórður bóndi Bergsveinsson á Krossi var aðfaramaður á sjó. Hér sést hann standandi í bát sínum í heimavör, nýkominn að landi úr veiðiför. Hásetar hans sitja hjá honum í bátn- um. TÍMINN - SUNNUDAGSBLAO 804

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.