Tíminn Sunnudagsblað - 20.10.1963, Side 22
hélt, 8 ára aS aldri, en brotnaði und-
an fullorðna fólkinu. — Þann 17. var
,,landnyrðing'sbylur með snjókyngi og
ekki hundi út sigandi“, segir Bjarki.
Þá tekur Austri til þess, að mikið
hafi snjóað 22. og 23. dag mánaðar-
ins, og Bjarki segir þann 24.: „Ein-
lægir byijir og skemmdarveður hér
eystra undanfarna daga“. En 31. okt.
segir sama blað: „Veður hefur verið
Stillt síð'istu dagana, hreinviðri og
frost 3 til 4 gráður. — Snjór og ó-
færð alls staðar“.
Baldvin hreppstjóri Jóhannesson í
Stakkahlíð í Loðmundarfirði, segir
um þetta veöur í dagbók sinni: „4.
október. Norðaustan dimmviðri, ofsa
hvassir byljir og snjókoma. Við smöl-
uðum og hýstum. Áttu menn erfitt og
Ætt Óttars —
Framhald af 875. síðu.
gildis einhverja aðra ættfeður sína
sem færri eignuðust afkomendur og
sjaldnar koma fyrir í ættartölum; en
það vilja menn víst síður. Sannleikur-
inn mun líka sá, að ættfræðíngar og
ættadýrkendur hafa laungum haft í
heiðri vissa leggi kynstofnsins en
leitazt við að gleyma öðrum, sem ef
til vill voru fullt eins kynsælir; af
hverju skyldi það stafa? . . . Sú var
tíðin að Brokeyjar- og Hrappseyjar-
kyn sleppti gjarnan úr ættartölu sinni
fyrri konu Þorsteins fálkafángara á
Vörðufelli; — sonur þeirra var nefni-
lega hinn alkunni Galdra-Loftur, sem
um sína daga var kunnur að ýmsum
smábrellur, er ekki samrýmdust æru-
hugmyndum þeirrar tíðar. En nú er
litli Loftur orðinn mikil persóna,
frægur á sviði og gjarnan nefndur
um leið og Fást; i augum þeirra, sem
þykjast af frægum forfeðrum, mun
það versti skaði að hann jók ekki
kyn sitt.......
(Heimildir: íslenzk fornrit: Flateyjar-
bók, íslendíngasögur, Eddur; Knut
Liestöl: Uppruni Íslendíngasagna;
skýríngar Magnúsar Finnbogasonar
við Snorra-Eddu; Páll E. Ólason:
Menn og menntir IV.; Sveinn Páls-
son: Ævisaga Bjarna Pálssonar;
Blanda VII.; Huld II.; o. fl.).
Leiðréttirag
í frásögn Gunnar Þórðarsonar í
Grænumýrartungu, Vetrartíð á vor-
dögum, sem birtist í 35. tbl. Sunnu-
dagsblaðs, hefur fallið niður nafn eins
þátttakandans í ferðinni, en sá var
Einar Elíesesson frá Óspaksstaðaseli.
Þá hefur hestafjöldinn, sem farið var
með yfir, rýrnað nokkuð í blaðinu frá
því, sem vera átti. Þeir voru yfir
fimmtíu að tölu.
stríðsamt eins og vant er í fyrstu
veðrum.
5. s. m. Sama veður um morguninn,-
kominn fjarska mikill snjór. Sumt
af fé Þorsteins fennt í hlaðinu.
6. s. m. Sama illviðrið. blautara
en undanfarið . . Blöskrar öllum
þessi ótið og illviðri . .
8 okt. — Bjartviðrisglóra og dálít-
ið frost“.
Þann 5. okt., annan byldaginn, seg-
ir Baldvin, að fé Þorsteins hafi —
sumt — verio fennt í hlaðinu". —
Ástæðan til þess er sú, að Þorsteinn
Jónsson, kaupmaður á Borgarfirði,
kom til Stakkahlíðar kvöldið fyrir
bylint, b. e. 3. okt., með sláturfé á
leið 11 Seyðisfjarðar. sem auðvitað
dagaðl uppi i Stakkahlíð meðan á
bylnum stóð og ekki var hægt að
kóma því til Seyðlsfjarðar. — Fé
Þorsteins var réttað í bæjarhlaðinu
■meðan það var í Stakkahlíð.
Heyrt hef ég, að nokkrar kindur
á Innsveit Loðmundarfjarðar hafi
hrakið í ár og læki í þessu veðri.
17. okt. — Blindhríð og dimmviðri,
setti niður mikinn snjó.
18. okt. — Dimmur í lofti, og kyrr-
viðri.
22. okt. — Var milt og gott veður.
Pöntunarféð rekið um borð í „Col-
ino“, sem kom hingað 20. okt.
23. okt. — Gebk í dimmviðrisbyl
með morgninum og snjóburður mik-
ill.
24. okt. — Líkt veður, en nokkru
bjartara. Lögðu fjölmargir á fjall, en
urðu að snúa aftur fyrir ófærð.
25. okt. — Hriðaxveður og snjó-
drífa. Lagði „Colino“ af stað heðan
með 7128 sauð; alls. Þar af átti Sig.
Jóhansen 500.
26. Heiðskirt og bezta veður. Var
slátrað Pöntunarfélagsfénu. sem ekki
komst í „Colino", alls um 85 fjár.
30. okt. — Bjartviðri og allmikið
frost.
31. okt. — Sama veður f. m., en
gekk í þíðu í kvöldið.
R/ETT VEÐ HALIDÚR —
ÚR DíYGBOK LÁRUSAR TÓM-
ASSONAR, KENNARA Á
SEYÐTSFIRÐI 1896.
3. okt. — Gekk um nóttina í norð-
anveður með allmikilli snjókomu og
frosti.
4. okt. — Norðaustan stórviðri og
blindhríð allan daginn. Rak „Electra”
á land — Leiruna. —
5. okt. — Austan stórviðri, bleytu-
hríð og mikil sjávarólga.
6. okt. — Nrkkru lygnara en dimm
viðri og hleytuhríð.
7. okt. Dimmviðri og bleytuhríð.
8. okt. — Dimmviðri f. m. birti,
e. m. heíðskírt og frost um kvöldið.
Komu 3 gufuskip: „Opal“. fjárkaupa
skip Slimons, „Marie“ frá Bergen
með tunnur og salt, og „Queen“ frá
Vopnafirði — Slimon Coghill andað-
ist á leiðinni hingað í .,Opal“ 3. okt.
um kvöldið. Var jarðsunginn á sjó-
mannavísu 6. þ. m.
9. — Allgott veður um daginn.
10. Norðaustan bylur og mjög kalt.
Náði „Marie" skipi Jóhansens „El-
ectra“ aftur út af leirunni.
11. okt. — Heiðríkt. Sólskin og
bezta veður. Lagði „Opal“ héðan af
stað með 1500 sauði frá Slimon.
14. okt. — Sólskin og sunnan vind
ur f. m. varð alt í einu koldimmur,
gerði steypirigningu, en stytti upp.
16. okt.. — Gekk á dimmviðri og
snjóbleytuhríð
Framhald af 869. sí3u.
féð var í fjörunni, þegar fór að
brima. Bændurnir á Nesi fóru þá
til að reyna að bjarga fénu, en
annar.þeirra drukknaði undir for-
ÍSvaðanum, en hinn komst yfir í
'!ljöruna. En engin tök voru á þvi
að koma fénu á braut og með að-
fallinu flæddi mikinn hluta þess.
En bóndinn, sem komst í fjöruna,
hélt lífi.
Timinn er fljótur að líða við
möppur Halldórs og kaffi Hólm-
fríðar. Og þegar ég held úr garði,
hefur farangurinn aukizt. Ég héf
á brott með mér eina af möppun-
um, og þaðan eru tekin þau frá-
sagnarbrot, sem hér fylgja með
og fjalla um októberbylinn 1896,
það veður, sem kannski er orsök
þess, að safn Halldórs er til.
KB.
Lausn
78. Scrossgátu
n
U
L iL 6 Jl
L L O n
1 N D_ R U Ð n
ilÐÐ
^Lia^aaaa^aaaaa
L|N|C|R|fl|
886
T í M 1 N N - SUNNUDAGSBLAÐ