Tíminn Sunnudagsblað - 27.10.1963, Blaðsíða 17

Tíminn Sunnudagsblað - 27.10.1963, Blaðsíða 17
verða eigi suridurgreind. Við nákvæm- ar frjórannscknir. sem gerðar hafa verið í grennd nokkurra bæja hér sunnanlands. hefur komið í Ijós, að neðan landtvámsins eru frjókorn af komstærð miög sjaldgæf, en fjöldi þeirra eykst skyndilega við landnám- ið. Það virðist einsætt, að fjölgun frjókorna af kornstærð bendi til korn- ræktar. Af þeim tveim frjólínuritum, sem hér birtí.st, má ráða, að korn hafi verið ræktað í Skálholti frá upp- hafi byggðar og fram á 14. eða 15. öld, og að kornræktartilraunir hafi lík- lega verið getðar þar í lok 17. aldar. í næsta oágrenni Borgarmýrar mun korn hins veger ekki hafa verið rækt- að að neinu ráði. Af frjólínuritum frá Bergþórshvoii og Gufunesi virðist mega draga líkar ályktanir og í Skál- holti. Við trjórannsóknir, sem Sig- urður Þórannsson (1944) gerði í sam- bandi við uppgröft eyðibýlanna Skallakots hjá Ásólfsstöðum og Stangar í Þjórsárdal, fannst mikið af kornfrjói í landnámslaginu. Báðir þessir bæir ''cru farnir í eyði í byrj- un 12. aldar. Sigurður telur, að hluti af kornfrjóinu hafi verið af höfrum, sem annars er mjög erfitt að greina frá öðrum friókornum af kornstærð. Um kornyrkju á íslandi að forriu hafa margir ritað svo sem Björn M. Ólsen (1910), Þorvaldur Thoroddsen (1922), Siguiður Þórarinsson (1944) og Steindór Steindórsson (1950). Vitn- i&burð um kornrækt að fornu er að fá úr íslendingasögum, samtímasög- um (Sturlunga. Biskupasögur), ann- álum, fornbréfum, kirkjumáldögum, örnefnum O'g með fornleifa- og frjó- rannsóknum, svo sem þegar er getið. íslendingasögui og örnefni munu vera sízt þessara heimilda. Af þess- um heimildum má ráða, að kornrækt hafi verið stunduð lítið eitt norðan lands og austan. en verið algeng um sunnanve-t landið á fyrstu öldum ís- landsbyggðar Mjög hefur verið far- ið að draga úr kornyrkju, er kom fram á 14. öld enda segir Arngrímur ábóti í Guðmundar sögu, ritaðri um miðja 14 öid: „Korn vex í fáum stöðum sunnanlands og eigi nema bygg“. Kornrækt virðist hafa haldizt lengst við sui.nanverðan Faxaflóa eða fram á 16. öld Er þó ber þess að geta, að hvergi muru viðskipti við útlönd hafa verig jafngreið og þar, svo að vel getur verið, að landsetar hafi goldið SkálhoUsstað, Viðeyjarklaustri eð'a fógetum a Bessastöðum með inn- fluttu korni Við fornle.'fagröft hafa kornleifar fundizt á tveiro stöðum sunnanlands. að Bergþórshvoli og Gröf í Öræfum. Kornleifarnar frá Bergþórshvoli fund- ust í brunarústum og eru frá fyrri hluta 11. alda: Kornleifamar að Gröf fundust i sotnhúsi og eru frá 1362, en sá bær fór í eyði í Öræfajökuls- gosinu það ár. Rannsóknir, sem Sturla Friðriksson (1959, 1960) hefur gert á kornleifunum frá þessum stöðum, benda eindregið tU komræktar þar. Var hér um 4 hliðá bygg (Hordeum vulgare; að ræða Af þessu má ráða, að bygg nafr verið ræktað á 11. öld -á Bergþörshvoli og fram á síðari hluta 14 aldai í Litlahéraði. Um orsakir að hnignun og enda- lokum kornyrkju hér á landi hefur margt vevið r:tað og margar getgátur komið fram. Helztu getgáturnar eru þessar: Hallæri, t. d. svartidauði; óár- an, svo að úvsæði skorti; breyttir þjóðfélagshættir, þ. e. skipting jarða og þar af leiðandi vinnuaflsskortur; hrakandi verkmennt; breyttir verzl- unarhættir og síðast en ekki sízt versnandi ioí'tslag. Af þessum get- gátum virðast versnandi loftslag og breyttir verzlunarhættir vera líkleg- astar orsakir Lítið' er vitað um loftslagsbreyting ar á fyrstu öldum íslandsbyggðar og fram til siðaskipta. Hafís mun hafa lagzt að landinu nokkrum sirinum en þó ekki að ráði fyrr en á 16. öld og síð an margoft næstu aldir. Jöklar munu þegar á niðö:óum hafa verið teknir að ganga fram, þótt lítið sé vitað um breytingar þeirra fyrr en undir lok 17. aldar, er bæina Breiðá og Fjall tók af vegns lramrásar Breiðamerk- ursjökuls. Frvógreiningin veitir enga vitneskju um loftlagsbreytingar á sögulegum tíma vegna áhrifa manns- ins á gróðu/farið En þó má ætla, að skógurinn hafi í fyrstu veitt korn- yrkjunni skjól fyrir vindi, en vart mun hitastig hafa breytzt að nokkru ráði, þótt skógurinn hyrfi Breyttir verzlunarhættir gætu vel hafa orð'ið afdrifaríkir fyrir kornvrkj- una. Almennt mun talið. að kornyrkj- unni hafi hnignað mest á 14 e^a 15. öld, en • þyrjun 14. aldar tók að flytjast héðan skreið í miklum mæli og hingað út ódýrt korn. Vel má vera, að íslendmguro hafi þótt hagkvæm- ara að' skipta á fiski fyrir korn en basla vig stopula kornyrkju Kornræktartilráunir hafa gengið vel hérlendis síðustu áratugina. enda ólíkar aðstæður nú hvað tækni og áburð snerti" en fyrr á tímum. Lofts- lag hefur einnip breytzt mjög til hins betra, þa𠣓111 af er þessari öld. Auk korn og líklega grasræktar hafa íslendingar að fornu reynt að' rækta ýmsar aðrar nytjajurtir. Frjókorr: af malurt (Artemisia) hafa fundizt við nákvæmar frjórann- sóknir á 4 stöðum, í Gufunesi. Borg- armýri, Skálholti og á Bergþórshvoli, en auk þess fsnnst eitt frjókorn af þessari jurt í landnámslaginu við Skallakot (Sigurður Þórarinsson 1944). Alls eru fundin á annan tug malurtarfrjóa við frjórannsóknir hér á landi. Malurt telst til körfublóma og vex ekki lengur hér, en telja má víst, að hún hafi verið ræktuð hér á landi um margra alda skeið, í Skál- holti fannst síðasta malurtarfrjóið milli öskulaganna frá Heklu 1693 og Kötlu 1721. Jarðvegssnið. Við hamarshausinn I botni gryfjunnar, eru menjar Kötlugoss fyrir 5000 árum, en við neðri hælinn Heklugoss fyrir 2800 árum. Við efri hælinn er landnámslagið, og sjást glögg umskipti, er uppblásturinn hefst nokkru síðar. — Dökka lagið við skófluhaldið stafar frá Heklugosi í lok 14. — /'l!->r Ijós- myndirnar eru teknar af Þorielfi Ein arssyni. fÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ 905

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.