Tíminn Sunnudagsblað - 27.10.1963, Síða 18

Tíminn Sunnudagsblað - 27.10.1963, Síða 18
íslenzk birkifrjó — stærð frjókornsins er 1/40 úr millimetra. Sveinn Fálsson seglr í Anniverearia 1797 (Fe/ðabók. bls. 715, Rvk. 1945), eftir að nann hefur lýst fundanstað tveggja sjaldgæfra plantna, naður- tungu og vatr.snafla, við heita upp- sprettu hjá Biúará, suðvestur af Skál- holti: „En nokkuð lengra frá ánni, á hól. sem baíiast Bolahaus, fann ég heiian topp af Artemisia vulgaris rmalurtl. Var hún ebki enn blómg- uð (19. ágúst), en samt allhávaxin. Geri ég ráð fyrir, að þarna hafi fyrr- um verið' hús ef til vill einsetumanns- kofi í kaiþólskum sið, og hafi jurt þessi, sem ekki hefur áður fundizt hér á landi, verið gróðursett þar til skrauts eð3 sáð til hennar með fræi. Vera má og. að hún hafi ient þarna íyrir einbera tilviljun, enda héldu forfeður vorir hana til margra hluta nytsamlega, ineira að segja til galdra." Jurt þessi mnn einnig hafa verið í grasasafni Bjarna Pálssonar, að því er sænski grusafræðingurinn Soland- er getur í óprer.taðri plöntuskrá í British Museum, en hann ferðaðist hér um m°ð Uno von Troil 1772. f riti Jóns iærða Guðmundssonar. Um nokkrar grasanáttúrur, sem skrifað er um 1S40 er þess getið, að Absint- :um, malurt, sé góð gegn svefnleysi, bólgnum eistum, evrnaverk, maga- kveisu svo og gegn flugum og flóm (tilvitnamr eftir Sigurði Þórarinssyni 1948). Ekki er unnt að greina malurtar- fr.ió til '.eguntia en hafi Artemisia absinthium. þ e. hin eiginlega mai- urt, verið rmktuð hér á landi, má ætla. að hún hafi verið notuð til lækn- inga og þó einkum við ölgerð. Sé um Artemisia vulgaris að ræða eins og Sveinn Palsson telur, má ætla, að hún hafi gegnt líku hlutverki og fyrst nefnda tegundin En að auki mun hin sterka angan af blómum malurtarinn- ar (A vulgaris) hafa komið að gagni í baráttunni við mölinn (mal = möl- ur), enda mun mölurinn hafa verið ásækinn i falnað fyrr á tímum ekki síður en nú Malurtartonnurinn. sem Sveinn Páisso?' fann 1797. var ekki í blóma 19 ágúst os má því ætla, að malurtin hafi þurft hlý sumur til blómgunar Má vera, að það sé ein- mitt skýring'n á því hversu malurtar- frjó finnast slopult Á tveim stöðum hafa fundizt frjó- korn af mjaðulyngi eða porsi (Myriea Gale), sem er lágvaxinn runni. skyld- ur birki. Miaðarlyng vex í mýrum í Noregi allt norðu'- til Troms, err vex ekki hér á landi. Mjaðarlyngsfrjó fann Sigttrður Þórarinsson (1944) við frjórannsóknb við Skallakot. Við fyrstu athugun mína á Borgarmvrar- sniðinu (Þ. E 1961) rakst ég á fáein frjókorn ?f mjað'arlyngi í landnáms- laginu Likleg' er, að mjaðarlyng eða uors hafi verið ræktað hér, en kven- rekiar þess voru notaðir við ölbrugg- un (porsöf) í stað humals. Þess var áðui getið, að frjókomum körfublóma fjölgi mjög við landnám- ið. Frjókorna af túnfíflum og undan- fíflum gætir lítið fyrr en eftir land- nám. Þá skvtur og annarri ger$ körfublómafrjóa upp með landnám- inu. Þau má helzt heimfæra til vall- humals og baldursbrár. Vallhumall mun fyrrum hafa verið ræktaður og notaður við ölgerð í stað humals, og vel gat vallhumallinn slæðzt hingað með mönnum. Vallhumall er nú al- gengur við bæi og víða í ræktuðu landi og gerir mun minni kröfur til jarðvegs en baldursbrá. Ö1 mun hafa verið aðaldrykkur til hátíðabrigða fyrr á öldum, enda öl- drykkju víða getið. Til ölgerðar mun ýmist hafa verið notaS íslenzkt eða innflutt bygg, en í stað humais mun malurt, mjaðarlyng eða jafnvel vall- humall hafa komið, enda voru þessar jurtir ræktaðar hérlendis eins og að framan greinir. Um aðrar nytjaplöntur og ræktun þeirra hér er fátt vitað. Rétt undir öskudreifingunni frá Heklugosinu 1104 fannst í Skálholti eitt linfrjó. Lín framleiðir allra jurta minnst frjóduft, svo ag þaS telst til einskærr- ar tilviljunar, ef línfrjó finnst. Lín- frjó finnast helzt í tjörnum og keldum þar sem lín hefur veriS látiS feyjast. Það má því telja meS nokkurri vissu, að lín (Linum usitatissimum) eða hör hafi verið ræktað í Skálholti á síðari hluta 11. aldar. Nokkur ör- nefni benda til Línræktar, svo sem Línekrudalur hjá Sólheimum í Mýr- dal og Línakrar hjá Bergþórshvoli, en þar eru mikil garðbrot. Við frjó- rannsóknir á Línökrum að Bergþórs- hvoli fannst að vísu ekkert línfrjó, en gífurlegt magn af arfafrjóum, enda var erfitt að uppræta illgresi á lín- ökrum vegna viðkvæmni línsins. Lín- rækt hefur vafalítið verið stunduð víðar á landinu á þessum tíma. Li.i var notað í nærklæði, kirkjubúnað svo og veiðarfæri að fornu Við landnámið hafa borizt hingað út nokkrar jurtategundir af ýmsum ættum, sem fylgja manninum, hvar sem hann nemur eða brýtur land. Jurtir þessar nefnast einu nafni ill- gresi eða arfi. Öllu illgresi er það sam- eiginlegt, að það krefst góðs jarðvegs og mikillar birtu. Margar þessara jurta eru að uppruna steppu- eða strandplöntur, sem fylgt hafa mann- inum um þúsundir ára land úr landi. Sumt af þvi illgresi, sem tekur að gæta með landnáminu, er íslenzkt að uppruna, svo sem katlartungan, sem vaxið hefur við sjó fyrir land- nám, en þá fært sig um set og tekið sér bólfestu kríngum bæi svo og í valllendi og á melabörðum. Sama máli virðist gegna um jurtir af hélu- njólaætt. Við landnámið tekur einnig fyrst að ráði að gæta frjókorna af möðrúætt, líklega einkum af gul- 906 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAO

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.