Tíminn Sunnudagsblað - 27.10.1963, Síða 20

Tíminn Sunnudagsblað - 27.10.1963, Síða 20
stöður frjórannsóknanna til þess, að Skálholt hafi byggzt, áður en byggð áófst í Gufunesi, við Borgatmýri eða i Þjórsárdal, en tímamunur þarf ekki fð vera mikill. Landnámið í Skálholti er elzta iandnám, sem enn hefur Eundizt við frjórannsóknir, en þær eru ekki nógu ýtarlegar til að draga af þeim endanlegar ályktanir um af- stöðu öskulagsins til landnámsins eða til að tímasetja upphaf bygg'ðar í Skálholti. Nafnið „Skálaholt" gæti bent til þess, að þegar Teitur reisir bæ þar, hafi verið skáli fyrir og ræktun, en Teitur hafi keypt eða stökkt burtu fyrri ábúendum. Teitur byggir varla fyrr í Skálholti en eftir 920, en ösku- fallið G er líklega fallið fyrr á land- námsöld. Þá gæti verið, að frásagnir hinna yngri sagna væru að einhverju leyti sannar, að Teitur byggi í Skál- holti, en hafi síðar búið í Höfða og Gizur tekið þar við búi eftir hann, áður en hann næði aftur undir sig Skálholti! Eign gat skipzt við erfðir. Skal þetta ekki rætt nánar, enda ekki komin öll kurl til grafar. ísleifur Gizurarson tók biskups- vígslu í Brimum, og sat að stóli í Skálholti 1056—80. Skálholt var síðan í rúmar 7 aldir mannflestur staður á íslandi. ísleifnr hafði stundað nám í Herfurðu í Vestfalen og hefur þá auk bóklegra fræða kynnzt ræktun ýmissa nytjajurta og ef til vill reynt ræktun þeirra í Skálholti. Áðan var getið um línfrjó, sem fannst rétt undir öskudreifinni frá Heklugosinu 1104. Vel má ætla, að ísleifur biskup eða sonur hans Gizur (f. 1042, bisk- up 1082—1118), er naut menntunar í Saxlandi, hafi stundað línyrkju í Skálholti. í þeirra tíð hafa og vaxið þar garðabrúða og malurt. Kornyrkja virðist hafa verið stunduð í Skálholti frá því skömmu eftir að byggð hefst þar, en varð mest á áratugunum eftir 1104, á efri dögum Gizurar biskups eða í tíð næstu biskupa. Þegar frá á 14. eða 15. öld kemur, leggst kornyrkja af í Skálholti, en búskaparhættir virðast að öðru leyti óbreyttir. Þeir breytast ekki fyrr en á síðari hluta 17. aldar. Skömmu fyrir Heklugosið 1693 fjölgar grasfrjói skyndilega í Skál- holti, og frjókorna af kornstærð fer að gæta að nýju. Er líklegt, að hér gæti áhrifa Gísla Magaússonar, Vísa- Gisla. Hann er fæddur að Munka- þverá 1621. 1652 fer hann til Hol- lands og dvelst þar við nám í 4 ár og kynnist garðyrkju. Þegar heim kemur, hefur hann garðyrkjutilraun- ir, fyrst að Munkaþverá og síðar að Hlíðarenda, en þar bjó hann 1653— 1687, unz hann fluttist að Skálholti til dóttur sinnar Guðríðar, konu Þórð- ar Þorlákssonar biskups (1674—1697), og var þar til dauðadags 1696. Garð- yrkjutilraunir Gísla á Hliðarenda eru víðfrægar. Um 1670 mun hann m. a. hafa raiktað þarbygg, hör (lín),hamp og kúmen. Kúmen vex nú víða vel um Suðurland, en það mun vera kom- ið úr jurtagarði Vísa-Gísla. Björn, son sinn, sem þá var í Kaupmanna- höfn, biður Gísli þetta sama ár að senda sér fræ af furu, greni, eik, beyki, hör og hampi svo og „pottetes þær engelsku” (kartöflur) eða þeirra fræ. Ekki mun Gísli hafa fengið kart- öflur, enda ræktun þeirra ekki hafin í Danmörku um það leyti. Þetta var nær 90 árum áður en Björn í Sauð lauksdal tók upp kartöflurækt. Þegar Vísi-Gísli kom í Skálholt, mun hann þegar hafa tekið til við garðrækt og látið gera jurtagarð þar. í Ferðabók Eggerts og Bjarna (Rvk. 1943, II, 247) er þess getið, að kál hafi verið ræktað í Skálholti í a.m.k. 70 ár (ritað 1756), þ.e. frá dögum Gísla, og líklega hefur hann ræktað þar fleiri nytjajurtir. Því má ætla, að hin mikla aukning grasfrjós svo og tilkoma kornfrjós bendi til áhrifa eða framkvæmda Gísla og að hann hafi staðið fyrir túnræktun þar á staðnum. Þessarar túnræktar gætir alla 18. öldina í Skálholti. Þegar fram á 19. öld kemur, smáminnkar rækt- aða landið, en illgresi færist í vöxt. Gísli Magnússon var brautryðjandi á sviði jarðræktar. Ræktunartilraunir færðust mjög í vöxt eftir hans daga hér á landi og hefur verið haldið á- fram síðan. Þegar frjórannsóknir voru gerðar í Borgarmýri, var mér ókunnugt, að þar í nándinni hefði staðið bær, en frjólínuritin sýndu, að svo hlyti að hafa verið. Þar komu í ljós ýmis frjó- korn ræktaðra jurta, en næstu byggð- ir bæir eru allfjarri; að sunnan Ár- bær og Ártún, en að norðan Grafar- holt og Keldur. í Jarðabók Árna Magnússonar og Páls Vídalíns (Kbh. 1923—24, III, 296) segir svo, þegar lokið er lýsingu Grafarkots í Mosfellssveit, er síðar var lagt undir Gröf, núverandi Graf- arholt: „Oddageirsnes, forn eyðijörð og hefur í auðn verið fram yfir allra þeirra manna minni, sem nú eru l'ífi. Dýrleikann veit og enginn mað- ur. Eigandinn er kóngl. Majestat. Landsskuld engin og hefur aldrei verið í manna minni, en grasnautn til beitar og slægna brúka nú bæði Grafar ábúendur og Árbæjar; meina imenn ómögulegt aftur að byggja fyrir því, að tún öll, sem að fornu verið hafa, eru uppblásin og komin í mosa, en engi mjög lítið og land- þröng mikil.“ Engar aðrar heimildir eru til um eyðibýli þetta, svo að mér sé kunnugt. Líklega hefur bærinn staðið upp i holtinu vestan Borgarmýrar, þar eru nú leifar gamalla fjárborga. Sam- kvæmt frjórannsóknunum, hefur Oddageii'Shes byggzt á 10. öld. Fyrstu ábúendur virðast hafa verið búhöld- ar góðir, og auk túnræktar hafa þeir ræktað malurt og mjaðarlyng. Eins og víðar hefur illgresi innreið sína með byggðinni. Kornyrkja hefur ekki verið stunduð að neinu ráði í Odda- geirsnesi. í þétthýlinu á Innnesjum hefur snemma farið að gæta uppblásturs. Fyrir lok 15. aldar er Oddageirsnes farið í eyði. Eftir 1500 dregur mjög úr uppblæstri í nágrenni Borgarmýr- ar, eins og lesa má af niðurstöðum móglæðingarinnar, enda flest holt í nándinni þá örfoka. Upphlásturinn hefur skilið eftir nakta jökulurð, þar sem tún og hagi voru áður. Harð- gerðar og 'nægjusamar grastegundir, svo og brjóstagras og kattartunga, hafa síðar tekið sér bólfestu á ör- foka landinu. í dag er stórgrýtta holt- ið að gróa upp að nýju, þar sem áður stóð bærinn að Oddageirsnesi. Um búskaparhætti í Oddageirsnesi eru sem sagt engar heimildir til nema þær, sem jurtirnar sjálfar skráðu með frjókornum í mýrina við túnfótínn. Eitthvað svipuð þessu mun saga hundraða annarra eyðibýla hér á landi vera. Um ábúendur vitum við ekkert, en all’ir hafa þeir orðið að hætta búskapnum, þegar vindur- inn tók að sverfa að túnunum og feykja burt jarðveginum. Hér hafa verið gerð skil nokkrum þáttum þeirrar sögu, sem frjóregnið hefur skráð í íslenzkar mómýrar á liðnum árþúsundum. Frjórannsólcn- irnar sýna, að skipta má þessari sögu í fjögur skeið. Á fyrsta skeiðinu vant- ar hirki um suðurhluta landsins, en það hefur líklega vaxið norðan lands á þessu skeiði. Fyrir um 9000 árum breiðist birki ört út og meginhluti alls láglendis klæðist skógi (birki- skeiðið fyrra). Á milli birkiskeiðsins fyrra og þess síðara, sem hefst fyrir 5000 árum og lýkur með landnámi, var úrkomusamt tímabil, mýra- eða svarðmosaskeiðið. Loftslag á birki- skeiðunum var hlýtt og þurrt. Sumur hafa verið lengri og meðalhiti ársins líklega 2—3° C hærri en síðustu ára- tugina. Fyrir 2500 árum tók loftslag að versna og varð verst á 19. öld. Síðan á landnámsöld hafa orðið miklar breytingar á gróðurfari hér á iandi fyrir áhrif mannsins og líklega einnig af völdum loftslags. Birkiskóg- inum var eytt að mestu á fáum öld- um. Þegar skógurinn eyddist, hefur graslendi orðið ríkjandi, en það blás- ið upp að miklu leyti. Með landnáms- mönnum og síðar hefur borizt hingag fjöldi jurta, ýmist nytjajurtir svo sem túngrös, bygg, lín, malurt, mjað- arlyng eða illgresi, sem setja mörk 908 T f M I N N - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.