Tíminn Sunnudagsblað - 08.12.1963, Blaðsíða 24

Tíminn Sunnudagsblað - 08.12.1963, Blaðsíða 24
TYRKJARÁNIÐ er einn eftirminnilcgasti atburður ís- landssögunnar. Sjórœningjar fri Ncrður-Afríku taka land, ræna byggðirnar — Grindavík. Vestmannaeyjar, Berufjörð, Hálsþinghá, Breiðdal — drepa fólk og hafa á brott með sér á fjórða hundrað manns, sem þeir hneppa í þrældóm í heimalandl sínu. Fanganna bíða margvísleg örlög. Margir deyja fljótlega, nokkrir öðlast frelsi innan skamms, fáeinir hefjast til metorða og Ioks er dáíítill hópur keyptur úr ánauð að tíu árum liðnum. Þessi saga öll er rakin í þessari bók, og jafn- framt er lögð alúð við að gera í stuttu máli grein fyrir aldarfari og hugsunarhætti fólks á þessum tímum. Hér er brugðið upp mörgum eftirminnilegum myndum. — Höfundur þessarar bókar, Jón Helgason ritstjóri, er þegar landskunnur fyrir bækur sinar svo sem „Öidina átjándu" og „íslenzkt mannlíf“. Ilalldór Pétursson hef- „r „Tyrkjaránið". SETBERG Tvær merkar bækur DE GAULL Saga DE GAULLES er saga Frakklands á þessari öld, þegar örlagaríkustu atburðir nennar hafa gerzt. Við fylgjumst með de Gaulle i sífeúdri baráttu hans fyrir verndun franskra réttinda, og við fylgjumst með honum á mestu gleðistund lífs hans, signrhátiðinni eftir frelsun Parísar. Síðan hverfur hann í tólf ár til heimilis síns í þorpinu Colomey, utangarðs í frönskum stjórnniálum. En Frakkland þarfnaðist hans a'lur, þegar neyðin var stærst, — og síðan stendur hann sem stórmenni og for- ustumaður hinnar nýju Evrópu. — Ævisaga de Gaulles segir frá miklu hruni, ráðleysi, örvæntingu og glæsileg- um sigri, viðreisn til valds og virðingar. Hún segir líka frá sál og tilfinningum hins undariega manns, sem stundum hefur verið kallaður ráðgátan de Gaulle. Og hér koma við sögu heimskunnir menn. Stalin, Churehill, Roosevelt, Krústjoff, Eisenhower, Petain, Laval, Aden- auer og fjölmargir aðrir. — Hötundur þessarar bókar, Þorsteinn Thorarensen fréttastjéri, er þekktur fyrir hinar fjölmörgu greinar sínar af erlendum vettvangi. — Bókina prýða um 50 Ijósmyndir. Ævisaga de GauIIe er stórbrotin saga mikilmennis TYRKJARÁNID SETBERfí

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.