Tíminn Sunnudagsblað - 26.01.1964, Blaðsíða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 26.01.1964, Blaðsíða 2
GUÐJÓN JÓNSSOH i ÁS1: Ekki uppi dagamir Hjá foreldrum mínum, Jóni Eii- rikssyni og Guðrúnu Filippusdótt- ur í Bjóluhjáleigu, voru tvær syst ur lengi vinnukonur, Málfríður Ólafsdóttir, móð'ir Friðriks Frið- rikssonar, kaupmanns í Miðkoti í Þykkvabæ, og Sesselja Ólafs- dóttir, kona Sigurðar Ólafssonar í Hábæ í Þykkvabæ. Á veturna voru þær sína vik- una hvor í fjósinu, en hina vikuna tóku þær til í bænurn, sópuðu, þvoðu gól'f og allan þvott. Að sjálf- sögðu unnu þær líka ag allri tó- vinnu, eftir því sem tfcni var til, því að mikið kapp var lagt á að nota tímann vel og afkasta sem mestu, jafnt vetur sem sumar. Það kostaði mikla ástundun og vand- virkni a^ vinna vel og koma í flík öllum fatnaði á fjölmennum heim- ilum. Snemma í apríl 1884, á sólbjört- um degi, var Málfríður að þvo þvott. Þá voru ekki rafmagns- þvottavél'arnar til þæginda og vinnuléttis á heimilunum. Allur ullarþvottur var þveginn úr þvæli, keytu, en léreftsþvottur úr sápu og sódavatni. Allur þvottur var skolaður, þegar það var hnnt, í Ytri-Rangá, sem er tær bergvatnsá og rennur skammt sunnan við bæ- inn. Málfríður var búin að láta þvott- inn í stóran bala, sem Hannes bróðir minn; hann var tveimur árum eldri en ég, átti að draga á smásleða, er við krakkarnir átt- um, fram að ánni. Hann átti og að klappa þvottinn hjá Málfríði, svo að hún yrði fljótari að skola hann. Að klappa þvott er að hverfa eða horfið úr notkun og af at- hafnasviði nútímans. Klapp var eitt af sjálfsögðum heimilisáhöld- um á hverju heimili. Þau voru, eins og allt annað, nokkuð mis- munandi að gerð og lögun, þótt þau gegndu alls staðár sama hlut- verki. Sumar konur sættu sig við spýtu, sívala í annan enda en breiðari í hinn. Aðrar, og þær voru miklu fleiri, áttu snotur og vel smíðuð klöpp. Þau voru nálægt 20—22 þumlungar að lengd, með sívölu handfangi, 5—6 þumlunga löngu, og hnúð á endanum — klappið sjálft, 12—14 þumlunga langt, 4 þumlunga breitt og 3 þumlunga þykkt, ofurlítið kúpt að neðan. Ajy ofan var oft skorið fangamark eiganda, ártal og ann- að útflúr. Með klappinu var þvott- urinn barinn, þegar verið var að skola hann. Þajf gerðu unglingar — það flýtti fyrir. Ég var að spígspora hjá Mál- fríði og Hannesi, þegar þau ætl- uðu af stað með sleðann, og vildi fara með þeim. Málfríður spyr mig, hvort hún móðir mín hafi leyft mér a^ fara með þeim. Ég fái ekki að fara, nema hún leyfi mér það. Ég hleyp inn, rek kollinn inn fyrir baðstofuhurðina og bið um leyfið. Ég fæ það, og ætla að þjóta út. Þá kallar móðir mín: „Ætlarðu ekki að kyssa mig, áður en þú ferð?“ Það stóð ekki á því, en kossinn var í stytzta lagi, því ég var hrædd ur um, að ég missti af samfylgd- inni. Svo er haldið af stað. Með okk- ur var Filippus Ámundason frá Bjólu. Hann var tveimur árum eldri en ég. Rangá hafði verið á þykkum ísi og var nýbúin að ryðja sig. Víða voru skarir við ána. Á móts við Bjólubæ var breið skör og djúpt við hana. Þar fór Málfríður að skola þvottinn og Hannes að klappa hjá henni, en við FUippus lékum okkur á íshellunni. Hér verð ég að skjóta inn í dá- lítilli skýringu. í Heklugosinu 1846 hálffylltist Ytri-Rangá af brunnum vikri og hitnaði svo, að allur silungur drapst í henni. Faðir minn var þá sextán ára hjá foreldrum sínum á Helluvaði. Unglingarnir þar tíndu hálfsoðna silungana úr vik- urhrönninni, sem barst upp á ár- bakkana. Lengi eftir þetta flaut vikur í ánni. Sum vikurkolin voru eins og stærsti mannshnefi að stærð, og þau mátti tálga eins og krökkunum tilvalið smíðaefni í leikföng, menn og dýr, og í smá- báta, stærstu kolin. Þar sem ég var a^ leika mér þarna, sé ég stórt vikurkol fljóta fram með ísskörinni. Ég hlamma mér á hrammana og ætla að grípa það ,en gætti þess ekki, að það var brestur í skörinni, svo ajs hún brotnaði, og steyptist ég þá á höf- uðið ofan í hylinn. Þegar þau hin sjá, hvað skeð hefur, bregður þeim, og Málfríður biður guð að hjálpa sér. Þau horfa þangað, sem ég hvarf sjón- um þeirra. Eftir skamma stund sjá þau þó, að ég hef haft enda- skipti og skaut upp kollinum. Þá leggst Hannes á skararbarminn, Filippus heldur í fæturna á hon- uim og Málfríður í hann. Mér skaut upp í annað sinn, en Hann- es náði ekki i mig, og hvarf ég svo í hylinn. Skömmu síðar skaut mér upp í þriðja sinn. Þá náði Hannes í hárlubbann á mér og svo í axl- irnar og dró mig upp úr. Eitthvað gusaðist upp úr mér, á meðan ég stóð á skörinni, og mesta vat'nið hripaði úr fötum mínum. Svo var ég leiddur heim, háttaður og þurrkaður með snörpu handklæði og látinn í gott sængurrúm. Égg sofnaði vært eftir baðið og vaknaði hress og endurnærður eftir alllangan dúr. Ég hef oft minnzt þess með sjál'fum mér, hvað mér leijy vel i vatninu. Ég fann ekki til ótta eða hræðslu. Það var einhver höfga- ró og vellíðan yfir mér. Einu sinni fálmaði ég upp yfir mig og fann þá, afí ég snerti eitthvað kalt, sem hreyfðist og sleppti því þá aftur. Ég hafði fálmað í ísjaka, sem flaut með skörinni, sögðu þau, sem á horfðu. Aldrei hafði ég fálmað í föstu skörina. Líka hef ég hugsað um það, hvernig á því stóð, að mér skaul alltaf upp ú sama stað, þar sem ég féll í ána, er varð til þess, að mér var bjargað frá drukknun. Mig undrar, að ég skyldi ekki berast með straumnum eins og dauðu munirnir, vikurkolið og jakinn, er ég greip í, og húfupott- lokið, sem ég hafði á höfðinu, sem flaut niður ána, og hundur, sem með okkur var, elti drjúgan spöl. Ég hef ekki fengig og mun ekki fá skýringu á því, af hverju ég flaut ekki með slraumnum. Var það tilviljun? Voru það for- lög? Svo líða nú árin. Ég stálpast, en stækka heldur seint — er að því fram undir tvítugsaldur. Ég er lát- inn smala, fara sendiferðir og snúast fyrir fullorðna fólkið. í febrúar, veturinn 1893, var það dag einn, að úti var norðan frost- bylur engin stórhríð. Ég fór ekki út til gegninga, sem ég gerði þó, Framhald á 94. síSu. * T í M I N N — SUNNUDAGSBLAfl 74

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.