Tíminn Sunnudagsblað - 26.01.1964, Blaðsíða 4
i Svíþjóð. Um það vitnar líka hinn
kunni byggðarsöngur Vermlands,
sem nýtur sömu vinsælda í sveit-
um Svíaríkis og byggðarsöngur Sig-
urðar á Arnarvatni: „Blessuð sértu
sveitin mín“, hér heima á Fróni:
„Ack, Vármeland, du sköna, ,
du hárliga land,
du krona bland Svea rikes !
lánder.“ -
Hinn mikli og sívaxandi ferða-
mannastraumur ber einnig vitni um
fegurð og frægð héraðsins. En þar
koma líka einnig til greina ýmsir
sögufrægir staðir, sem marga fýsir
að sjá og kynnast, og siðar verðu^
getið hér að nokkru.
Kunnur Vermlendingur sagði við
mig eitthvað á þessa leið: „Verm-
land er eins og smækkuð mynd af
Svíþjcð. Ekkert af héruðum lands-
ins sameinar svo mörg einkenni í
sænslcri náttúru og þjóðlífi. Nú-
tíma tækni og atvinnulíf Svía yfir-
leitt á Vermlandi mikið að þakka,
og fá héruð sameina betur og geta
glöggar sýnt gróna bændamenningu
og sænska, nútíma stóriðju. —
Sænsk tónlist og skáidskapur eiga
líka, — ekki sízt — ýmsar dýpstu
rætur sinar i Vermlandi. Þess vegna
getum við, Vermlendingar, sagt
með góðri samvizku við ykkur út-
lendingana, sem langar til að kynn-
ast landi okkar: Komið hingað og
kynnizt Vermlandi, — þ.á þekkið
þið Svíþjóð, — fjölbreytilega nátt-
úru hennar, blómstrandi atvinnulíf
og heillandi skáldskap: sagnir, ljóð
og söngva. En svo vill til, að sum
merkustu skáld Svía eru einmitt
fædd í Vermlandi og hafa skráð
mörg verk sín þar.
Sigurður Gunnarsson kennari:
FERDAÞÁTTUR FRÁ VERMLANDI
Ég átti því láni að fagna í
sumar að fá tækifæri til að skjót-
ast til Svíþjóðar, um tíu daga
skeið, og dvelja í einu fégursta
og söguríkasta héraði hennar,
Vermlandi. Þótt ég hefði áður
ferðazt nokkuð um Svíþjóð og
tafið þar um tíma á vissum stöð-
um, hreifst ég á ýmsan hátt
meira af mörgu, sem ég sá þar
og heyrði en annars staðar í því
ágæta landi. Ég fell því fyrir
þeirri freistni að taka mér penna
í hönd og segja með nokkrum
orðum frá ýmsu því, sem fyrir
augu og eyru bar, meðan ég
dvaldi í þessu fagra héraði.
Flatarmál Vermlands er rúmlega
átján þúsund ferkilómetrar og íbú-
ar þess um 330 þúsund. Um það bil
einn þriðji hluti þeirra býr i borg-
um og bæjum. Miðað við ísland er
því mikið þéttbýli í þessu héraði,
enda mun margur fús á að una þar
ævi sinni. Náttúrufegurð héraðsins
er víðfræg, og munu flestir sam-
mála um, að hún sé hvergi meirt
Það hefur verið sagt með sanni
um „hjarta" Vermlands, Fryksdal-
inn, að hann sé eina sænska sveit-
in, sem hægt sé að fara um með
skáldsögu sem ferðahandbók. Frægt
skáldverk hefur hafið nafn þessar-
ar sveitar yfir aðrar sænskar byggð-
ir, og nafn hennar hefur flogið
um víða veröld. Lýsing Selmu Lag-
erlöf á þessum fagra dai er undur-
samlegur óður um náttúrufegurð
Vermlands.
Þótt sumt af því, sem ég hef hér
vitnað til, beri keim af skoðun hins
hreykna héraðsbúa, fullyrði ég, á
jrundvelli töluverðra kynna, að
76
IMINN - SUNNUDAGSBLAO