Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 26.01.1964, Qupperneq 10

Tíminn Sunnudagsblað - 26.01.1964, Qupperneq 10
Þrír stofnendur Iðunnar. Frá vinstri: Rósa Björnsdóttir, Sigríður Friðriksdóttir og Elísabet Björnsdóttir. (Ljósm.: Timinn-GE). Bjarnadóttir á fund með nokkrar vísur tileinkaðar félaginu. Þar í eru þessi erindi: Sendir andans bárublik bjarta geistastafi, þar sem eilíft öldukvik er á tónahafi. Þar er sungið sama mál sem í fyrri daga, enda sitja enn að skál Iðunn, Bragi og Saga. Þessa dagstund á heimili Rósu Björnsdóttur fæ ég margháttaðar upplýsingar um Kvæðamannafélag- ið Iðunni. Hugmyndina að félags- stofnuninni átti Björn Friðriksson, og hann fékk í lið með sér aðra áhugamenn til að hrinda málinu i framkvæmd. 1. september 1929 kom svo nokkur hópur manna saman til að undirbúa félagsstofnun, og hálf- um mánuði síðar eða 15. september, var félagið formlega stofnað. Stofn- endur voru 19 að tölu. Formaður var kjörinn Kjartan Ólafsson, og gegndi hann því starfi til 1956 að fjórum árum undanskildum. Jósef Húnfjörð var formaður í eitt ár og Björn Friðriksson í þrjú, 1943—6. Eftir Kjartan varð svo Sigurður frá Haukagili formaður, og síðan Rík- arður Hjálmarsson eins og áður er sagt. Félagsmenn eru nú 146 að tölu. Meðal stofnenda voru systur Björns Friðrikssonar þrjár og dæt- ur hans tvær. Systur Björns, Ingi- björg, Þuríður og Sigríður, kváðu allar og hið sama gera dætur hans, Rósa og Elísabet. Þær systur Björns dætur, eru meðal þeirra fjögurra, sem hafa verið í félaginu alla tíð. Hin eru Sigríður Friðriksdóttir, sem nú er ein á lífi þeirra systk- ina, og Þórarinn Bjarnason. Fimmti stofnandinn, sem enn er félags- maður, er Ingþór Sigurbjörnsson, en hann hefur ekki verið félagi öll árin. Frá fyrstu tið hefur félagið hald- ið fundi hálfsmánaðarlega. Þessir fundir hafa verið haldnir á ýmsum stöðum, nú síðustu árin á efsta lofti í Edduhúsinu við Lindargötu. Þá hefur félagið að sjálfsögðu lagt sig fram við að sinna þeim verkefn- um, sem nefnd eru í stefnuskrá þess. Félagsmenn koma saman til að æfa kveðskap og margir þeirra hafa haldið upp kennslu í kvæða- lögum og meðferð þeirra. Félagið hafði ekki starfað lengi, þegar þau systkin, Björn, Þuríður og Sigríður fóru að kenna öðrum og einnig kenndu þau Kjartan Ólafsson og Anna Bjarnadóttir, móðir þeirra Hjálmarssona Ríkarðs og Kjartans. Á árunum 1934 og ’35 gekkst félagið fyrir því að meira en 200 stemm- ur voru teknar upp á silfurplötur. Til þeirrar upptöku var mikið vand að og þar kváðu margir beztu kraftar félagsins. Þessi upptaka hefur nú verið tekin upp á segul- band, og ég fékk að heyra ýmsar raddir, sem nú eru þagnaðar, þar á meðal kveðskap þeirra Björns og Þuríðar Friðriksbarna. Þau systkin hafa bæði kveðið listavel. Kópía af öllu því, sem félagið hefur tekið upp, hefur verið send Þjóðminja- safninu og er geymd þar, en félagið fær nokkurn styrk frá hinu opin- FREMST á myndinni tii vinstri er Fiosi Bjarnason, en bak við hann sjást hjón- in Sigriður Kristjánsdóttir og Helgi Helgason. Nanna Bjarnadóttir situr fyr- ir miðju og hægra megin borðsins er Hörður Bjarnason og foreldrar þeirra systkina, María Bjarnadóttir og Bjarni Jónsson. (Ljósm.: Tíminn-GE). 82 T I M I N N — SUNNUÐAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.