Tíminn Sunnudagsblað - 26.01.1964, Blaðsíða 13

Tíminn Sunnudagsblað - 26.01.1964, Blaðsíða 13
Síðasta kirikjan í Görðum, timburkirkja, byggð 1859 og stóð tll 1896. Hún var tuttugu og ein alin á lengd og hálf ellefta 6 breidd, bikuð að utan. — Myndin er af líkani í byggðasafninu. legast fram rétti kirkjunnar tll íhlut- unar uni einkamál manna, einkum þau, er hjúskap og tengdir vörðuðu. í Odda- verja þætti, sem frá þessum atburðum greinir, segir svo: „og er Þorlákur bisk- up var þess víss, fyrirbauð hann þeim Þórði og Snælaugu samvistir. En með því að þau unnust mikið, gáfu þau lítinn gaum, hvað hann sagði. Eftir það forboðaði hann þau og bannsetti þar næst.“ Og enn segir í Oddaverja þætti: „Þetta líkaði þeim Þórði og Högna illa, svo að þeir lögðu fullan fjandskap til biskups móti hans heil- ræðum og umvandan. Drógu þeir menn til með sér að veita honum mótgang." — Þorlákur biskup lét hvergi sinn hlut, og gengu þau Þórður og Snælaug til sætta við hann, tóku „lausnir og skrift- ir“. Skyldi Þórður vera í Görðum, en Snælaug í Bæ. Ekki hlýðnuðust þau þessari gerð biskups þó betur en það, að eftir þetta eignuðust þau þrjá sonu, og var einn þeirra Þorleifur í Görðum, er kemur allmikið við sögu á Sturl- ungaöld, og það á þann veg, að segja má, að örlög íslenzkrar þjóðar á þeim tima speglist í sögu hans. Þórður prestur í Görðum héfur vafa- lítið verið auðugur höfð'ingi, og sést það meðal annars á því, að hann þor- ir að etja kappi við sjálfan Þorlák biskup. í Guðmundar sögu Arasonar segir, að hann „átti þingmenn um Akranes og marga upp um hérað“. Og af sömu sögu má ráða, að hann heíur átt svonefnt I.undarmannagoðorð allt. En sú dýrð stóð ekki lengi. Áður en sonur hans, Þorleifur, er kominn á legg og hefur tekið við mannaforráð- um föður sins, gefur Þórður prestur frænda sínum, Snorra Sturlusyni, hálft Lundarmannagoðorð, af því að hon- um „þótti Þórður Sturluson, systur- sonur sinn, leggja þingmenn sína und- ir sig, þá er honurn voru næstir“, segir í Guðmundar sögu. En það varð Garðamönnum skammgóður vermir, því að Snorri gerðist enn ágengari en Þórður, bróðir hans, hafði verið. En örlög þeirrar helftar Lundar- mannagoðorðs, sem Þórður hélt eftir og kom 1 hlut Þorleifs, urðu öllu sögu- legri. Þorleifur Þórðarson í Görðum kom víða við í deilum og vígaferlum aldar sinnar, enda goðorðsmaður og náfrændi þeirra rnanna, sem öldin hefur dregið nafn af, Sturlunga. Þyngstar urðu þó honum, og raunar íslendingum öllum, afleiðingar Bæjar- bardaga. Sturla Sighvatsson og faðir hans ráða að mestu öllu Norður- og Vesturlandl. Sturla hefur hrakið Snorra, frænda sinn, úr Reykholti og setzt sjálfur á staðinn. Órækju, son Snorra, sem gert hefur honum erfitt fyrir á Vestfjörðum, hefur hann meitt og misþyrmt honum óvægilega. Um páska árið 1237 safna þeir frændur, Snorri og Þorleifur i Görðum, liði á Reykjanesi og í öllum sveitum -milli þess og Borgarfjarðar. Sturla safnar liði gegn þeim í héruðum þeirra feðga. Snorri og Þorleifur halda með lið sitt norður yfir Skarðsheiði, en þar snýr Snorri aftur við annan mann.',Háf§i hann viljað leggja þegar til átí$gu; en Þorleifur talið það tvísýnt veglía liðsmunar. Þorleifur heldur ótrajjður með flokk sinn upp í Borgarf jöi'ð^og hefur að likindum talið, að sættir tsgkj-i ust fyrir milligöngu bróður síns,^Böqy-j ars í Bæ. Svo varð þó ekki, of£ ^8» apríl barðist hann við Sturlu og -flpkja hans í Bæ. Beið hann þar hinn meáta ósigur, féll af liði hans margt ágætfa manna. en margir urðu sárir'. Selðt hann Sturlu síðan sjálfdæmi, en liáhíf I skipaði Þorleifi til Noregs tif~fúnti{jj£^ við konung. — Fór Þorleifur iAan - tog með honum margt . • ma-nna, — meðal annarra; ‘ S5pi*t4*i, Sturluson. — Eftir Bæjafb.'iT^aÁá' fór Sturla Sighvatsson „út til segir 1 íslendingasögu Sturlu sonar. „Nær þrem tigum yxiía; vórttj- þaðan rekin, en hundrað °eldingá''ieií;. hann reka um haustið til Saliðafella.,- Tekin var og úr Görðum skemma ’góð.'j og færð út í Geirshólm." Þáð' hefUff sem sé ekki verið neinn kotabuskapur í Görðum í þann tíð. Meðan þeir ÞorleifUí dveljast í Nor- egi, verða mikil umskipti á íslandi. j Sturla og Sighvatur, faðir hans, íalla 85 T I M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.