Tíminn Sunnudagsblað - 27.08.1967, Qupperneq 12
Jón R. Hjálmarsson
UPPHAF ENSKRAR
Árið 1606 voru stofnuð í Eng-
landi tvó nýlenduhlutafélög í þeim
tilgangi að hefja viðskipti og efna
til byggðar 1 Norður-Ameríku. Var
annað félagið kennt við Lundúnir,
því að flestir stofnendur þess áttu
heima í höfuðborginni, en hitt kall-
aðist Piymouthfélagið, af því að
eigendur þess voru aðallega frá
þeirri borg. Jakob I. konungur var
örlátur mjög við félögin, heimil-
aði þeim starfssvið frá 34. til 45.
breiddarbaugs, og tóku þau þegar
til starfa. Skyldi Plymouthfélagið
f-á athafnasvið í nyrðri hluta land-
námsins. Það gerði þegar árið 1606
út könnunarleiðangur, og árið eft
ir sendi það fyrstu landnemana
vestur, og settust þeir að, þar sem
nú heitir Maine í Bandaríkjunum.
Landnámsmenn þessir héldust
þó aðeins við þarna einn vetur við
'I
þröngan kost og mijtil harðindi.
Sneru þeir heim aftur næsta sum-
ar, er skip kom vestur, og varð
ekki af frekari landnámstilraun-
um Plymouthmanna að sinni.
Lundúnafélaginu vegnaði
nokkru betur. Undir jól 1606 var
fyrsti leiðangur þess ferðbúinn,
og sigldu þá áleiðis vestur þrjú
skip með 120 landnema inn-
anborðs, allt karlmenn. Ferðin
sóttist seint, og urðu leiðangurs-
menn fyrir margs konar töfum.
Var það ekki fyrr en í maí 1967,
að stigið var á land í hinni
nýju álfu. Hin langa og stranga
útivist hafði mjög reynt á þrek
manna og ýmsir kvillar hrjáð þá.
Fimmtán höfðu látizt í hafi, svo
að það voru ekki nema 105, sem
stigu á land. Landnámsmenn
sigldu upp í mynni Jakobsárinn-
AMERlKU
ar í Virginíu og tóku sér ból-
festu á bökkum hennar. Þorpið,
sem þeir hófu að reisa þar, nefndu
þeir Jamestown eða Jakobsborg
til heiðurs konungi sínum.
Um borð í forystuskipinu var
innsigluð askja, sem ékki skyldi
opnuð, fyrr en komið væri á
áfangastað. Þegar hirzlu þess-
ari var loks lokið upp, komu þar
í ljós ýmis skjöl, er á voru rituð
lög og reglugerðir fyrir nýlend-
una ásamt nöfnum sjö manna, er
hafa skyldu með höndum
landstjórn og löggæzlu í land
náminu. Einn þessara manna var
John Smith, og stóð þannig á fyr-
ir honum, þegar skjölin voru les-
in, að hann lá bundinn undir þilj-
um og hlekkjaður við skipsbita
svo sem hann væri óbótamaður.
Lítið er vitað um ástæðurnar fyr-
Amerískt landnemahúc frá seytjándu 61 d.
732
TlMlNN - SUNNUDAOSBI.AÐ