Tíminn Sunnudagsblað - 10.09.1967, Qupperneq 3
fUHBU* Mkir-
SSSSr
Þegar isa leysir á vötnum í Svíþjóð, taka stanga-
veiðimenn þar að hugsa sér til hreyfings — og það
gera geddurnar líka. En ekki er algengt, að geddur
séu veiddar á stöng um þetta leyti — um hry-ning.
artimann gefa þær ekki gaum að öðru en viohaldi
stofnsins.
Geddurnar koma upp að landi til þess að hrygna, er isa
rekur frá ströndum. ísgeddurnar litlu eru oftast naer
fyrstar á ferð, en stórar laufgeddur reka lestina. Gedd-
an á sér ekkert bú, en fyrir kemur, að hængarnir skjóta
upp kryppu likt og kettir og reka eljara á braut.
íS-'íííí:
v • ':
■
Hæng, er nálgast hrygnu, sem ekki
er kynþroska, er vísað á bug með
höfuðbendingu. En hafi hrygnan
náð kynþroska, gefur hún hængnum
jákvstt svar með þvi að synda ör-
hægt áfram.
Hrygna og hængur synda hlið við
hlið. Hrygnan gýtur, þegar hængur-
inn danglar i hana með sporðinum,
og er svilin streyma út úr hængnum,
dreifir hann úr hrognunum með
sporðsveiflu.
Gedduhrogn er 2,5 mm í þyermál,
en hlutfallið milil stærðar þess og
stærðar frjósins er hið sama og á
milli fimmeyrings og títuprjóns-
hauss. Það tekur frjólð 1 mín. að
komast inn i hrognið og frjóvga
Tíu punda hrygna gýtur 85 þúsund
hrognum. í hverjum rúmsentimetra
af sviljum eru 20 milljarðar frjóa.
Þegar hitastig er hagstætt, frjóvg-
ast hrognin svo að segja öll. Þau
klekjast út á tíu til tólf dögum.
Seiðin festa sig í fyrstu við gróður,
en kirtlar við nefið gefa frá sér
límkennt efni. Þau synda svo upp á
yfirborðið, fylla sundmagann lofti
og fara á veiðar. En mörg geddu-
seiðl verða öðrum fiskum að bráð.
Gedduseiði eru kjaftvíð mjög og
geta gleypt bráð, sem er litlu mlnni
en þau sjálf. Þau vaxa ört —
fjögra ára gedda vegur yfirleitt um
tvö pund. Hængar verða stærri en
hrygnur. Þyngsta gedda, sem um
getur í Syiþjóð, vó 52 pund.
T í 1V1 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ
77fl