Tíminn Sunnudagsblað - 24.12.1967, Side 2

Tíminn Sunnudagsblað - 24.12.1967, Side 2
Wwmmmn ■ H —.■ |.! i.«i ■■■ ■■■■■■■ ■■'flK.J'*WHBSin JL-1LI '■'■■JiigWPWWWSB-. ■. I --■! '■ Er ísland að gliðna sundur að endilöngu? Árið 1912 birti Þjóðverjinn dr. Wegener rit mikið um uppruna heimsálfanna og heimshafanna og leitaðist við að styðja landfræði- legum, veðurfræðilegum og líf- fræðilegum rökum þá kenningu, að breið höf aðskildu nú megin- lönd, er eitt sinn hefðu verið sam- föst, og væru þau enn á reki. í síðasta tölublaði norska tíma- ritsins Naturen er fjallað um þessa kenningu og sitthvað það, isem fram hefur komið yið nýj- nstu rannsóknir á þessu sviði. Greininni fylgja margar myndir, meðal annars af íslandi, og undir henni stendur: „Er ísland að rifna sundur í tvennt?“ í sjálfri grein- inni er komizt svo að orði, eftir að vikið hefur verið að því, að það er á Mið-AtlantshafShryggnum, þar sejn gllðnunin er talin eiga sér stað, og lýst sprungusvæðinu frá Reykjanesi norður í Þingeyjar- sýsiu: ★ Þannig lítur Rauðahafið út, þegar horft er yfir það úr gervitungli. Vinstra megin er Eritrea, en Arabía til haegri. Og nú spyrja vísindamenn: Er þarna nýtt veraldarhaf að skapast með sama hættl Atlantshafið varð til endur fyrir löngu: „ísland er í raun og veru að rifna að endilöngu, og gliðnunin þvert á sprungusvæðið er um einn sentimefri á ári“. Þessi uppdráttur sýnir þau svæði á íslandi, þar sem eldsumbrot hafa verið mest. Á það eru merktar gjár og sprungur, sem yfirleitt liggja frá norð austri til suðvesfurs, jarðhitasvæði, hraun, eldstöðvar og annað slíkt. J I ★ Með sama hraða þarf því heila öld til þess að gliðnunin nemi ein- um metra. Það munar því litlu á hjverri manmsævinni. En náttúrunni liggur ekkert á. Hún getur gefið sér tíma til þess að skapa, þvi að fyrij henni eru „þúsund ár dagur, ei meir“. Og sé sú kenning rétt, að heimsálf- urnar hafi slitnað sundur endur fyrir löngu og mjakazt s-vo langt hvor frá annarri, að nú eru þar á milli breið úthöf, verður henni auðvitað ekki skotaskuld úr að skipta íslandi í tvennt með tím- anum. En jafnví-st er hitt, að harla margar kynslóðir íslendinga verða komnar undir græna torfu, áður en sundið tekur að myndast. Þess vegna getum við væntan- lega sofið róleg. 1130 X t M i N N - SUNN UDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.