Tíminn Sunnudagsblað - 21.01.1968, Blaðsíða 9
Myndavélin: Kassi til
þess að skálda með
Rætt við
Leif Þorsteinsson
Ijósmyndara
Það sagði einhver við mig um
daginn, að það væri gáfulegra að
skrifa um útvegsvandamál fyrir
Ungverja heldur en myndlist fyr-
ir íslendinga. Svo skrítið sem það
er, þá finnst trauðla nokkur þjóð
ó hnettinum, sem á jafn marga
góða málara, jafn mörg heimili
prýdd málverkum og jafn form-
skynslausan almenning.
Þetta formskynsleysi á sér ýms-
ar ástæður. í fyrsta lagi hefur
kennsla í listsögu verið algerlega
vanrækt í skólum hér og þarf
áreiðanlega að fara til vanþróuðu
landanna til að finna hliðstæðu. f
öðru lagi hefur fólk skort bækur
til sjálfnáms í þessum hlutum. Nú
er fyrra bindi íslenzkrar mynd-
listarsögu (Björn Th. Ejörnsson)
fyrir skömmu komið út og bætir-
úr brýnni þönf. Björn bendir td
dæmis á, að með hruni kaþólskr-
ar kirkju hraktist íslenzk mynd-
list út á kaldan klaka og komst
ekki inn í hlýjuna aftur fyrr en
þjóðernisvakning 19. aldar bar
landslagsmálverkið fram til sig-
urs. Þess má geta til gamans, að
Björn telur leiktjöld Sigurðar Guð
mundssonar við Útilegumenn
skólapiltsins Matthíasar Joehums-
sonar, máluð fyrir réttum eitt
SólargeislaflóS á gangstéttlnni sunnan vlð Útvegsbankann um hádegisbll.
TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ
57