Tíminn Sunnudagsblað - 25.02.1968, Blaðsíða 11

Tíminn Sunnudagsblað - 25.02.1968, Blaðsíða 11
Daginn, sem frostið var einna mest í Aðaldal, fór ég með Páli heitnum Jónssyni, móðurbróður mínum, að sækja hey á hestum og sleðum vestur að Skjálfanda- fljóti. Hafði hann heyjað þar um sumarið í landi Húsabakka, en átti kindur hjá mér á heyinu. Logn var, og vissum við, að frost myndi vera mikið. En enginn mælir var hjá mér. Við fórum um hlað- ið í Nesi, næsta bæ, og var okkur þá sagt, að frostið hefði um 'morg- uninn verið þrjátíu og tvö stig Hefðum við tæplega farið vegna hestanna, hefðum við vitað það En ferðin gekk vel, og komurn við ekkj heim fyrr en á vöku um kvöldið. Logn hélzt allan daginn, og var okkur ekkert kalt, enda vel búnir. ísinn fór á góunni, og var hann eins fljótur að hverfa og koma, nema það sem stóð botn. En eft- irköstin voru slæm — jörð mikið kalin næs'ta sumar og gris'eysi. En tíðin var góð, og mun hitinn einn dag um sumarið hafa komizt jafnhátt og frostið um veturinn i Aðaldal. Um hauistið gaus svo Katla, og spánska veikin kom til landsins. En við Þingeyingar höfðum litið af því að segja. Aska barst lítii lega norður, svo að hvítar kindur urðu sem gráar, en spánska veik- in korn e.kki. En ömurlegar voru fréttirnar af veikindum og mann- falli fyrir sunnan. . Fleirj stórtíðindi gerðust á árinu, og mun það teljast með viðburða- ríkustu árum á þessari öld. Þá lauk heimsstyrjöldinni fyrri, sem kölluð hefur verið, eftir úm fjög- ur ár. Þá varð ísland fullvalda ríki, þó í konungssambandi við Danmönbu. ★ Eftir að ég skrifaði þetta, las ég í bókinni „Því gleymi ég aldrei“, þátt eftir Davíð Stefáns- son. Þar segir hann, að hafisinn hafi komið vik-u fyrir jól. Það'er algert misminni, því ei-n-s og ég seigi, var ég á Húsavik 4. janúar. Þar var þá auður sjór og skip á höfninini. En 5. janúar byrj.aði byl urinn, sem ísin.n rak inn. p[|||lllll!llllllllllllllll!llfllllll!!llll!l!l!lllllillllllll!!lllllllil!llll]!!llllllll!!!!lllllg | RÖSBERG G. SNÆDAL: | I í SLÆGJUNNI | — Hann skárar ennþá létt og Ijáin vex, EE — hin lengi þráða stund í vændum er. EE Hann veit hún muni koma klukkan sex, EE EE en kankvíst bros á vörum enginn sér. — Hún kemur eins og kölluð á hans fund, EE5 ES og kaupamaður hættir strax að slá. = EE Hann veit, að náðin varir skamma stund, 5= en vel skal notið — þegar sjaldan má. EE = Hann þrýstir hana ,og þúfan bælist ögn, EE ES og það er heilög kyrrð á engjateig. | =5 — Hún gefur allt. Hann þiggur allt í þögn, == sem þyrstur maður bergi svala veig. ~ = Og ylur streymir út í fingurgóm, SS og angan hennar leggur fyrir vit, ~ EE og honum einum brosa þúsund blóm, EEE og brekkan skrýðist ennþá grænni lit. ~ = Til hinztu dreggja er dýrrar veigar neytt, = " og dagsins annir flýja vitund hans. 2S SS En hún, sem allan unað hefur veitt, = = er óðar horfin sjónum sláttumanns. == SEE En sunnangolan hreyfir Ijósan lokk = = og leikur sér að stuttum fléttum tveim, = ES er lítil telpa trítlar aftur heim = — með tóma engjaflösku í gráum sokk. = N T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ 155

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.