Tíminn Sunnudagsblað - 25.02.1968, Blaðsíða 18

Tíminn Sunnudagsblað - 25.02.1968, Blaðsíða 18
Syndasonurinn frá Kolmúla • 1 Þau Jón Stefánsson og Guðlaug Indriðadóttir bjuggu alla ævi á Eyri, og þar dó Jón bóndi 13. júM 1890, en Guðlaug Indriðadóttir 3. marz 1893. Börn þeirra voru þessi: 1. Indriði, f. 5. ág. 1855 á Eyri — dó þar 8. okt. 1857. 2. Stef^nda, f. 8. júlí 1856 á Eyri. 3. Árni, f. 3. júlí 1860 á Eyri. 4. Erlendur, f. 3. júlí 1863 á Eyri. 5. Jón, f. 24. júli 1865 á Eyri. 6. Indriði, f. 20. júlí 1870 á Eyri. Stefanía Jónsdóttir giftist 25. júlí 1879 Þorsteini Lúðvíkssyni Keanp. Bjuggu þau allan sinn bú- skap á Eyri nema tvö ár, annað í Vík, hitt í Víkurgerði. Stefanía dó á Eyri 23. október 1915, en Þorsteinn dó á Fögrueyri 29. ágúst 1921. Stefanía og Þorsteinn, amma mín og afi, voru bæði dáin áður en ég fæddist, svo að ég man þau ekki, en auðvitað hef ég sagnir af þeirn. En þar sem þau eru mér svo nákomin, finnst mér of per- sónulegt að skrifa um þau hér. Þó get ég ekki stillt mig um að minnast á eitt atriði í sambandi við ömmu mína, af því það var sagt um hana af manni, mér. ó- viðkomandi. Þannig var, að ég var að fara til Vestmannaeyjía á vetrarvertið, en brá mér suður á Berufjarðar- strönd til þess að kveðja konu- efni mitt, fór svo þaðan á Djúpa- vog og tók- far með Esju suður. Ég var þar eina nótt. Þay sem ég gisti var kona, sem hafði ver- ið, að mig minnir, á Kirkjubóli í Fáskrúðsfirði og var þá munað- arlaus — ólst þar upp, einhvern tima. Hún fór áð spyrja mig, hvað- an ég væri og hverra manna, sem ég þá sagði henni. Það var á fermingardaginn henn ar, hún var að ganga fyrir altarið í Kolfreyjustaðarkirkju til þess að játa skírnarheiti sínu. Sagðist hafa kviðið mikið fyrir því að láta spyrja sig út úr kverinu, eins og öll börn hafa gert, þar til sá ó- siður og pímtingarergla var lögð nið ur, og fannst henni hún eittlhvað einmana, þvi að öll önnur ferm- ingarbörn voru með mæðrum sín- um. Þá sagði hún, að hafi vikið sér að sér kona alókunnug, og verið svo hlýleg við sig. Skildi ekki við hana fyrr en inn við altarið hjá prestinum. Hún sagðist aldrei gleyma þessari konu. Þetta var Stefanía Jónsdóttir á Eyri. Naut ég þess vel þarna, að óg var dóttursonur Stefaníu. Börn þeirra Þorsteins og Stef- aníu voru þessi: 1. Jónína Guðiaug, f. 29. jan. 1880 á Eyri. 2. Oddný, f. 8. marz 1881 í Vík — dó þar 11. júní 1881. 3. Stefán, f. 28. febr. 1882 á Eyri. 4. Björn, f. 1. nóv. 1884 í Vík- urgerði. 5. Oddný, f. 19. ág. 1893 á Eyri. ★ Árni Jónsson giftist Ingibjörgu Jónsdóttur og bjuggu þaiu á Eyr- arstekk. Mér er sagt, að Árni hafi verið frekar lítill maður vexti, en fjörmaður mikill og einn af þeim mönnum, sem átti létt með að koma öluim í gott skap. Hann drukknaði á bezta aldri, 8. febrúar 1909, frá konu og tíu bömum, sumum á bamsaldri. Móðir mín hefur sagt mér, hvernig það slys henti: Árni var að sækja meðöl handa yngsta barni sínu, sem var veikt, inn að Búðum, og var Er- lendur bróðir hans með honum. Það var sunnanrok og voru þeir rétt norður af Eyri að koma til baka. Þá skeði það, eins og oft verður, þegar vindur stendur af þessari átt í fjörðunum fyrir aust- an, að vindurinn nær að skrúfa sjóinn upp í loftið í einni hringiðu. Þeir voru undir seglum og lentu í einni slíkri roku, og var það víst sú eina, sem kom allan daginn. Þannig er oft stutt bilið milli lífs og dauða. Bátnum hvolfdi, og voru þeir þarna hjálparvana rétt fyri-r fram-an augun á fólkinu, sem heirna var. Báðir voru ósyndir, því að þá þekktist ekki sundkennsla eins og nú. Erlendur komst á kjöl á bátnum, sem maraði i k-afi á hvolífi, náði 1 höndina á Áma bróð- ur sínum. En hann var drukknað- ur, þegar að var komið. Það hef- ur móðir mín sagt, að þá hafi hún séð Indriða bróður þeirra fljótastan, þegar hann fór til þess að bja-rga þeim, og var hann þó ekki alltaf lengi að snúa sér við. Hún fór með honum og man þetta því vel. Var þá sextán ára gömul. Á Ingibjörgu, konu Árn-a, 1-ang- ar miig til að minnast aðeins meira. Hún var n-efnilega ein af þessum undramanneskjum, sem en-ginn veit neitt um. Enda þurf-ti ég ekki SÍÐARI GREIN lengi að leita tH þess að komast að því, að hún var eitt synda- barnið. Hún var þó fædd og upp- alin í Fáskrúðsfirði og ekki lang-t til ættar frá þessu Eyrarfólki. Árið 1859 kemur gift vin-nu- kona su-nnan frá Búlandsnesi í Hálssókn að Dölum í Fásk-rúðs- firði og með hen-ni sex ára gam- alt barn, sem hún átti, hót Guð- rún Filippusdóttir. Það dó sama ár og þær komu að Dölium. Þes-si I-ngibjörg var Ásmundsdóttir, fædd um 1819 suður í Lóni. For- eldrar hennar voru Ásmundwr, f-æddur 1785 á Hlið í Lón-i, Ara- son, bónda á HHð, Jónssonar, Páls- sonar, og k-ona han-s, Ástríður, fædd um 1781 á Holtu-m á Mýr- um í Ein-holtssókn, Sigmundsdótt- ir. Bjuggu þau á HHð 1816. Móð- ir Ásmundar var Guðrún Ásmunds dóttir frá Hvalnesi í Lóni og var hún systir Hallgríms á Stóra-Sand- fel-li. Þeir voru systkinasyn-ir, Ind- 162 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.