Tíminn Sunnudagsblað - 11.08.1968, Blaðsíða 8

Tíminn Sunnudagsblað - 11.08.1968, Blaðsíða 8
Ur Oxnadal. ÞORSTEINN BJÖRNSSON: NÓTT í ÖXNADAL „Þar sera háir hólar tólfan dalinn fylla, þar sem hamrahilla hlær við skini sólar: Árla fyrir óttu, enmþá meðan nóttu grundin góða ber græn í faðmi sér.“ Á æskuárum mínum lék mér mjög hugur á að sjá Öxnadalinn. Bar fleira en eitt til þess. Fjöllin blöstu við sjónum mínum úr af- réttarlöndum okkar Blöndhlíðinga há og hrikaleg. Þau skýldu sælu- dalnum hans Jónasar um aldur og ævi. Ég hafði einu sinni farið um xnadal í barnæsku, þá fluttur kviktrjám frá Miklabæ norður Akureyri, en sá lítið annað en brattar og klettóttar fjallabrúnir. Loksins kom að því, áð ég færi norður í Öxnadal. Þegar við Sig- urður Eiharsson, nú bóndi á Hjalta stöðum, þá vinnupiltur á Mikla- bæ, rákum stóðið eitt vorið, áttum við að fara norður í Öxnadal að leita að rauðri hryssu, fimm vetra gamalli, sem Ófeig hét. Hún hafði strokið norður snemma um vorið eða seint um veturian, sem oft vildi til um sumt af Miklabæjar- stóðinu í þá daga. Við rákum stóðið af stað síð- degis, komið undir kvöld. Það var stór og myndarlegur hrossahópur og margar hryssur með folöldum. Héldum við með það sem leið Hggur fram Blönduhlíðina og upp Norðurárdalinn því næst fram í afréttina eg slepptum því á Hórg- árdalsheiðina handan við brú. Við höfðum rekið hægt vegna foldalshryssanna, þurftum oft að stanza til að lofa hrossunum að bíta og folöldunum að sjúga. Liðið var fast að miðnætti, er við lögð- um á stað áleiðis til Öxnadals að leita að Ófeig. Hröðuðum við sem mest för okkar norður heiðina og komum að Bakkaseli fyrri part nætur. Sáum við, að opinn var stofugluggi út frá bæjardyrum, lit- um þar inn og sáum, að þar svá'fu Kristján bóndi Gíslason og Rósa Tómasdóttir húsfreyja, er þar bjuggu þá. Við vöktum þau og spurðum Kristján eftir hrossunum, sem við vorum að ieita að. Sagði hann, að þau væru þar frammi .á dalnum handan ár á svokölluðum Almenn- ingum. Við riðum strax á braut og yfir ána framan við bæinn í Bakkaseli. Héldum svo fram græn- ar eggsléttar grundir undir háum hamrahMðum meðfram Öxnadals- ánni, þar til að við fundum stóð- hópinn, sem við vorum að leita að. Það voru nokkrar stóðhryssur frá Miiklabæ, sem mest þráðu að njóta góðgresis í dalakyrrðinni norður þar. Það var þyngsta þrautin eftir — að ná Rauðku og beizla hana. Það var Mtt árennilegt, því að hún var mjög tryllingsleg í sjálfræðinu og fr-elsinu í vornætursælunni í Öxna- dal, óvön að láta skerða frelsi sitt um miðja vornótt. Við Sigurður vorum öruggir og skeleggir að láta oíkar e-ftir liggja að handsama trippið. Treystum okkur alveg á þeim árum að hand- s-ama trippi og slá spilduna jkk- ar og í hvaðeina, ef við vorum báðir samtaka. Það voru okkar venjulegu tök á ótemjum, að Sig- urður tók í taglið, en ég f’ipa- taki og um annað eyrað. Gripum við þá stundarfast 'og stóðu þau þá venjulega kyrr eftir nokkurt þóf. Sigurður hljóp nú inn í stóð- hópinn og náði í taglið á Rauðku. Fór Rauðka nú marga hringj og sveiflur iim hlíðar og grundir, áð- ur en ég kæmist að ná neinum tökum til hjálpar, því að ég var að þessu sinni venju fremur stirð- ur í öðrum fætinum, sem ég hef haft mein í frá barnsaldri. Var þeirra aðgangur allharður, því að maðurinn var öflugur og sleppti aldrei tökum. Loks gat Sigurður komið kaðalbandi í taglið og sveifl- aði því-um stóran jarðfastan stein. Komst ég þá að og náði í flipann og eyrað, eftir það stóð hún, svo að við gátum lagt við hana beizl- ið. Glögg merki eftir stimpingarn- ar sáust í döggvuðu grasinu um grundir og hlíðar þarna í kring. Héldum við svo heim á leið með Ófeig í taumi. Komið fram um óttu, er við komum ofan að Bakka seli. Sóiarroð var um efstu fjalla- brúnir, þó að næturkyrrðin grúfði hið neðra urn Öxnadal. Fjöllin sýndust tíguleg, sólroðin um efstu tinda og hamrabrúnir, græn >og grösug ofan hlíðarnar, sléttar grundir að neðan meðfram Öxna- dalsá. Lækir hoppuðu klett af kletti ofan drög og gilskorninga: „Bunuiækur blár og tær, bakka- fögur á í hvammi, sólarylur, blíð- ur blær, bunulækur fagurtær.1' 584 T í M I N N — SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.