Tíminn Sunnudagsblað - 23.02.1969, Blaðsíða 12

Tíminn Sunnudagsblað - 23.02.1969, Blaðsíða 12
Fellingsvorið 1882. Góður vinur minn hefur beðið míg að segja sér sögu. í spjali pvi, sem hér fer á eftir, mun ég ieitast við að efna loforð mitt við hann. Ég fæddist 10. marz 1882 og aiun hafa verið tveggja mánaða gömul, er sumarmálabylurinn geis fiði, en hann varð orsök fjárfellis- tns mikla. Þá dó Gísli, móðurbróð- ir minn, en hann hafði verið vinnu maður á einhverjum bæ í Breiðdal i Suður-Múlasýslu. Hann átti nokkr ar eignir, sem komu til skipta milli erfingja hans. Systkini hans Voru sjö og svo móðir, sem stóðu tii erfða eftir hann' og í hvers hlut komu sjötíu krónur. Svo voru ýms- ir aðrir hlutir, og voru erfingjarn- ir beðnir að sækja þetta til hrepp- stjóra Breiðdæla. Móðir mín var einn erfinginn, svo að faðir minn varð til þess að fara norður í Breiðdal. Veður var búið að vera gott þetta vor og kom- inn gróður. Var því búið að sleppa öllum fénaði. Þegar fáðir minn var kominn langleiðina, brestur á stórveður með frosti og fannkomu. Hann hafði aldrei farið þessa leið fyrr og vissi nú ekkert, hvar hann var staddur. Hann hittir á beitar- hús um nóttina. Hann kemst þar inn, klæðir sig úr sokkunum og vindur þá og lætur þá inn á sig beran, svo að þeir verði volgir, næst þegar hann fer í þá. Síðan tekur hann moð úr jötu og lætur undir og ofan á bera fæturna. Um morguninn kemur bóndi í húsin og fer með föður minn í bæ- inn og hlynnir að honum eins og bezt má verða. En köld var aðkoma föður míns, er hann kom heim úr þessarj ferð. Aðeins níu ær og nokkrir sauðir voru tórandi eftir þetta voðaveð- ur, sem gekk ytfir allt land. Mik- ið af fénu hafði hrakið í vötn og margt var á kafi í fönn og alla vega afvelta. Ganglimirnir voru hirtir af því fé, sem fannst, og reyktir og etnir. í föðurgarði fyrrum. Paðir minn og afi höfðu félags- bú. Ég held, að fært hafi verið frá 40—50 ám og einbverjar gengu með lömburn. Hjá efnabændum voru sauðir venjulega fleiri en ærnar. Þeir voru þá verzlunar- vara. Þá voru engir styrkir veittir til að bæta þetta voðalega tjón, er menn urðu fyrir. Búskapur hélt þó áfram, og furðanlega rættist úr þessu. í heimili hjá foreldrum minum var þá ellefu manns, þar af tvenn gömul hijón, tvö fósturbörn hálf- vaxin, ein vinnukona, tvö ung börn, auk húsbændanna sjálfra. Árið 1889, þegar við börnin vor- um orðin fimm, voru faðir minn og afi orðnir með betri bændum sveitarinnar. Faðir minn var eftir- sóttur verkmaður. Þegar hann var á þrítugsaldri, slasaðist hann í sjó- róðri, — upphandleggur brotnaði og munaði víst minnstu, að hand- leggurinn snerist í sundur. Bjarni Gíslason á Uppsölum batt um brot ið, sem var mikið kurlað, og hafði umsjón með þessu. Það var ótrú- legt, hve lítið fór fyrir þessu broti síðar, nema hvað hold var nokkuð dregið úr handleggnum. Árið 1897 var faðir minn að rétta ljá í orfi, sem skrikaði til', svo að ljárinn lenti á lífæðinni, og varð af því mikið blóðrennsli. Jón Bjarnason á Uppsölum var sóttur til að binda um sárið, og var hann búinn að stöðva blóðrennslið með dýjamosa, þegar Þorgrímur lækn- ir kom og saumaði skurðinn sam- an. Faðir minn var frá verkum TORFI ÞORSTEINSSON SKRÁÐI TÍMINN - SUNNUDAGSBLAÐ

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.