Tíminn Sunnudagsblað - 23.02.1969, Blaðsíða 17

Tíminn Sunnudagsblað - 23.02.1969, Blaðsíða 17
einn af formönnum þeim, sem þaS an ætluðu að róa slysfarardaginn, og var Daði í Hellurn háseti hans. 'Þeir settu frarn skipið, komust út á fiskimið og renndu þar færum sínum. Þá er það, að Daði biður Jón að snúa til lands, því að sér lítist ekki á bfiku þá, sem færist yfir loftið. Þórlaug, dóttir Jóns, var meðal háseta hans, og hvetur hún föður sínn til að dveljast leng- ur á sjónum, því að enn koini fisk- ur á færin. Þá segir Daði: „Láttu ekki déskotann hana Laugu ráða.“ Jón fór að ráðum Daða og reri til lands, og náðu þau lendingu áð- ur en ófært varð. Jón þakkaði það veðurgleggni Daða. Þegar Daði síðar sagði frá þessari sjóferð Jóni Sigurðssyni í Borgarhöfn, bætti hann jafnan við: „Þá reri ég vel til lands.“ Daði var niðursetningur í Suðurhúsum í Borgarhöfn. Kom hann þá oft í heimsókn til Jóns í Lækjarhúsom, er þá var unglingur og létti undir við að mala kornið fyrir hann. Sagðist Jóni svo frá, að Daði hefði verið handstór og herðabreiður. EJín, systir Daða, var lengi í skjóli dóttur sinnar, Elínar Jóns- dóttur, sem var ráðskona séra Þor steins Einarssonar á Kiálfafellsstað. Elín gamla var trú húsbónda sín- um. Þegar mikið var að gera i heyskapnum, gaf hún sér ekki tíma til að setjast niður til að kasta af sér þvagi. Þá sagði Elín dóttir hennar: „Setztu niður, manna.“ Þá svaraði gamla Elín: „Ætli manni veiti af að vinna fyrir þrotinu hérna.“ En það var prestur, sem hún átti við. Séra Þorsteinn var góðhjartað- ur maður og hafði oft náð sér í mjólkurost frá konu sinni til að færa fátæklingunum í kring um sig. Séra Þorsteinn andaðist úr lungnabóTgu og varð harmdauði sóknarbörnum sínuni. Lárus Páls- son hómópati orti eftirmæli eftir séra Þorstein, en þau eru á þessa leið: Sorg er á staðnum, þú sefur minn vinur, sízt er mér ánægja heiminum i, stundaklukkan djarfan á dynur, dauðans bergmálið hömrunum í- Þú vaknar ei aftur og ferð ekki á fætur, frændi minn góður, að veita oss lið. Búinu þínu þú gefur ei gætur. Guð hjálpi mér, þú ert hér skilinn við. Góðra manna getið. í sumar las ég blaðagrein, þar sem rætt var um Njálsbrennu og fall Höskuldar Hvítanesgoða, og er sakleysi Njáls þar dregið í efa. Hvað kemur mönnum til að varpa fram slíkum getgátum? Þegar Njáll frétti lát Höskuldar, sagði hann, að þar hefð’i slokknað skæi'asta ljós augna sinna. Á öðrum stað las ég blaðavið- tal, þar sem því er haldið fram, að reiðilesturinn og fleiri lestrar í Vídalínspostillu, séu eftir Þórð Vidalín, en ekki meistara Jón. Jón Vídalín var mælskumaður og skörungur í ræðustól, og hef- ur enginn íslendingur jafnazt á hann í því embætti. Hann átti stórt og gott hjarta og hafði samúð með öllurn, sem átfcu bágt. Eitt sinn er Jón Vídalín var á yfirreið urn land- ið, gerði hann lykkju á leið sína til að hitta Guðmund Bergþórsson, kryppling, sem búinn var að liggja rúmfastur mestan hluta ævi sinn- ar, skáld og speking að viti. Þegar biskup kemur aftur út, höfðu sveinar hans orð á því, að lágt væri lagzt að skriða inn í þetta moldai'hreysi til krypplingsins. Þá svarar biskup: Heíðarlegur hjörvagrér hlaðinn mennt og sóma, yfir hann ég ekkert ber utan hempu tóma. Minnisverðir atburðir. Vel man ég höfðingsmanninn Hannes Hafstein. Okkur Austur- Skaftfellingum veittist sá heiður að kynnast honum, er hann ferð- aðist hér um. Öllum geðjaðist vel að þessum mæta manni, sem bæði var viðfelldinn og kurteis. Það var fyrsti maður, sem hér fór um, eft- ir að ég man eftir, sem spurði, hvort hér í sveit byggju nokkrir ættingjar Jóns Eiríkssonar kon- ferensráðs. Nú eru hér í sveit 52 niðjar systra Jóns, Guðrunar og Þórdís- ar. Séra Brynjólfur á Kálfafells- stað á hér 75 ættingja, og heilar fjölskyldur eru hér út af séra Jóni á Bægisá, séra Jóni Steingríms- syni og Þorsteini tóli. Vel man ég einnig eftir jarð- skjlálffcunum 1896. Ennfremur KöHugosinu 1918. Þá var ég úti í eldhúsi, sem stóð syðst í þorp- inu, að færa upp úr sláturpotti. Þá var svo dimmt af ösku, að ég varð að þreifa mig áfram til þess að finna bæjardyrnar. Víst man ég eftir spönsku veik- inni og þeim manndauða, sem hun olli. Mest þótti mér fyrir, er skáld- sagnahöfundurinn Jón Trausti dó. Ég er ekki heldur búin að gieyma því, þegar ísland varð fullvalda ríki 1. desember 1918. Þá sagði Guðmn gamla Hallsdóttir: „Ekki hefði hún móðir min vilj- að lifa í kóngslausu landi.“ í dagsins önn. Mikið þurfti fólkið í gamla daga að leggja að sér að vinna. Þá þurfti að vefa og spinna, tæta og prjóna, sækja vatn um langan veg, mæla korn til brauðgerðar, bæta skó og ótal margt fleira. Allt var handunnið og engin vél til að flýta fyrir verkum. Tvær saumavélar voru hér í sveit, þegar ég man fyrst eftir. Óvíða voru vinnukonur nema hjá stórbændum og á höfðingjasetrum. Fátæku konurnar komu þó oft upp eins mörgum börnum og þær ríku, og börn þeirra stóðu oft ekki að baki börnum höfðingjanna. Þegar ég minnist þessa fátæka alþýðufólks, koma mér í hug hjón- in Þorlákur á Bakka og Sigurlína, kona hans. Vegna sárrar fátæktar og mikillar ómegðar, sern á þau hlóðst, nutu þau ekki virðingar að verðleikum. Samt komu þau upp stórum hópi mannvænlegra barna, sem í engu standa að baki börn- um þeirra, sem til höfðingja töld- .............................- Þeir sem senda Sunnu dagsblaSinu efni fil birtingar, eru vinsam- lega beSnir aS vanda til handrita eftir föng- um og helzt aS láta vél- rita þau, ef kostur er. Ekki má þó vélrita þétfar ert t aSra hverja lírtu. T I M 1 N N — SUNNUDAGSBLAÐ 161

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.