Tíminn Sunnudagsblað - 16.04.1972, Blaðsíða 2

Tíminn Sunnudagsblað - 16.04.1972, Blaðsíða 2
iiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiHiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiinniiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiniiiiiiiiiiiiimiiiiiimiiiii: Þingeysk menning á nitjándu öld fæddi af sér tvennt, sem haföi varanlegt gildi i landinu: Hún hóf félagshyggjuna i land- inu til mikils þroska, og hún varð sá jarðvegur, er úr uxu mikil skáld og orðsnillingar. Við hefjum visnaþáttinn að þessu sinnimeð nokkrum stökum eftir þann mann, er hvað mestri orð- kyngi hefur verið gæddur is- lenzkra skálda, Guðmund Frið jónsson á Sandi: öft ég stóð á æskutið engjamóður stúfur, aftann glóði, og upp um hlið eimdi móða um gljúfur. Grænu strái, er gaf ég dá, gott var frá að huga, viðum, bláum vöðlum á vængi sjá, er duga. Þá var dátt að horfa hátt i höll, sem átti grima. sungið kátt í ýmsri átt allt að háttatima. Þreytubrenndur enn ég er um engjastrendur minar, á þig bendi og óska mér upp i lendur þinar. Björk, er hallar limalegg og laufin falla i valinn, — þitt ið snjalia hlátrahnegg hljómar um allan dalinn. F'rá orðgnóttinni þingeysku sveiflum við okkur suður á Mýr- ar og hittum fyrir mann, sem þar ólst upp úti á sjávargrönd- um, Bjarna Ásgeirsson, sem seinna var lengi kenndur við Reyki i Mosfellssveit. Hann kvað um æskustöðvar forfeðra sinna: Þarna syngja sær og land saman marga drápu. Efra fjallahlámans band bryddir græna kápu. Þarna minjaskartið skin skært frá liönum árum. Þar fékk ættin þin og min þrótt úr mold og bárum. Þótt oss örlög flesta frá feðrastöðvum togi, hugann dregur hulin þrá lieim að gamla Vogi. Þú mátt stiga á fák og fley, fljúga um viða geima — hvert sem ferðu, áttu ei annars staðar heima. Þar hófst kyn vort öld af öld og á sér helga dóma. Ilaltu fram á hinzta kvöld hreysti þess og sóma. Ekki sómir annað en kona taki til máls, og að þessu sinni berum við niður hjá Guðrúnu Benónýsdóttur á Hvamms- tanga. Ein visa hennar er á þessa leið: öft ég sveina fer á fund, frá þvi greina sögur. Veitir einatt unaðsstund ástin hrein og fögur. En eftir þessa sömu konu er einnig visa, sem svo hljóðar: Kemur biðill — hæ, hæ, hæ! Húrra, ég verð kona! Snýr til baka — æ, æ, æ — alltaf fer það svona. Séra Sigurður Norland i Hindisvik var mörgum kunnur. Þótt hann ætti heima norður á Vatnsnesi. hefur honum eitt- hvað verið um það kunnugt, að Torfi bóndi i Gilstreymi i Lundarreykjadal átti engjaveg langan fram á reginheiði. Að minnsta kosti orti Hindisvikur- prestur þessar visur i áningar- stað i Biskupsbrekku: Uxahryggir eru leið inn við bygging hrunda, ýmsir hyggja ekki greið, éitthvaö þriggja stunda. Bóndi fús þar beitir ljá, brokin þúsund gróa, sauðir bús ei svelta hjá Sæluhúsaflóa. Pétur Beinteinsson i Grafar- dal var elztur margra systkina, sem ólust upp á sannnefndum heiðarbæ og hafa mjög verið við skáldskap riðin, sum þjóðkunn. Eftir Pétur eru þessar stökur: Átti vetur öll sin fet ofin hretum striðum, sólin grét, og loks hann lét lúta betri tiðum. Kári fló á frosinn sjó, fór að gróa jörðin, þegar glóey geislum sló glöð á móabörðin. Lauga njólulindir hljótt landið fjólum vafið, meðan sól um sumarnótt siglir pólarhafið. Gleðin hossar geði dátt, gigjur fossar stilla, sólarkossar austurátt árdagsblossum gylla. Guðrúnu frá Lundi þekkir þjóðin öll, þvi að enn er hún i hárri elli meðal þeirra rithöf- unda, er flestra freistar með bókum sinum. Færri vita, að hún á son, sem heitir Angantýr Jónsson, og kannski hefur ein- hver gaman af þvi að sjá stöku eftir hann: Ekki tjáir örvænta, enga þrá mun fanga. Undir plágur örlaga allir fá að ganga. Ekki er það nýtt af nálinni, að menn hugsi með ánægju til lið- inna stunda, er þeir hafa átt i góðu tómi. Jakob Guðmundsson frá Húsafelli kvað: Hryggð og kviða horfinn frá, hress i þýða blænum, sat ég fríðum svanna hjá sæll i hliðum grænum. Annar gamall Borgfirðingur, Jóhann Eyjólfsson frá Sveina- tungu. orti á þessa leið: Mörgum Vikurmeyjunum mætti ég inn við tjöldin. Gaman er aö þeim, greyjunum, i góðu veðri á kvöldin. Við látum svo þessari upp- rifjun lokið með visu eftir Rós- berg G. Snædal, skáld á Akur- eyri: Þú, sem dáir dagsins glóð, draumabláar vökur, þiggðu frá mér þessi ljóð, þesrar fáu stökur. Gnúpur. 290 Sunnudagsblað Tímans ^iiiiiiimiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiuiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiitiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiiniiiiiimiiinniiiiniim

x

Tíminn Sunnudagsblað

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.