Tíminn Sunnudagsblað

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

Tíminn Sunnudagsblað - 16.04.1972, Qupperneq 10

Tíminn Sunnudagsblað - 16.04.1972, Qupperneq 10
Þannig var landslagiA i heimahögunum i augum y firmarskálks Gústafs III Svíakonungs. Egg j abardagi og ölvagleði á konungsskipi Við sjáum á myndum, að fint fólk á siðustu áratugum átjándu aldar var afskaplega fint. Hið lokkaprúða parruk Stefáns amtmanns á Möðru- völlum hefur ekki verið neitt hres, og það liggur við, að gullskreyttur kraginn og bylgjandi hálslinið á Magnúsi Stephensen veki enn lotn- ingu. En afturförin hefur verið hröð, þvi að það er hörmung að sjá, hvernig Steingrimur biskup sivafði á sér langan og mjóan hálsinn eins og vöðlu- bjúga nokkrum áratugum siðar. En hafi æðstu embættismennirnir islenzku gengið stásslega búnir, þrátt fyrir móöuharðindi og fleiri bágindi i landinu — hvað þá um útlenzku aðals- mennina og hirðmenn konunganna? Þetta voru dagar Loðviks XVI og Gústafs III Sviakonungs, hirðlifið enn i fyilsta blóma og rokokóstillinn með iburðarmikið skraut sitt og gyllingu enn i bezta gengi,. Hvilik siðprýði og fágun hlýtur ekki að hafa rikt i þeim höllum þessara fagurkera! Einn þeirra manna, sem var i þjónustu Gústafs III var Karl Agúst Ehrensvard — maður af tignum ættum eins og nafnið gefur til kynna. Hann var sjóliðsforingi og varð tvivegis yfir- maður alls flota Svia — i fyrra skiptið af náð Gústafs III. En þetta var dáiitið óvenjuiegur sjóliðsforingi. Hann var Kka rithöfundur og teiknari með ágætum. En það sem mönnum þykir nú ekki hvað sizt matur i er bréfin, sem hann skrifaði konunni sinni elsku- legri, og þau voru nokkuð mörg. Hún var tuttugu árum yngri en flotafor- inginn, svo að honum hefur kannski þótt vissara að halda henni við efnið, en hann sjálfur löngum fjarri henni vegna embættis sins. Þvi að Gústaf III var ekki maður, sem hafði flota- foringja aðeins til skrauts, heldur vildi láta þá berjast, enda ómótmælanlegt, að til þess hafa þjóðhöfðingjar her og flota. A þessum tima var ekki sú öld runnin, að þjóðhöfðingjar sætu heima i öruggri nálægð við traust loftvarna- byrgi, sem þeir gætu skriðið i, ef á bjátaði, heldur voru þeir sjálfir i herförum eins og Atli Húnakonungur öldum fyrr. Þess vegna hvarf Gústaf III annað veifið frá rokokóskrautinu i höllum sinum og dró albrynjaður i strið. Eins og að likum lætur var þá stundum siglt yfir Eystrasalt til Svia- borgar úti fyrir Helsingjafossi, þar sem nú heitir Suomenlinna, þvi að þetta traustasta virki á öllum Norður- löndum féll ekki Rússum i hendur fyrr en 1808. Það var sköpunarverk annars Ehrensvards, Ágústinusar Ehren- svárds, en kom siðast stórlega við sögu við lok heimstyrjaldarinnar fyrri, en sigurvegararnir i borgara- styrjöldinni finnsku hvitliðarnir, höfðu þá sem lutu i lægra haldi, rauðliðana eða bolisvikkana, þar i fangabúðum, er finnski rithöfundur Jarl Hemmert hefur reist nöturlegan minnisvarða 298 Sunnudagsblað Tímans

x

Tíminn Sunnudagsblað

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn Sunnudagsblað
https://timarit.is/publication/301

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.