Tíminn Sunnudagsblað - 04.11.1972, Síða 8
Stefán þórðarson, Reykjavík
Sveinbjörn Kristmundsson
Sverrir Haraldsson i Selsundi
i Selsundi var með þá. Þeir geystust
fram úr okkur niður að Helli. Hestarn-
ir voru heimfúsir og meðan Sverrir
var að gefa þeim i Hellinum, tóku
nokkrir á rás niðurúr. Var ekki að sök-
um að spyrja, að stór hópur lagði af
stað á eftir, sem kostaði eltingarleik
við þá alla leið niður á Fitjar. Við með
safnið, urðum þvi fyrst til að ljúka
okkar verki þá um daginn og var safn-
ið komið i girðingu um kaffileytið.
Áöur fyrr var venjulega sofið i tjöld-
um við Landmannahelli og hestarnir
látnir i hellinn. Núna hafa risið nokkur
hús þar, fyrst gangnakofi og hesthús,
en nýverið byggði Eyjólfur Ágústss. i
Hvammi upp á sitt eindæmi mjög gott
hús fyrir gangnamenn og vegfarendur
með sex kojum, svefnlofti fyrir fimm
til tiu manns og sambyggt hesthús fyr-
ir 10-15 hesta. Eyjólfur er sonarsonur
Eyjólfs Guðmundssonar i Hvammi,
sem Björn i tsafold gaf nafnbótina
Landshöfðingi. Finnst mörgum, að
tignarheitið eigi að fylgja nafninu,
enda er húsið jafnan kallað Höll
Landshöfðingjans.
Um kvöldið fóru menn að tinast að.
Kristnarnir, Stefán, Jón,Ásgeir kóngur
og ég sváfum i kojunum inn i Höllinni,
en Vilhjálmur og Pálmi uppi á lofti.
Páll á Galtarlæk tjaldaði og sváfu þeir
Sigurður kóngur við þriðja mann i
tjaldinu. Aðrirvoru i gangnakofanum.
Stefán hafði átt erfiða ævi. Hann er
reyndar með betri handknattleiks-
mönnum landsins og spilar með
Fram. t Jökulgilinu hafði hann lent i
erfiðum leitum i Sveinsgilinu, enda
talinn i góðri þjálfun, en snarsundlaði
á efstu hryggjunum, sem fáir geta vist
láð honum. Núna um daginn var hann i
Höfðanum með Kristni Guðnasyni, en
Höfðinn er með hæstu fjöllum á af-
réttinum og Kristinn frekar fyrir það
að halda áfram. Þegar Kristinn i
Hvammi benti svo Stefáni á Loðmund
sem gnæfði upp yfir Hellisfjallið, snar-
brattur og með hamrakórónu sina á
höfði. og sagði honum. að þarna uppi
ætti hann að spigspora á morgun. lýsti
Stefán þvi yfir að djöfullinn sjálfur
gæti ekki dregið sig upp á þetta fjall.
Voru uppi ýmsar skoðanir um það,
hvors máttur væri meiri,Frammarans
eða þess^sem Sæmundur i Odda beizl-
aði á sinum tima og sundreið frá
Svartaskóla til íslands. Ekki kom sú
skoðun þó fram að reyna að beizla
..þann i neðra” til útreiða upp á Loð-
mund, enda er blóð Oddverja eitthvað
orðið misþykkt i landanum-.
Um nóttina vaknaði ég nokkrum
sinnum við hundana, Snata og Val.
Þeir vildu koma i heimsókn upp i koj-
una, enda hlýrra þar en á gólfinu. Þeir
voru orðnir hálf slæptir og hafði eng-
848
j
Ester Haraldsdóttir i Hólum
Jón Jónsson á Lækjarbotnum
Guömundur Kvaran úr Reykjavik
Sunnudagsblaö Tímans